Lögmannablaðið - 01.06.2009, Side 18
18 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 2 / 2009
Umfjöllun
Indriði Þorkelsson hrl. tók í fyrsta skipti
þátt í Lögmannavaktinni í byrjun júní
sl. Hann hefur starfað sem lögmaður í
tæplega aldarfjórðung og síðast þegar
beðið var um sjálfboðaliða á vaktina
ákvað hann að svara kalli Lögmanna-
félagsins.
„Með þessu vil ég taka þátt í störfum
Lögmannafélagsins og þetta er sjálfsögð
þjónusta sem veitir ekkert af,“ sagði
hann í samtali við Lögmannablaðið.
Hvernig fólk sótti vaktina í þetta sinn?
„Þetta var öll flóran en allir áttu það
sameiginlegt að bera upp lögfræðileg
vandamál, af ýmsum stærðum og
gerðum. Það er greinilegt að efnahags-
hrunið hefur áhrif því þarna kom fólk
með mjög erfiða fjárhagsstöðu. Svo
voru reyndar einnig skilnaðar- og
sifjaréttarmál. Af þeim sex sem sóttu
vaktina þurftu þrír meiri lögmanns-
aðstoð en ég gat veitt með stuttu viðtali.
Hinum gat ég leiðbeint áfram.“
Sinnir þú „pro bono“ í starfi þínu sem
lögmaður?
„Ég hef alltaf gert eitthvað af því. Ég
hygg að það fylgi hreinlega þessu starfi
að þurfa í einhverjum tilvikum að
aðstoða einstaklinga án þess að greitt
sé fyrir þjónustuna. Slík tilvik geta veitt
manni ánægju, þetta eru oft einstakl-
ingar með margvísleg vandmál og
maður öðlast meiri reynslu og fær
þakklæti fyrir aðstoðina ef vel gengur.“
Um 90 lögmenn skipta á milli sín að
koma á skrifstofu LMFÍ einu sinni í viku
yfir vetrarmánuðina til að veita
almenningi ókeypis lögfræðiráðgjöf.
Auk þess eru nokkrir nýir lögmenn
tilbúnir að taka þær vaktir sem losna en
að sögn Ingimars Ingasonar, fram-
kvæmdastjóra LMFÍ, hefur aldrei verið
mikið mál að fá lögmenn til að taka þátt
í þessu starfi Lögmanna félagsins.
„Þetta er gríðarlega mikilvæg og að
sama skapi vel þegin þjónusta,
sérstaklega í dag. Fjöldi fólks stendur
nú frammi fyrir miklum breytingum á
sínum högum en fjárhagslegum erfið-
leikum fylgir oft persónulegur ágrein-
ingur og fleiri vandamál. Þótt lög-
manna vaktinni sé í sjálfu sér ekki ætlað
að leysa þessi vandamál geta lögmenn-
irnir sem henni sinna verið nokkurs
konar vegvísar sem veita upplýsingar
um réttarstöðu hlutaðeigandi og benda
á hvaða leiðir séu í boði,“ segir Ingi-
mar.
Hvernig skipuleggur félagið vaktina?
„Lögmannavaktin er að jafnaði skipu-
lögð í rúmt ár í senn, allt eftir því hversu
margir lögmenn eru skráðir á vakta-
listann hverju sinni. Þegar líður að
endurnýjun sendum við tölvupóst á
sjálfstætt starfandi lögmenn og fulltrúa
þeirra sem komið hafa nýir inn í félagið
frá útgáfu síðasta lista og gefum þeim
kost á að skrá sig fyrir vöktum. Einn
aðalmaður er fyrir hvern þriðjudag og
annar til vara sem mætir aðeins ef
aðalmaður forfallast eða bókanir á
vaktina fara yfir tiltekinn fjölda.“
Er erfitt að fá lögmenn til að koma og veita
þessa þjónustu?
„Nei, í sjálfu sér hefur það ekki verið
mikið mál að fá nýja lögmenn til að
taka að sér vaktir enda koma þeir oftast
einungis einu sinni til tvisvar á ári. Það
er hins vegar töluverð endurnýjun í
þeim mannskap sem sinnir Lögmanna-
vaktinni og fáir sem gefa sig í þetta
lengur en þrjú til fjögur ár.“
Vegvísir í völundarhúsi laganna
Veitir ekki af þjónustunni
ingimar ingason, framkvæmdastjóri
LmFÍ.
indriði Þorkelsson hrl.