Hagskýrslur um skólamál - 01.01.1967, Síða 7
FORMiLI .
Preface.
Hagstofan gaf á sínum tíma át skýrslur um bamafncðslu árin 1909-14, 1914-15 og
1916-20 (hagskýrsluhefti nr. 16, 30 og 34). Slðan hafa ekki komið skýrslur frá henni um
þessi efni fyrr en nú, að birtar eru í þessu hefti yfirlitstöflur um barnafræðslu frá
hausti 1920 og fram að skdlaári 1966/67.
Efniviður í barnafræðsluskýrslur 1920-66 er að meginhluta til fenginn úr árlegum
skýrslum bamaskdla til fræðslumálastjdra á þar til gerðum eyðublöðum. Töflur fyrir árin
1920-30 voru gerðar á sínum tíma á Fiæðslumálaskrifstofunni, og þær voru siðar fullunnar
á Hagstofunni. Frá ogmeð skólaárinu 1950/31 hefur Fræðslumálaskrifstofan fært niðurstöður
árlegra skýrslna bamaskóla inn í þar til gerðar bækur, og hafa birtingartöflur verið
samdar eftir þeim á Hagstofimni.
Tafla 20, um rekstrarkostnað bamaskóla 1956-65, er byggð á gögnum, sem f jármála-
eftirlitsmaður skóla lét Hagstofunni í tá.
I spamarskyni og vegna ýmissa annmarka á að koma út prentuðum ritum, hefur verið
ákveðið að stofna til nýs útgáfuflokks ("aukaflokks") Hagskýrslna Islands, sem í eru fjöl-
rituð rit £ lcvartbroti. Rit í þessum nýja útgáfuflokki eru vélrituð á Hagstofunni, ýmist
beint á prentspjöld ("master") til fjölritunar, eða á pappírsörk, ef smækka þarf síðu nið-
ur 1 hið fastákveðna brot. Fer sú sinækkun fram um leið og síðan er færð á prentspjald til
fjölritunar. - Fjölritun, hefting o.fl. er hins vegar unnið á fjölritunarstofu.
Rit í aukaflokki Hagskýrslna verða ekki frábrugðin ritum í aðalflokki að öðru leyti
en því, að þau em fjölrituð og í öðm broti. Uppsetning efnis og önnur tilhögun verður
sem nasst því, sem er í ritum í aðalflokknum.
Rit, sem gefin hafa verið út í Hagskýrslum Islands á undanfömum árum, halda áfram
að koma út í því formi. I nýja útgáfuflokknum verða því aðallega rit um efni, sem hefur
ekki verið fjallað um áður í hagskýrsluhefti.
Þetta hefti er fyrsta ritið í hinum nýja útgáfuflokki Hag3kýrslna Tslands. Upplag
er 1300 eintök og verð hvers heftis kr. 60,00.
Hagstofa Islands, í ágdst 1967
Klemens Tryggvason