Fréttablaðið - 17.12.2014, Page 8
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
7
21
14
1
2/
14
Hraunbær 123 | s. 550 9800 | skatar.is
Gæðajólatré - sem endist ár eftir ár!
Þessi jólatré eru í hæsta gæðaflokki auk
þess að vera mjög falleg og líkjast þannig
raunverulegum trjám. Einföld samsetning.
Fæst einnig í Hagkaupi
Smáralind, Skeifunni og Garðabæ.
• Ekkert barr að ryksuga
• Ekki ofnæmisvaldandi
• 12 stærðir (60-500 cm)
• Íslenskar leiðbeiningar
• Eldtraust
• Engin vökvun
• 10 ára ábyrgð
• Stálfótur fylgir
Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 09-18
Laugardagar kl. 11-18
Sunnudagar kl. 12-18
Falleg jólatré
SAMGÖNGUMÁL Vinna við kaup og
smíði nýs Herjólfs á að hefjast í upp-
hafi næsta árs samkvæmt nefndar-
áliti meirihluta fjárlaganefndar.
Unnið verður að fjármögnun sam-
hliða undirbúningi útboðs. Fyrir-
hugað er að bjóða út verkið á fyrri
hluta ársins 2015.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vest-
mannaeyjabæjar, segir nú vera að
rofa til eftir um sex ára baráttu
Vestmannaeyinga við að fá betri
tengingu við fastalandið.
„Frá 2008, þegar áformum um
smíði nýs Herjólfs var slegið á
frest, höfum við barist fyrir að fá
nýja ferju inn á áætlun. Við höfum
haft ákveðnar áhyggjur af þessu
verkefni, eyjaskeggjar. Áformað er
að smíða nýtt skip með minni flutn-
ingsgetu í hverri ferð. En með því að
fara fleiri ferðir mun flutningsgeta
bæði á fólki og bifreiðum aukast um
70 prósent,“ segir Elliði.
Nokkur vandræði hafa fylgt
Landeyjahöfn síðustu ár og hefur
oft og tíðum verið ófært inn í
höfnina af ýmsum sökum. Hefur
Herjólfur því oft þurft að sigla til
Þorlákshafnar með tilheyrandi
tímatapi.
Ný ferja á að geta átt auðveldar
um vik með að sigla til Landeyja-
hafnar og því verður mikill tíma-
sparnaður af nýrri ferju.
Elliði segir hægt að sigla fleiri
ferðir vegna þess að rekstrar-
kostnaður við nýja ferju sé mun
lægri en við núverandi skip.
„Við fögnum því auðvitað vel og
innilega að nú sé málið komið á
einhvern rekspöl. Ástandið í sam-
göngumálum við Vestmanna eyjar
er a lgjörlega
ótækt og illa
farið með tæki-
færin sem fyrir
eru hér í Eyjum.
Einnig bendir
allt til þess að
nýja ferjan sem
verður smíðuð
spari um 400
milljónir á ári í rekstrarkostnað,
samanborið við gamla Herjólf,“
segir Elliði.
Guðlaugur Þór Þórðarson, vara-
formaður fjárlaganefndar, segir
samgöngur til og frá Eyjum skipta
bæði heimamenn og atvinnulífið
miklu máli.
„Þessi texti er kominn til af
ástæðu og skiptir miklu máli að
ríkis stjórnin vinni að þessu mark-
miði. Auðvitað á eftir að sjá hvað
kemur úr útboði en samgöngur
milli lands og Eyja verða að vera
í lagi. Ferðaþjónustan hefur vaxið
gríðar lega í Eyjum og með réttu má
tala um byltingu á svæðinu. Að því
sögðu, og í samhengi við að við vilj-
um dreifa ferðamönnum sem mest
um landið, þá verða samgöngurnar
að vera í lagi,“ segir Guðlaugur Þór.
sveinn@frettabladid.is
Nýr Herjólfur í útboð
Smíði og útboð nýs Herjólfs fer af stað á fyrri hluta næsta árs ef marka má tillögu
meirihluta fjárlaganefndar. Gæti sparað allt að fjögur hundruð milljónir árlega.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra lagði málið fyrir ríkisstjórn í gær. Í
minnisblaði ráðherra kemur fram að umtalsverður olíukostnaður sparist
með því að taka í notkun nýja ferju sem gert er ráð fyrir að sigli til
Landeyjahafnar árið um kring og að jafnframt lækki mjög kostnaður
við dýpkun hafnarinnar. Með þessu sparast fjármunir sem falla til vegna
siglinga Herjólfs til Þorlákshafnar. Reglulegar siglingar til Landeyjahafnar
eru mikil samgöngubót milli lands og Eyja. Samtals er gert ráð fyrir að
rekstur nýrrar ferju lækki um allt að fjögur hundruð milljónir króna.
HERJÓLFUR RÆDDUR Í RÍKISSTJÓRN
ELLIÐI VIGNISSON
HERJÓLFUR Nýr
Herjólfur mun
sigla milli lands
og Eyja árið 2017.