Lögmannablaðið - 01.06.2009, Side 16
16 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 2 / 2009
Pro bono publico
Samfélagsleg skylda
lögmanna?
15 ár frá stofnun
Lögmannavaktarinnar
Í febrúar 1994 hóf Lögmannavaktin
starfsemi og var til að byrja með í
Dómhúsinu við Lækjartorg. Ragnar
Aðalsteinsson, þáverandi formaður
LMFÍ, sagði á blaðamannafundi sem
haldinn var í tilefni þessa að talsvert
væri um að fólk héldi ekki fram rétti
sínum gagnvart einkaaðilum og
stjórnvöldum vegna ókunnugleika og
efnaleysis. Síðan þá hafa lögmenn
komið hvern þriðjudagseftirmiðdag yfir
vetrartímann á skrifstofu félagsins og
veitt almenningi ókeypis ráðgjöf. Um
90 lögmenn skipta á milli sín að koma
og veita þjónustuna en ætla má að virði
hennar sé að minnsta kosti tvær
milljónir á ári.
Til hagsbóta fyrir almenning
Pro bono publico kemur úr latínu og
merkir „til hagsbóta fyrir almenning“.
Pro bono er notað um lagalega ráðgjöf
eða aðra sérfræðiráðgjöf sem er veitt án
þess að ætlast sé til þóknunar. Þannig
má segja að vinagreiðar falli ekki undir
þessa skilgreiningu heldur frekar aðstoð
við óskylda aðila, almenning.
Verðir réttlætisins
Flestir starfandi lögmenn veita öðru
hvoru ráðgjöf sem fellur undir
skilgreiningu pro bono og í einstaka
tilfellum taka þeir að sér málarekstur
undir þessum formerkjum. Það er
misjafnt hvernig lögmenn líta á pro
bono en fæstar lögmannsstofur hafa
ákveðna stefnu varðandi ókeypis
lögfræðiaðstoð og enginn er velta fyrir
sér andvirði þess sjálfboðastarfs. Í
Bandaríkjunum hafa lögmannsstofur
markað sér stefnu varðandi sjálfboða-
liðastörf lögmanna, hvert andvirði
þessarar þjónustu er til samfélagsins og
nota það í markaðssetningu stofanna.
Á Íslandi hafa lögmenn hins vegar ekki
markað sér stefnu, spá ekkert í
andvirðið og líta frekar á það sem
einka mál ef þeir stunda slíkt.
Að styðja samborgarana
Sumir lögmenn álíta að þeir hafi
samfélagslega skyldu vegna sérfræði-
þekkingar sinnar. Í stuttri könnun sem
Lögmannablaðið gerði sagði einn
lögmaður að hann hefði alist upp í
samfélagi sem byggðist á samhjálp:
„Ég hef alla tíð haft pro bono mál.
Lögmenn hafa samfélagslegar skyldur,
að hjálpa og styðja samborgarana og
það er töluverð vinna hjá okkur við að
hjálpa fólki án þess að gefa út reikning
eða ætlast til greiðslu, nánast á hverjum
degi. Svo skoðum við það og metum að
Umfjöllun
Síðastliðin 15 ár hefur Lögmannafélagið staðið fyrir ókeypis
lögfræðiráðgjöf á skrifstofu félagsins vikulega yfir vetrar mánuðina og
aðsókn hefur aldrei verið meiri en nú. Einnig er talsvert um að lögmenn veiti
almenningi ókeypis lögfræðiráðgjöf og taki jafnvel að sér svokölluð pro
bono mál án þess að slíkt hafi farið hátt í fjölmiðlum. En hvað er fyrirbærið
„Pro bono publico“? Hafa lögmenn samfélagslegar skyldur vegna
sérþekkingar sinnar? Hvað segja lögmenn sjálfir?
„Ég hef enga stefnu um pro bono.
Maður lendir oft í að bjarga
einstaklingum þegar byrjað er að
fljóta undan þeim.“
Lögmaður
„Stundum tökum við mál sem eru
réttlætismál og ég tel að stofan eyði
milli 50-100 klukkustundum á ári
í svona vinnu.“
Lögmaður