Fréttablaðið - 17.12.2014, Side 4
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
REYKJAVÍKURBORG Skrifstofa
eigna og atvinnu þróunar
Reykjavíkur hefur fengið heim-
ild borgarráðs til að semja við
Faxaflóahafnir um kaup á 20
hekturum lands í Gufunesi.
Fyrir vari er um endanlegt
kaupverð.
Viðræður hafa verið um kaup-
in á landinu sem skiptist á þrjár
lóðir, meðal annars lóð Áburðar-
verksmiðjunnar. Borgin á öll
hús á landinu. Lóðamat landsins
er 211 milljónir króna.
„Kaupin eru liður í áformum
Reykjavíkurborgar að breyta
landnotkun á svæðinu í sam-
ræmi við núgildandi aðalskipu-
lag,“ segir í greinar gerð til
borgarráðs. - gar
Ræða við Faxaflóahafnir:
Borgin eignast
Gufuneslandið
GUFUNES Breyta á notkun landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FJÖLMIÐLAR Stjórn Árvakurs,
útgáfufélags Morgunblaðsins,
hefur ráðið Harald Johannes-
sen, ritstjóra blaðsins, í starf
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins frá næstu áramótum.
Haraldur gegnir áfram
starfi ritstjóra samhliða fram-
kvæmdastjórastarfinu, sam-
kvæmt mbl.is. Óskar Magnús-
son, útgefandi blaðsins, hættir
um áramótin og staða útgefanda
verður lögð niður. - hg
Breytingar á Morgunblaðinu:
Ritstjóri stýrir
rekstri blaðsins
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
VINDASAMT Í dag má víða búast við strekkingi eða allhvössum vindi en hvasst
verður um tíma syðst. Úrkomulítið NA-til en annars snjókoma eða éljagangur og
rigning allra syðst. Á morgun lægir en áfram verður strekkingur á Vestfjörðum.
-1°
7
m/s
0°
15
m/s
0°
12
m/s
4°
18
m/s
10-15 m/s
NV-til,
annars
víða hæg
breytileg
átt.
13-18 m/s
á Vest-
fj örðum
og syðst,
annars
hægari.
Gildistími korta er um hádegi
10°
21°
-1°
12°
13°
2°
8°
5°
5°
21°
13°
16°
16°
15°
9°
6°
5°
8°
-1°
11
m/s
3°
15
m/s
0°
8
m/s
0°
7
m/s
1°
11
m/s
0°
10
m/s
-6°
9
m/s
1°
0°
-2°
-2°
-1°
-3°
-2°
-1°
-3°
-1°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FÖSTUDAGUR
Á MORGUN
ALÞINGI Þingmenn stjórnarand-
stöðunnar gagnrýndu stjórnar-
meirihlutann harðlega í gær fyrir
hugmyndir um að leggja niður
Bankasýslu ríkisins. Stofnunin var
ekki á fjárlögum þegar drögin voru
kynnt og var reyndar ekki bætt inn
fyrr en við þriðju umræðu um fjár-
lagafrumvarpið.
Samkvæmt frumvarpi sem er
í smíðum í fjármálaráðuneytinu
stendur til að fella Bankasýsluna
undir fjármála- og efnahagsráðu-
neytið. Oddný G. Harðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, segir
þetta óásættanlegt fyrirkomulag,
þegar til stendur að selja eignarhluti
ríkisins á næsta ári. „Slík ráðstöf-
un er auk þess ekki til þess fallin að
auka traust og trúverðugleika hvað
varðar meðferð eignarhluta ríkisins
í fjármálafyrirtækjum með nein-
um hætti. Auk þess hefur engum
starfsmanni Bankasýslunnar verið
sagt upp og því óvíst hvaðan eigi að
greiða laun starfsmannanna á árinu
2015,“ sagði Oddný. Hún gagnrýndi
það sem hún kallaði „lausatök um
meðferð eignarhluta ríkisins í fjár-
málafyrirtækjum“. Oddný sagði að
síðdegis í fyrrakvöld hefði minni-
hlutinn beðið um fund vegna mál-
efna Bankasýslunnar og þurft að
ganga svolítið eftir þeim fundi
þegar allt útlit var fyrir að það ætti
að fella stofnunina inn í fjármála- og
efnahagsráðuneytið án þess að það
væri til lagaumgjörð um það.
„Nú liggur hér fyrir breytingar-
tillaga þar sem gert er ráð fyrir að
Bankasýslan starfi í að minnsta
kosti hálft ár,“ sagði Oddný. Hún
vildi vita hvað hefði gerst á fundi
fjárlaganefndar síðdegis í fyrra-
kvöld sem varð til þess að ákveðið
var að leggja áfram pening í Banka-
sýsluna og halda áfram með hana.
