Lögmannablaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 19

Lögmannablaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 19
19L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð SÍÐUSTU misseri hefur orðið tals-verð umræða um afbrot og refs- ingar. Hefur hún verið nokkuð einlit í þá áttina að herða þurfi refsingar, sér- staklega í fíknefnabrotum, ofbeldis- brotum og kynferðisbrotum. Umræða þessi hefur valdið mér nokkrum von- brigðum þar sem hún hefur, að því er virðist, að mestu stjórnast af heift og hefndarhug. Ég fagna því málþingi Lögmannafélagsins sem fyrirhugað er 7. júní n.k. til að ræða þessi mál og ber yfirskriftina „glæpur og refsing“. Greinarstúfur þessi er ekki fræðileg eða vísindaleg úttekt um efnið heldur hugleið- ingar og sjónarmið mín sem ég vonast til að geti leitt til þess að umræðan færist í eðlilegri og um- burðarlyndari farveg. Ég held að flestir séu sammála um að krafa al- mennings er og hefur verið undanfarin ár að herða skuli refsingar almennt og verið sérstaklega hávær í framangreindum brotaflokkum. Þessi krafa kom fyrst fram í umræðum um vandann sem tengist neyslu ávana-og fíkniefna. Af einhverjum óskilj- anlegum ástæðum töldu margir lausnina á vand- anum felast í hertum refsingum. Þunginn í um- ræðunni var slíkur að dómar þyngdust sem síðar leiddi til þess að löggjafinn hækkaði refsiramm- ann. Það er út af fyrir sig ekkert óeðlilegt við það að löggjafinn láti undan þrýstingi almennings hverju sinni enda getur falist í því talsverður póli- tískur ávinningur. Verra finnst mér hins vegar ef dómstólar eru of fljótir að elta almenningsálitið. Það er nefnilega einu sinni þannig að almenningsálitið getur verið mjög sveiflukennt og stjórnast oft af fjölmiðla- umræðunni hverju sinni. Gott dæmi um þetta er breytingin á fíkniefnaumræðunni undan- farna mánuði þar sem önnur sjónarmið hafa komið fram en áður og rök færð fyrir því að hertar refsingar séu ekki til bóta og jafnvel frekar til skaða. Nú hefur umræðan um hertar refs- ingar færst frá fíkniefnabrotum yfir í kynferðisbrot. Mér finnst sú umræða skiljanlegri þar sem staða þolandans er allt öðruvísi en þolandans í fíkni- efnabroti ef hægt er að tala um þol- anda slíks brots. Brotaþoli í kynferð- isbrotum, sérstaklega þeim sem snúa að börnum, er varnarlaus meðan neyt- andi fíkniefna tekur sjálfstæða ákvörðun um neyslu hins ólöglega efnis. Það finnst því mörgum öfug- snúið að refsing við alvarlegu kyn- ferðisbroti sé minni en við innflutn- ingi eða vörslum á ólöglegum fíkniefnum. Hér er því um að ræða ósamræmi í refsingum með hlið- sjón af alvarleika brots sem ég get fallist á að leið- rétta þurfi. Spurningin er því sú hvort herða eigi refsingar við kynferðisbrotum og hugsanlegum öðrum brotum svo samræmis sé gætt eða hvort eðlilegra væri að milda refsingar í fíkniefna- brotum. Mitt mat er að nærtækara sé að milda refsingar við fíknefnabrotum og líta verði á þau mál sem heilbrigðisvandamál frekar en glæpi. Í allri umræðunni má ekki gleyma hver tilgang- urinn er með refsingum. Hann er fyrst og fremst sá að koma í veg fyrir eða draga úr fjölda afbrota. Hafa hertar refsingar, t.d. í fíkniefnamálum, dregið úr afbrotum? Eru afbrot fátíðari í löndum þar sem refsingar eru þyngri? Viðhorf almennings til refsinga virðist mótast að mestu leyti af hefnd- inni. Skýringar á því eru að mínu mati þær að harmleikurinn sem oft fylgir brotum er orðinn svo nálægur okkur gegnum fjöl- miðlaumfjöllun og afþreying- arefni alls konar. Það er mannlegt að fyllast hatri gegn gerandanum þegar ítarleg um- fjöllum er um afleiðingar verknaðarins og auðvelt verður að setja sig í spor þol- andans og aðstandenda hans. En það eru fleiri hliðar sem þarf að líta til þegar meta þarf hve þungar refsingar eiga að vera. Hvar liggja hagsmunir Brynjar Níelsson hrl. Um glæpi og refsingar Umræðan um refsingar má ekki stjórnast af hefndinni því þá er hætt við að hatrið magnist upp og öfgarnar verði áberandi.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.