Lögmannablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 6

Lögmannablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 6
6 lÖgmaNNaBlaÐIÐ tBl 02/11 UMfJöllUn mikil fjölgun félagsmanna samsetning (%) félagsmanna í lmfí eftir því hvar þeir starfa. 8% fjölgun milli ára Félagsmenn í Lögmannafélagi Íslands eru nú 892 og hefur fjölgað um 66 frá fyrra ári eða um 8%. Hefur félagsmönnum ekki fjölgað jafn mikið síðan milli áranna 2000 til 2001, en þá fjölgaði þeim um rúm 11%. af þessum 892 félagsmönnum eru héraðsdómslögmenn 612 og hæstaréttarlögmenn 280. alls eru 400 lögmenn sjálfstætt starfandi og 187 lögmenn starfa sem fulltrúar sjálfstætt starfandi lögmanna. innanhússlögmenn hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum eru 264 talsins, þar af 81 hjá ríki eða sveitarfélögum og 183 hjá fyrirtækjum og félagasamtökum. Fjöldi lögmanna sem ekki stunda lögmannsstörf sökum aldurs, sjúkleika eða af öðrum ástæðum er 41 talsins. grafið sýnir fjölgun félagsmanna í lmfí á tímabilinu 2001-2011. skipting (%) kvenkyns félagsmanna í lmfí eftir því hvar þeir starfa. Konur nú 27,2% félagsmanna af félagsmönnum í Lögmannafélaginu eru 243 konur. Þar af eru 35 hæstaréttarlögmenn. Sjálfstætt starfandi konur í lögmannsstétt eru 75 talsins og 70 starfa sem fulltrúar sjálfstætt starfandi lögmanna. Hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum starfa 96 konur sem innanhússlögmenn, þar af 34 hjá ríki eða sveitarfélögum og 62 hjá fyrirtækjum og félagasamtökum. Þá eru 2 kvenkyns lögmenn hættir störfum. konum hefur fjölgað jafn og þétt undanfarin ár og er hlutfall þeirra af heildarfjölda félagsmanna komið í 27,2%, samaborið við 19% árið 2002. grafið sýnir þróun kynjahlutfalls félagsmanna í lmfí á tímabilinu 2002-2011.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.