Bryndís Pétursdóttir, þingmaður
Bjartrar framtíðar, tók undir með
Oddnýju. Hún gagnrýndi að ekki
hefði verið gert ráð fyrir framlagi
til Bankasýslunnar á fjárlögum og
sagði vinnubrögðin ekki til eftir-
breytni.
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár
laganefndar, sagði það alveg skýrt
hvað hefði breytt afstöðu meiri-
hlutans í málinu. Það hefði komið
fram í máli fulltrúa fjármálaráðu-
neytisins. „Það var ekki komið fyrir
þingið það frumvarp sem verið var
að vonast eftir um niðurlagningu
Bankasýslunnar. Eða það frumvarp
sem breytir raunverulega hlutverki
Bankasýslunnar,“ sagði Vigdís.
Til að hafa breytingarnar á
Bankasýslunni réttar samkvæmt
lögum hefði verið lögð fram tillaga
um að farið yrði í vinnu við frum-
vörp um breytingar á Bankasýsl-
unni, en stofnunin framlengd til 1.
júní á meðan verið væri að koma
þeim frumvörpum í gegnum þingið
sem þyrfti. jonhakon@frettabladid.is
Bankasýsla ríkisins starfar
áfram í hálft ár til viðbótar
Stjórnarliðar voru harðlega gagnrýndir í gær fyrir því hvernig staðið hefur verið að málefnum Bankasýsl unnar.
Verkefni hennar munu færast inn í fjármálaráðuneytið á miðju næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi.
Bankasýsla ríkisins var stofnuð með
lögum árið 2009, eftir að íslenska
ríkið hafði eignast hluti í stóru
viðskiptabönkunum þremur og
nokkrum sparisjóðum. Bankasýslan
heldur utan um hluti ríkisins í
Landsbankanum, Arion og Íslands-
banka. Að auki fer stofnunin með
hlut ríkisins í Sparisjóði Bolungar-
víkur, Sparisjóði Norðurlands, Spari-
sjóði Vestmannaeyja og Sparisjóði
Norðfjarðar. Ljóst er að eignir
Bankasýslunnar munu minnka
innan fárra ára. Til stendur að selja
hlut ríkisins í Landsbankanum og
að auki hefur verið rætt um sölu á
hlutum í Arion og Íslandsbanka.
HVAÐ ER BANKASÝSLA
RÍKISINS?
Á ALÞINGI Oddný
G. Harðardóttir
gagnrýndi meiri-
hlutann harðlega
í gær vegna mál-
efna Bankasýsl-
unnar.
88.060.000
kíló var heildarafli íslenskra
fiskiskipa í nóvember.
Aflinn nú er 7,6 prósentum meiri
en á sama tíma í fyrra sem var þá
81.850 tonn.
FJÖLMIÐLAR Magnús Geir Þórðar-
son útvarpsstjóri segir það mat
bæði stjórnar og framkvæmda-
stjórnar RÚV að 3.680 milljónir
króna sem RÚV fær frá ríkissjóði
á næsta ári dugi ekki fyrir stofn-
unina til að rækja lögbundið hlut-
verk sitt.
Framlagið muni ekki duga
nema fallið verði frá lækkun
útvarpsgjalds og að útvarps-
gjaldið renni óskert til hennar
en að teknu tilliti til verðlags-
breytinga er framlag ríkisins að
hækka um 209 milljónir króna.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar
2 í gærkvöld.
„Að sjálfsögðu er eðlilegt að
allar stofnanir gæti fyllstu hag-
kvæmni en eins og þjóðin hefur
fylgst með á síðustu árum þá
hefur gríðarlega mikið verið hag-
rætt í starfsemi Ríkis útvarps-
ins,“ sagði Magnús, spurður
hvort RÚV þurfi ekki bara að
sníða sér stakk eftir vexti.
Magnús upplýsti jafnframt að
tilboð hefði borist í útvarpshúsið,
sem hefur verið verðlagt á fimm
milljarða króna.
„Það hefur ekki verið tekin
nein ákvörðun um það en við
höfum fengið fjölmargar fyrir-
spurnir og óskir um viðræður.
Líka tilboð, ákveðin tilboð, en
við höfum svarað þeim öllum á
sama veg. Að það sé ekki tíma-
bært enda þegar að því kemur þá
verður það gert í opnu ferli þar
sem allir hafa jafnan aðgang að
því að gera tilboð.“
- þþ/gb
Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri segir 3.680 milljóna króna framlög ríkisins ekki nógu há:
Dugi ekki til lögbundinna verkefna RÚV
MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON Útvarps-
stjóri ekki sáttur við afgreiðslu stjórn-
valda á framlögum til stofnunarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það var ekki komið fyrir þingið það frumvarp sem
verið var að vonast eftir um niðurlagningu Bankasýsl-
unnar. Eða það frumvarp sem breytir raunverulega
hlutverki Bankasýslunnar.
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar.