Lögmannablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 4

Lögmannablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 4
HJáVeIturéttlætIÐ Manni var kennt að hér á landi gilti ákæruréttarfar og sú er víst enn staðan, svona almennt séð. að undanförnu hefur gamla rannsóknarréttarfarið hins vegar fundið sér farveg framhjá meginstefnu gildandi réttarfars. Þegar ekki þykir henta að leita til þar til bærra yfirvalda um að rannsaka mál, ákæra og fá niðurstöðu hjá sjálfstæðum og óvilhöllum dómstólum, þá er einfaldlega farin önnur leið til að „réttlætið“ nái fram að ganga. Þeir sem til þess hafa vald skipa nefndir til að leiða „sannleikann“ í ljós. Undir hælinn er lagt hvort þeir sem fjallað er um fái komið að sjónarmiðum sínum eða varið hendur sínar að öðru leyti á meðan rannsóknarrétturinn er að störfum. tilurð þessara mála má stundum rekja til þess að einhverjir telja á sér brotið eða einhverjir telja að eitthvað verulega mikið hafi farið úrskeiðis í höndum einhverra annarra. Stundum eru þessar nefndir skipaðar til að „lægja öldur“ eða til þess „leiða sannleikann í ljós“ svo hægt sé að „halda áfram“. nefndarstarfinu er með öðrum orðum frá upphafi markaður sá farvegur að einhver verði áfelldur, einstaklingar eða stofnanir - að öðrum kosti hefur nefndin brugðist hlutverki sínu. Þetta er jú lykilþáttur í öllu rannsóknarréttarfari. ekki má vanmeta það gagn sem hafa má af rannsóknarnefndum hvers konar. Upplýsing mála færir menn vitaskuld nær sannleikanum og þar með réttlætinu. Slíkar nefndir og niðurstöður þeirra geta þó ekki og mega ekki undir neinum kringumstöðum koma í staðinn fyrir að menn leiti réttar síns fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómstólum, þar sem stífar formreglur gilda og mannréttindi sakaðra manna eru í hávegum höfð. Formhlið réttarfars er nefnilega ekki upp á punt. Forminu er ætlað að tryggja að efnisleg niðurstaða mála verði eins nálægt hinu eina rétta og nokkur kostur er. Það er þess vegna varasöm þróun þegar lagt er upp í leiðangra í leit að sannleika og réttlæti út fyrir þann farveg sem markaður er af formreglum réttarfarsins. Þetta á til að mynda við í málum sem verið hafa í umræðunni síðustu misseri þar sem fram koma ásakanir um refsivert athæfi eftir að fyrningarfrestir eru liðnir. Slíkar ásakanir eru mikið áfelli fyrir þann sem þær beinast að og á hann í slíkum tilvikum litla sem enga möguleika á því að bera hönd fyrir höfuð sér. Það hlýtur að vera áhyggjuefni þeim sem láta sig grundvallargildi og -reglur réttarríkisins varða, að sakir séu í sífellt ríkari mæli gerðar upp utan við hefðbundna farvegi réttarríkisins. Þetta hjáveituréttlæti mun leiða til ófarnaðar ef ekki verður spyrnt við fótum. BorGAr ÞÓr einArsson HDl. leiðAri Það sparast pláss og tími með lausnum frá Rými – fyrir alla muni • Ráðgjöf • Hönnun • Sérsmíði • Þjónusta Þtítí típtítítítít ptítítítí og títítí títítí títítítítítítí títítí títítítí - tíytítítí títítítí títítítí! Frábærar lausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki - Ráðgjöf - Lausnir - Þjónusta Skemmuvegur 6 Kópavogur Sími 511-1100 www.rymi.is - Skjalaskápar - Teikningaskápar - Geymsluhillur - Starfsmannaskápar - Lagerhillur - Verslunarhillur Þtítí típtítítítít ptítítítí og títítí títítí títítítítítítí títítí títítítí - tíytítítí títítítí títítítí! Frábærar lausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki - Ráðgjöf - Lausnir - Þjónusta Skemmuvegur 6 Kópavogur Sími 511-1100 www.rymi.is - Skjalaskápar - Teikningaskápar - Geymsluhillur - Starfsmannaskápar - Lagerhillur - Verslunarhillur Afmælis- tilboð á hillum -20% Frábærar lau nir fyrir stofnanir, einstaklinga og fyrirtæki 1936-2011 75 ÁR A 75 ÁR A 75 ÁR A 75 ÁR A METAL-BLÁTT GULL RÝMIS-GRÆNN BRONS Erum flutt í Brautarholt 26, 105 Reykjavík, sími 511-1100 – rymi@rymi.is – www.rymi.is • Geymslu- og lagerhillur • Skjalaskápar á hjólum • Starfsmanna- og munaskápar • Verslunarinnréttingar • Gínur og fataslár • Lagerskúffur og bakkar • Ofnar og hitakerfi • Sorpílát - úti og inni

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.