Lögmannablaðið - 01.06.2002, Side 13

Lögmannablaðið - 01.06.2002, Side 13
13L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð og ungmennum og myndbönd af skýrslutökum vegna 12 ára barna og yngri hafa verið talin gild sönnunargögn fyrir dómstólum. Aukinheldur hlýtur lögreglan að geta kallað til sérfróða aðila alveg eins og dómari. Þau ummæli í greinargerð með frumvarpinu vekja furðu mína að réttarör- yggis sé betur gætt við skýrslutöku fyrir dómi en hjá lögreglu þar sem lögreglan heyri undir ákæru- valdið! Til hvers eru lögregluskýrslur? Erum við að hverfa aftur til rannsóknarréttarfarsins? Þá verður að gera stóran greinarmun á því hvort um er að ræða 17 ára einstakling eða 7 ára gamalt barn. Það liggur í augum uppi að meðferð slíkra mála hlýtur að fara eftir aldri viðkomandi og að mínu mati eru efri aldursmörkin alltof há. Það er spurning hvort ekki mætti miða til dæmis við 12 ára aldursmark. Samkvæmt 44. gr. laga nr. 19/1991 er megin- hlutverk réttargæslumanna (rgm.) að gæta hags- muna brotaþola og veita honum aðstoð í málinu, þar á meðal við að setja fram einkaréttarkröfur. Gert er ráð fyrir að rgm. sé viðstaddur skýrslutöku af brotaþola og síðan öll þinghöld í málinu, þó án málfrelsis að meginstefnu til. Að mínu mati er staða rgm. í mörgum tilfellum mjög óskýr og oftar en ekki er um hreint sálgæsluhlutverk að ræða. Mér er til efs að lögfræðingar séu eitthvað sérstak- lega vel til þess hlutverks fallnir og tel reyndar að betra væri að skipa brotaþolum talsmann með sál- fræðimenntun að baki. Til þess að rgm. geti rækt hlutverk sitt af kost- gæfni, eins og ráð er fyrir gert í lögunum, þarf hann að sitja öll þinghöld í málinu. Það er dulítið undarlegt að sitja allan daginn án málfrelsis og lítil lögfræði í því fólgin. Þá kemur stundum fyrir að það „gleymist“ að senda rgm. tilkynningar um þinghöld eða útgáfu ákæru. Ef til vill mun hagur rgm. vænkast í komandi framtíð en einnig mætti velta því upp hvort ekki megi hverfa til fortíðar og treysta dómurum, sækjendum og verjendum fyrir því að meðferð máls verði skammlaus. Rgm. getur eftir sem áður gert bótakröfu og flutt hana fyrir dómi. Eins og að ofan hefur verið rakið þá tel ég í stuttu máli að sá tilgangur laganna, að bæta réttar- stöðu brotaþola hafi náðst, en með allt of miklum viðbúnaði og tilkostnaði. Þann viðbúnað og til- kostnað mætti að ósekju skerða verulega með því að hverfa að meginstefnu til aftur til þess fyrir- komulags sem var, þannig að frumrannsókn yrði alfarið í höndum lögreglu og réttargæslumenn í því formi sem þeir eru nú verði aflagðir.

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.