Lögmannablaðið - 01.06.2009, Side 6
6 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 2 / 2009
Á aðalfundi Lögmannafélags Íslands
8. maí sl. sagði Lárentsínus Kristjáns
son hrl., formaður að félagið hefði á
síðasta starfsári sínu háð varnar
baráttu til að viðhalda grundvallar
gildum í þjóðfélaginu og löggjöf hér
á landi.
Stjórn félagsins gerði alvarlegar
athugasemdir við starfshætti Alþingis í
desember 2008 vegna lagasetningar í
tengslum við hrun íslenska fjármála-
kerfisins. Fjöldi frumvarpa sem vörðuðu
grundvallarmálefni fóru í gegnum
þingið á miklum hraða og oft á tíðum
var óskað umsagna Lögmannafélagsins
með mjög skömmum fyrirvara. Mikið
álag var á laganefnd félagsins og
þakkaði Lárentsínus nefndinni sérstak-
lega fyrir óeigingjarnt starf.
Atlaga að þagnarskyldu
Lárentsínus sagði að atlaga hefði verið
gerð að grundvallarréttindum þegar
lagt hafi verið til að afnema
þagnarskyldu lögmanna með frumvarpi
til laga um rannsókn á aðdraganda og
orsökum falls íslensku bankanna 2008
og tengdra atburða. Hafi Lögmanna-
félagið meðal annars leitað til forseta
Alþingis og átalið vinnubrögð lög-
gjafans. Tekist hafi að hrinda atlögunni
og kom sem betur fer ekki til þess að
erlend lögmannasamtök þyrftu að beita
sér en það sýndi alvarleika málsins að
slíkt hafi yfirhöfuð þótt koma til
greina.
Störf verjenda og
réttargæslumanna
Lárentsínus sagði að upp á síðkastið
hefðu eldri hugmyndir um að fara
einhvers konar útboðsleið hvað varðar
störf verjenda og réttargæslumanna
verið endurvaktar. Stjórn Lögmanna-
félagsins hefði mótmælt þessu en
viðbúið væri að atlaga yrði gerð að
kerfinu fljótlega sem lögmenn og
félagið þyrftu að bregðast skjótt við.
Mikilvægi alþjóðlegs
samstarfs
Formaðurinn vék jafnframt að erlendu
samstarfi félagsins, einkum á vettvangi
CCBE og við norræn lögmannafélög.
Hann væri sannfærður um að slíkt
samstarf væri nauðsynlegt.
Gagnrýni á störf félagsins
Á fundinum kvaddi Ragnar Hall hrl.,
sér hljóðs og sagðist hafa velt fyrir sér
stöðu og hlutverki Lögmannafélagsins
með vísan til 2. gr. samþykkta félagsins.
Að hans mati hefði félagið ekki rækt
þetta hlutverk sitt með nægilega
ákveðnum hætti á síðasta starfsári.
Ragnar nefndi sérstaklega ákvæði laga
nr. 125/2008 um málshöfðunarbann
gegn fjármálafyrirtækjum en hann hefði
ekki orðið þess var að stjórn Lögmanna-
félagsins hefði mótmælt setningu þeirra
á opinberum vettvangi. Ekki hefði verið
fullnægjandi af hálfu stjórnar félagsins
að fela laganefnd að koma athuga-
semdum á framfæri við Alþingi vegna
frumvarpsins enda hefði rétti þegnanna
til að bera ágreiningsefni undir dóm-
stóla verið ógnað og gæti það ekki stað-
ið neinum nær en lögmönnum að
bregðast við.
Lárentsínus fagnaði því að Ragnar
vekti athygli á þessu málefni og tók
fram að stjórn félagsins hefði vissulega
getað beitt sér með öflugri hætti.
Kosningar
Lárentínus Kristjánsson hrl. var
endurkjörinn formaður LMFÍ. Hörður
Felix Harðarson hrl. og Katrín Helga
Hallgrímsdóttir hdl. voru kosin í stjórn
til tveggja ára en áfram sátu Heimir Örn
Herbertsson hrl. og Hildur Friðleifsdóttir
hdl. Í varastjórn voru kosnir Óskar
Sigurðsson hrl., Jónas Þór Guðmunds-
son hrl. og Ólafur Einarsson hrl. Skoð-
unar menn félagsins voru kosnir Gústaf
Þór Tryggvason, hrl., og Othar Örn
Petersen, hrl., og til vara Þorbjörg I.
Jónsdóttir, hrl.
Í laganefnd félagsins voru kosin Eva
Bryndís Helgadóttir hrl., Gísli G. Hall
hrl., Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl., Viðar
Lúðvíksson hrl., Eva Margrét Ævars-
dóttir hdl., Kristín Benediktsdóttir hdl.
og Jón Elvar Guðmundsson hdl.
Aðalfundur LMFÍ 2009
Varnarbarátta í algleymingi
Lárentsínus Kristjánsson hrl.,
formaður LmFÍ.
Ragnar H. Hall hrl.
2. gr. samþykkta LMFÍ hljóðar svo:
Tilgangur félagsins er
a) að sinna lögboðnu eftirlits- og
agavaldi,
b) að gæta hagsmuna lögmanna-
stéttarinnar,
c) að stuðla að samheldni og góðri
samvinnu félagsmanna,
d) að standa vörð um sjálfstæði
lögmannastéttarinnar,
e) að stuðla að framþróun réttar-
ins og réttaröryggis.