Fréttablaðið - 22.12.2015, Page 34
Fólk| heilsa
skemmtilegt Gleðin er við völd hjá hlaupurum í síðasta hlaupi ársins.
Jólagleði Jólasveinninn í flottum félagsskap.
Ég hljóp í Mjallhvítarbúningi í fyrra en það er leyndarmál hver búningurinn verður í
ár,“ segir Unnur Þorkelsdóttir leik-
skólakennari en hún tekur þátt í
Gamlárshlaupi ÍR í þriðja sinn í ár.
Þetta verður í fertugasta sinn
sem Gamlárshlaup ÍR fer fram en
hlaupið er jafnan einn af stærstu
hlaupaviðburðum á landinu.
Venja er að hlauparar klæði sig
upp í grímubúninga og segir
Unnur það skapa skemmtilega
stemmingu.
„Það er alltaf ótrúlega gaman
að sjá alla búningana og hug-
myndaflugið hjá fólki. Ég æfi með
hlaupahóp Stjörnunnar og hljóp
með þeim í fyrra. Í þeim hópi voru
nokkrar klæddar sem reggíhljóm-
sveit með dreddlokka og röndótt-
ar húfur. Einhverjir voru klæddir
eins og strumpar. Blái liturinn
þykir dálítið einkennandi fyrir
sjálfstæðisbæinn Garðabæ og þær
voru aðeins að gera grín að því.
Ég ákvað að hlaupa sem Mjallhvít
og kærastinn minn hljóp í víkinga-
búningi. Einn var jólasveinn. Þetta
er alveg frábært hlaup og frábært
að enda árið á þessum nótum. Ég
náði þarna mínum besta tíma í
fyrra. Það var svo gott veður.“
Unnur segir hefð fyrir því að
hlaupahópurinn fari saman í sund
og heita pottinn eftir hlaupið og
fái sér eitthvað gott að borða. Þá
gefist tækifæri til að rifja upp árið
og eiga notalega stund með félög-
unum. Félagsskapinn í hlaupunum
segir hún einstakan og nefnir
hann sérstaklega þegar hún er
spurð hvað það sé sem togi hana
út að hlaupa.
„Fyrst og fremst er það félags-
skapurinn en þar að auki veita
hlaupin mér vellíðan, bæði líkam-
lega og andlega. Ég byrjaði seint
að hlaupa, Laugavegurinn í fyrra
var mitt fyrsta hlaup. Síðan þá hef
ég hlaupið þrjú maraþon, í París,
Kaupmannahöfn og Berlín. Ég
var valin hlaupakona ársins hjá
Stjörnunni og er ákaflega stolt af
þeim árangri. Nú langar mig að
taka þátt í Landvættunum á næsta
ári sem er mikil áskorun.“
Ræst verður í Gamlárshlaupið
klukkan 12 á gamlársdag frá
Hörpunni.
kynJaverur
á hlaupum
Fertugasta gamlárshlaup Ír Unnur Þorkelsdóttir leikskólakennari ætl-
ar að demba sér í Gamlárshlaup ÍR sem fram fer á gamlársdag. Þetta verður í
þriðja sinn sem hún tekur þátt og að sjálfsögðu í búningi.
Flott par Unnur Þorkelsdóttir hljóp
sem Mjallhvít í fyrra. mynd/úr einkasafni
kóngurinn Elvis lét sig ekki vanta í
hlaupið í fyrra.
stemming Fólk hleypur í allavega búningum á gamlársdag sér til skemmtunar. myndir/Ír
Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp
Við notum ekki MSG í súpuna okkar.
Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum
og stórmörkuðum landsins.
Skemmtipakkinn
365.is | Sími 1817
FRÁBÆR DAGSKRÁ
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Tryggðu þér áskrift á 365.is
2
1
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
C
6
-4
4
E
8
1
7
C
6
-4
3
A
C
1
7
C
6
-4
2
7
0
1
7
C
6
-4
1
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
2
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K