Lögmannablaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 11

Lögmannablaðið - 01.06.2002, Blaðsíða 11
11L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð TJÁNINGARFRELSI lögmanna og sam-skipti þeirra við fjölmiðla hafa verið í sviðsljósinu að undanförnu. Hér er um miklvæg málefni að ræða sem verða sífellt áþreifanlegri í daglegum störfum lögmanna. Þá ber talsvert á því að fjölmiðlar fjalli um dómsmál jafnvel áður eða samtímis og þau eru höfðuð. Hið sama er upp á teningnum í öðrum löndum. Eftirfarandi er stutt endursögn af norsku máli. Hinn 1. mars sl. féll úrskurður aganefndar lögmanna í Óslóar-umdæmi í kærumáli sem stjórnmálaflokkur, Framfaraflokkurinn í fylkinu Austur Fold, höfðaði gegn lögmanni fyrir brot á góðum lögmannssiðum vegna ummæla hans í stefnu og útvarpsviðtali. Lögmaðurinn hafði höfðað einkarefsimál f.h. umbjóðenda sinna, sem voru tveir fyrrum meðlimir stjórnmála- flokksins, gegn tveimur félögum í flokknum. Stefndu höfðu tekið þátt í umfjöllun innan flokksins um meinta fjármálaóreiðu einnar flokksdeildar. Í stefnunni kom m.a. fram að hinir stefndu hefðu notað aðferðir til árása á pólítíska and- stæðinga sem þekktar væru í einræðisríkjum, til dæmis Þýskalandi á tímum nasista, en að snúast ætti hart gegn slíkum aðferðum í réttarríki. Í viðtali í svæðisútvarpi kom framangreind lýsing á aðferðum stefndu fram í máli lögmanns stefnanda. Aðspurður af fréttamanni hvort ekki væri um ærumeiðingar í þeirra garð að ræða svaraði lögmaðurinn neitandi og vísaði til þess að einungis væri um að ræða hispurslausa lýsingu á þeirra vinnubrögðum. Fram kom í við- talinu að stefnan hafði verið fengin fréttamann- inum áður en viðtalið fór fram. Hins vegar hafði stefnan á þeim tíma ekki verið birt stefndu eða hún skráð í undirrétti í Ósló. Taldi kærandi að lögmaðurinn hefði brotið góða lögmannssiði m.a. með tilvísun til nasista, en orðið nasisti hefði mjög neikvæða merkingu í norskri tungu, og jafnframt með útvarpsvið- talinu. Taldi lögmaðurinn svigrúm lögmanna til lýsinga í greinargerð vera rúmt og með útvarps- viðtalinu hafi hann eingöngu verið að grípa til sömu aðgerða og stefndu höfðu áður viðhaft. Aganefndin minnti á að lögmanni bæri að vinna störf sín á málefnalegan og réttmætan hátt en að hann ætti jafnframt kröfu á því að verða ekki samsamaður þeim rökum sem hann héldi fram fyrir hönd skjólstæðings síns. Í þessu máli taldi aganefndin að með um- mælum sínum hefði lögmaðurinn gengið lengra en það sem telja mætti sanngjarnt svigrúm hans til að gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna. Ekki væri um að ræða sjónarmið sem hefðu þýðingu fyrir málstað skjólstæðinga lögmannsins heldur væri hér frekar um að ræða litríkar lýsingar og áherslur sem lögmaðurinn yrði sjálfur að bera ábyrgð á. Taldi nefndin ámælisverðara að lögmaðurinn hafði ekki eingöngu notað ummælin í stefnu heldur og í fjölmiðlum og þannig komið lýs- ingum sínum á framfæri við stærri hóp. Jafnframt var talið að lögmaðurinn hefði brotið gegn þeirri siðareglu að gæta hófs í fjöl- miðlaumræðu um dómsmál sem hann fer með. Ekki var neitt í málinu að mati aganefndarinnar sem gaf lögmanninum tilefni til að tjá sig um efnisatriði málsins í fjölmiðlum áður en gagnað- ila hafði verið birt stefna. Taldi nefndin að þrátt fyrir að fjallað hafi verið um málið í fjölmiðlum áður hafi það ekki haft þýðingu. Skjólstæðingar lögmannsins hafi ákveðið að vísa málinu til dómstóla og ekki hafi verið ástæða til að ætla að málið fengi ekki réttláta meðferð fyrir dómi þótt fjallað hafi verið málið í fjölmiðlum á fyrri stigum. Því þótti lögmaðurinn hafa brotið gegn góðum lögmannssiðum að koma stefnunni til fjölmiðla og tjá sig um efnisatriði málsins í út- varpsviðtali á þann hátt sem gert var. F R É T T A D Á L K U R Álit frá aganefnd Óslóar-deildar norska lögmannafélagsins

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.