Úr þjóðarbúskapnum - 01.07.1957, Blaðsíða 15
BYGGINGARFRAMKVÆMDIR 1945—1955
5. Opinberar byggingar
Til opinberra bygginga teljast í töflura þess-
um eftirtaldar framkvæmdir:
1. Skólar.
a. barnaskólar, gagnfræðaskólar, héraðs-
skólar, lmsmæðraskólar, menntaskólar,
íþróttaskólar, iðnskólar, dagheimili o.
þ. h.
b. íþróttahús.
c. opinberar vísindastofnanir, söfn o.þ.h.
2. Sjúkrahús.
a. sjúkrahús, heilsuhæli, fávitahæli o.þ.h.
b. fangahús.
3. Félagsheimili.
a. félagsheimili, þ. e. byggingar, sem njóta
styrks úr félagsheimilasjóði,
b. kirkjur, kapellur.
c. sundlaugar, sundhallir.
Ekki hefur þótt mögulegt að telja fram sér-
staklega allav þær byggingarframkvæmdir,
sem fram liafa farið á vegum rikis, bæjar- og
sveitarfélaga og stofnana þeirra, þar sem erf-
itt væri að gera það á tæmandi hátt vegna
upplýsingaskorts. Þar af leiðandi eru ibúða-
byggingar á vegum hins opinbera taldar með
íbúðum í töflu II A—G, póst- og símahús eru
talin með verzlunar- og skrifstofubyggingum,
svo og allar skrifstofubyggingar opinberra að-
ila. Framleiðslufyrirtæki á vegum opinberra
aðila eru talin með öðrum framleiðslufyrir-
tækjum.
Flokkun opinberra bygginga á hina þrjá liði,
skóla, sjúkrahús og félagsheimili, skal nánar
skýrð.
Ef undirflokkarnir liefðu verið settir i töflu-
form sérstaklega, hefðu töflurnar orðið óhæfi-
lega margar, enda oft fátt um byggingar innan
hvers einstaks þeirra. íþróttahús eru hér talin
með skólum vegna þess að mörg þeirra eru
byggð í sambandi við skóla eða i þeim. Opin-
berar visindastofnanir og söfn standa i eðli
sínu nálægt skólum.
Fangahús hafa hér verið talin með sjúkra-
húsum, enda tæpast hægt að finna flokk, er
nær þeim stendur.
Kirkjur og kapellur eru i eðli sínu félags-
heimili og teljast þvi hér til þeirra. Sama má
segja um sundlaugar og sundhallir. Á tak-
mörkum er, hvort hægt sé að telja sundlaugar
til bygginga i þcim skilningi, sem lagður er i
það orð i þessum töl'lum. En i fyrsta lagi er
erfitt að aðskilja sundlaugar og sundhallir, og
í öðru lagi eru sundlaugar oft meira og minna
vfirbyggðar a. m. k. eru hjá þeim búningsklefar
og oft yfirbyggð böð. Einnig hefur verið bvggt
yfir fjölda sundlauga með tið og tima.
Litlu er að bæta við það, sem sagt hefur
verið þegar. Þó má segja, að tölurnar um fé-
lagsheimili ættu að vera áreiðanlegar, þar sem
íþróttafulltrúi hefur haldið góðar skýrslur um
þau. Sama má segja um sundlaugar, sem einnig
Iieyra undir liann. Lítið hefur verið bvggt af
kirkjum og kapeilum, og er þar af leiðandi
ekki erfitt að fylgjast með þeim. Sjúkrahús
eru einnig fá og mjög auðvelt að fylgjast með
byggingu hinna stærri þeirra. Skólarnir eru
aftur á móti mjög margir, og bj'gging þeirra
stendur oft yfir i mörg ár. Teknir voru hér í
töflurnar þeir skólar, sem sæmilegra upplýs-
inga var hægt að afla um, en aðrir skildir
eftir til að forðast tvitalningu, ef fram verða
taldir síðar til Innflutningsskrifstofunnar.
Verið getur því, að einhverjar skólabyggingar
komi ekki fram hér, þótt þær hefðu átt að
gera það.
Rúmmál þeirra opinberra bygeinga, sem hér
eru taldar, má telja allnákvæmt enda fengið
úr skýrslum og öðrum upplýsingum frá við-
komandi opinberum aðilum.
Skýringar á merkjum, sem notuð eru í töflunum
táknar, að engum byggingum hafi verið lokið.
... táknar, að einhverjum byggingum hafi verið lokið, en nái ekki að vera hálf sú eining,
sem notuð er í töflunum (þ. e. nái ekki að vera hækkuð upp í heila einingu).
E.U. táknar, að engar upplýsingar séu fyrir hendi.
9