Fréttablaðið - 15.12.2014, Side 10
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
www.volkswagen.is
Volkswagen atvinnubílar
Einstakt
tækifæri
Nú í desember gefst einstakt tækifæri til að
kaupa sýningar- og reynsluakstursbíla
hjá VW atvinnubílum á góðum kjörum.
Kynntu þér málið hjá
sölufulltrúum okkar
á Laugavegi 174.
Atvinnubílar
Til afgreiðslu strax
Takmarkað magn
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Ljós og hiti
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
SHA-207
Vinnuljóskastari
á telescope fæti
400W ECO pera
5.690
SHA-218-28E
Vinnuljóskastari ECO perur
2x400W tvöfaldur á fæti
6.890
SHA-0203
Vinnuljóskastari
m handf 400W ECO pera
1,8m snúra
3.490
T38 Vinnuljós
5.290
Rafmagnshita-
blásari 3Kw 1 fasa
8.990 SHA-8083 3x36W Halogen16.990
SHA-2625
Vinnuljóskastari Rone 28W
m. innst. blár. 1,8 m snúra
6.990
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt
bágstadda fjölskyldu um til dæmis hæ nu, geit, brunn,
matjurtagarð, menntun eð a aðrar nauðsynjar. Gefðu
skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis.
GEFÐU GJÖF SEM GEFUR
www.gjofsemgefur.is
P
IP
A
R
\T
B
W
A
• S
ÍA
PERÚ Loftslagsráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í Líma, höfuðborg
Perú, lauk í gær. Lok ráðstefnunn-
ar drógust um tvo daga þar sem
fulltrúum þjóðanna á fundinum
gekk illa að komast að samkomu-
lagi um hvernig takast eigi á við
loftslagsbreytingar og afleiðingar
þeirra.
Í kjölfar samkomulagsins þurfa
ríki heimsins að leggja fram áætl-
anir fyrir apríl á næsta ári um
hvernig þau ætli sér að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda
innan lands. Þau plön munu leggja
grunninn að nýjum loftslagssamn-
ingi Sameinuðu þjóðanna sem
undir rita á í París að ári.
Samningurinn sem undirrita á að
ári markar tímamót að því leyti að
í fyrsta sinn í sögunni verða allar
þjóðir skikkaðar til að draga úr
útblæstri. Það er töluverð breyting
frá Kyoto-bókuninni, sem undirrit-
uð var árið 1997, en hún einblíndi
aðeins á fjáð ríki. Bandaríkin eiga
til að mynda enn eftir að undir-
rita bókunina en aðeins Kína losar
meira af gróðurhúsalofttegundum
en Bandaríkin.
„Þrátt fyrir þessa lendingu er
enn langur vegur eftir í nýjan
samning að ári,“ segir Laurent
Fabius, utanríkisráðherra Frakk-
lands. Fundurinn í Líma lengdist
Samkomulagi náð á
framlengdum fundi
Fulltrúar 194 þjóða funduðu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Líma í
Perú. Illa gekk að komast að niðurstöðu og dróst fundarhald um tvo daga. Fundar-
menn segjast sáttir en umhverfisverndarsinnar telja ekki nógu langt gengið.
FUNDARMENN
194 þjóðir tóku
þátt í Líma. Hér
sést fólk lesa yfir
plagg það er síðar
var samþykkt.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
um tvo daga þar sem óralangt var
á milli sjónarmiða ríkra og fátækra
þjóða. Upphafleg markmið þóttu of
íþyngjandi fyrir smærri þjóðir.
„Við erum sátt. Við fengum það
sem við vildum,“ segir Prakash
Javedekar, umhverfisráðherra Ind-
lands. Hann segir að enn séu ríkar
skyldur á herðum ríkra þjóða að
fara fyrir í baráttunni gegn lofts-
lagsbreytingum. Ábyrgðin á hnatt-
rænni hlýnun sé þeirra og það eigi
að koma í þeirra hlut að laga skað-
ann sem þær ollu.
„Þetta er ágætis veganesti fyrir
fundinn í París,“ segir Miguel
Arias Canete, loftslags- og orku-
málastjóri Evrópusambandsins.
Vonast sé til að næstu skref muni
minnka öfgar í veðri og hægja á
hækkun sjávaryfirborðs.
Umhverfisverndarsamtök segja
ekki nógu langt gengið og frekari
breytinga þörf sé ef ekki á að fara
illa. Tillagan sem lagt var upp með
í upphafi hafi verið veik og orðið
veikari eftir því sem á leið.
Fjölmargir aðgerðasinnar lögðu
leið sína til Perú til að þrýsta á
fundarmenn að bregðast við. Þeirra
á meðal var hópur frá Greenpeace
sem kom fyrir skilaboðum á Nazca-
línunum. Línurnar eru um 1.500
ára gamlar og á heimsminjaskrá
UNESCO. Málið vakti töluverða
reiði og báðust meðlimirnir loks
afsökunar á athæfinu.
johannoli@frettabladid.is
VEÐUR Djúp lægð gekk yfir Norð-
ur- og Austurland í gær. Þar sem
veðrið var verst náði vindhraði
fellibylsstyrk og ofankoma var
töluverð.
Veðurofsinn var mestur í Ham-
arsfirði en þar mældust vindhviður
upp á 67 m/sek. áður en sjálfvirkur
veðurmælir gaf sig. Meðalvindhraði
í firðinum var tæpir 40 m/sek.
Björgunarsveitarmenn víða um
land þurftu að fara í útköll sökum
veðursins. Aka þurfti með barns-
hafandi konu frá Dalvík inn á
Akureyri. Einnig þurfti að aðstoða
ökumenn á Steingrímsfjarðar-
heiði, í Námaskarði, Víkurskarði
og Mikladal og við Reynisfjall svo
einhverjir staðir séu nefndir.
Á Akureyri gekk illa að ryðja
götur og sáu björgunarsveitarbílar
því um að koma heilbrigðisstarfs-
fólki í og úr vinnu. Sömu sögu er að
segja frá Egilsstöðum og á Reyðar-
firði var starfsfólk ferjað í álverið.
Þegar Fréttablaðið fór í prentun
var enn kolófært á þessum slóðum
og mokstur hvergi hafinn. - jóe
Vegir eru enn ófærir eftir að ofsaveður gekk yfir Norður- og Austurland í gær:
Veðurmælir gaf sig vegna vinds
AKUREYRI Ófært er norðan- og austan-
lands. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN