Lögmannablaðið - 01.06.2009, Blaðsíða 22
22 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 2 / 2009
Sumarið 2009 er runnið upp og þar sem
eiginlega enginn ætlar að sigla utan þá
er mælt með því að vaka bjarta sumar-
nótt, dansa vikivaka, ganga til fjalla
með flatbrauð og hangikjöt í nesti,
veiða murtu, leita álfa og söngla um sól
og sumaryl í lystigarðinum á Akureyri.
Þá er lífið gott.
Gæðaeftirlit námskeiða
Á vorönn sóttu 154 lögmenn sjö
námskeið sem haldin voru á vegum
félagsdeildar en þrjú námskeið voru
felld niður vegna lélegrar aðsóknar.
Stærsta námskeiðið var „Ný lög um
meðferð sakamála“ sem Eiríkur Tómas-
son kenndi og voru þátttakendur 40.
Að loknum námskeiðum er gert
gæðamat þar sem þátttakendur eru
beðnir um endurgjöf á kennslu og
námsefni. Námskeiðsmatið gefur
mikilvægar upplýsingar um hvernig til
hafi tekist og í þeim undantekningar-
tilfellum þegar þátttakendur hafa verið
óánægðir hefur verið brugðist við með
viðeigandi hætti. Gæðaeftirlit sem þetta
er afar mikilvægt enda er tilgangur
námskeiðahalds fyrst og fremst að veita
félagsmönnum endurmenntun og góða
þjónustu. Þátttakendur eru einnig
beðnir um að koma með hugmyndir að
námskeiðum en stjórn námssjóðs
vinnur síðan með starfsmanni félags-
deildar að undirbúningi námskeiða
næstu annar. Öllum hugmyndum er
tekið fagnandi.
Félagatal á heimasíðu
Heimsóknir á heimasíðu LMFÍ eru að
jafnaði um 14500 á mánuði. Langflestar
þeirra eru vegna leitar að lögmanni en
sjálfstætt starfandi lögmenn og fulltrúar
á lögmannsstofum eru flestir tengdir
Lögmannalistanum sem er ætlaður til
að auðvelda almenningi að finna
lögmann með sérhæfingu. Á heima-
síðunni er einnig listi undir „hand bók
lögmanna“ sem heitir „innanhús-
lögmenn“ en á honum eru allir lög-
menn sem starfa hjá fyrirtækjum og
stofnunum. Þar er einnig að finna allt
félagatalið.
Miðlarinn
Heimasíða LMFÍ miðlar ýmsum
upplýsingum til lögmanna. Meðal þess
sem hefur aukist talsvert undanfarið eru
auglýsingar á upplýsingatorginu
Miðlaranum en þar gefst lögmönnum
kostur á að setja auglýsingar um hús-
næði og störf. Frá og með 1. júní kostar
kr. 5000,- að setja auglýsingu á Miðlar-
ann en sem stendur eru auglýst þar til
leigu skrifstofuhúsnæði.
Njótið sumarblíðunnar
Sumarblíða
Eyrún Ingadóttir
Fréttir frá félagsdeild
Eyrún Ingadóttir
Sumari 2009 er runni upp og ar sem eiginlega enginn ætlar a sigla utan á er mælt me
ví a vaka bjarta sumarnótt, dansa vikivaka, ganga til fjalla me flatbrau og hangikjöt í
nesti, vei a murtu, leita álfa og söngla um sól og sumaryl í lystigar inum á Akureyri. á er
lífi gott.
Gæ aeftirlit námskei a
Á vorönn sóttu 154 lögmenn sjö námskei sem haldin voru á vegum félagsdeildar en rjú
námskei voru felld ni ur vegna lélegrar a sóknar. Stærsta námskei i var „N lög um
me fer sakamála“ sem Eiríkur Tómasson kenndi og voru átttakendur 40.
A loknum ámskei um er gert gæ amat ar sem átttakendur eru be nir um
endurgjöf á kennslu og námsefni. Námskei smati gefur mikilvægar uppl singar um hvernig
til hafi tekist og í eim undantekningartilfellum egar átttakendur hafa veri óánæg ir hefur
veri brug ist vi me vi eigandi hætti. Gæ aeftirlit sem etta er afar mikilvægt enda er
tilgangur námskei ahalds fyrst og fremst a veita félagsmönnum endurmenntun og gó a
jónustu. átttakendur eru einnig be nir um a koma me hugmyndir a námskei um en
stjórn námssjó s vinnur sí an me starfsmanni félagsdeildar a undirbúningi námskei a
næstu annar. Öllum hugmyndum er te i fagnandi.
Félagatal á heimasí u
Heimsóknir á heimasí u LMFÍ eru a jafna i um 14500 á mánu i. Langflestar eirra eru
vegna leitar a lögmanni en sjálfstætt starfandi lögmenn og fulltrúar á lögmannsstofum eru
flestir tengdir Lögmannalistanum sem er ætla ur til a au velda almenningi til a finna
lögmann me sérhæfingu. Á heimasí unni er einnig listi er undir „Handbók lögmanna“ sem
heitir „Innanhúslögmenn“ en á honum eru allir lögmenn sem starfa hjá fyrirtækjum og
stofnunum. ar er einnig a finna allt félagatali .
feb..08 mar..08 apr..08 maí.08 jún..08 júl..08 ágú..08 sep..08 okt..08 nóv..08 des..08 jan..09 feb..09 apr..09 maí.09