Lögmannablaðið - 01.06.2002, Side 18
18
Sigurður Tómas Magnússon
héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og
formaður Dómstólaráðs.
ÞRÓUN REFSINGA
Í erindinu verður fjallað um samanburð á þyngd
refsinga frá einu tímabili til annars og milli landa.
Fjallað verður um þau vandamál sem er við að
glíma við samanburð á refsingum fyrir mismun-
andi tegundir brota. Reynt verður að varpa ljósi á
þá þætti sem vega þyngst við ákvörðun refsinga
fyrir einstaka tegundir brota. Einkum verður
fjallað um refsingar fyrir ofbeldisbrot og önnur
alvarleg brot.
Jón Þór Ólason
lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu og stundakennari
í refsirétti við Háskóla Íslands.
EÐLI OG ÞRÓUN
VIÐURLAGAKERFISINS
– dómstóll götunnar
Sigríður J. Friðjónsdóttir
saksóknari við embætti ríkissaksóknara.
ÁKVÖRÐUN REFSINGAR
– hvert er svigrúm dómstóla með hliðsjón
af jafnræðissjónarmiðum?
Erlendur S. Baldursson
afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun.
FANGELSI Í FORTÍÐ, NÚTÍÐ
OG FRAMTÍÐ
Erlendur skoðar þetta form refsingar frá upphafi
og ræða hvernig fangelsið hefur staðist tímans
tönn og hver staða þess verður í framtíðinni. Inn
í þetta verður fléttað afbrotafræðilegum vanga-
veltum og frásögn eigin reynslu.
Hilmar Ingimundarson
hæstaréttarlögmaður.
ÁKVÖRÐUN REFSINGA Á ÍSLANDI,
sjónarmið verjanda.
Þór Jónsson
varafréttastjóri Stöðvar 2.
DÓMUR ALMENNINGS
Fjallað verður um álit almennings á dómstólun-
um, skilning hans á dómskerfinu og afstöðu til
dóma í málum, sem vakin er athygli á í fjölmiðl-
um, einkum manndráps- og kynferðisbrotamál-
um.
2 / 2 0 0 2
Málþing Dómarafélags Íslands og Lögmannafélags Íslands
7. júní 2002 í Eldborg, húsi Hitaveitu Suðurnesja við Svartsengi (Bláa lónið)
GLÆPUR OG REFSING
Viðurlög við glæpum á Íslandi
— er breytinga þörf
Málþingið hefst kl. 10.00 og formlegri dagskrá lýkur um kl. 16.15.
Rútuferðir verða frá skrifstofum LMFÍ kl. 9.00 um morguninn.
Hádegisverður er á milli kl. 12-14 og að loknum fyrirlestrum verða pallborðsumræður.
FUNDARSTJÓRI:
Ingibjörg Benediktsdóttir, hæstaréttardómari.
FYRIRLESARAR: