Fréttablaðið - 17.12.2014, Page 10
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Magimix matvinnsluvélar, blandarar og safapressur.
Kaffivélar fyrir Nespresso og kaffi frá Caffé Vergnano
fyrir Nespressovélar.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
JÓLATILBOÐ
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gefðu töfrandi stundir í jólapakkann. Kortið
er í fallegum umbúðum, gildir á sýningu
að eigin vali og rennur aldrei út.
VEÐUR Óveður gekk yfir landið í
gær með tilheyrandi ofankomu.
Um tíma var öllum leiðum til og
frá höfuðborginni lokað. Nær
öllu innanlandsflugi var aflýst
snemma morguns en vonast er
til þess að það geti hafist á ný í
dag.
„Það er fyrirtækjanna að
meta hvort þau lendi eður ei,“
segir Guðni Sigurðsson, tals-
maður Isavia, en þrjú erlend
félög felldu niður flugferðir til
landsins. Fólki gekk þó illa að
koma sér til og frá flugvellinum
þar sem Reykjanesbrautin var
lokuð fram eftir degi.
„Flugi til Kaupmannahafnar
seinkaði mjög þar sem áhöfnin
átti í erfiðleikum með að ferðast
á völlinn,“ segir Guðjón Arn-
grímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair. Hann segir að öll
flug félagsins hafi farið af stað
en talsvert hafi verið um tafir
en þó ekkert umfram það sem
viðbúið er þegar færðin er slík.
Færð var slæm í efri byggð-
um höfuðborgarsvæðisins og
brugðu einhverjir á það ráð að
skilja bíla sína eftir mannlausa
eftir að hafa fest þá í fönninni.
Tafði það snjómokstur talsvert.
Á annað hundrað björgunar-
sveitarmenn sinntu út köllum
sem flest sneru að því að að-
stoða ökumenn sem lent höfðu í
klandri og að aðstoða lögreglu
við lokanir á vegum. Þó var eitt-
hvað um útköll vegna fjúkandi
hluta og björgunarmenn aðstoð-
uðu leikskólabörn í Guðríðar-
skóla við að komast leiðar sinn-
ar. johannoli@frettabladid.is
Færð á vegum spilltist
og flug lá niðri í gær
Allar leiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu voru lokaðar fram eftir gærdeginum.
Innanlandsflug féll niður og röskun varð á millilandaflugi. Margir ökumenn lentu
í erfiðleikum og var fjöldi yfirgefinna ökutækja snjóruðningsmönnum til trafala.
FASTUR Fjöldi ökumanna lenti í klandri sökum ófærðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FERÐAMENN Þessir ferðamenn skemmtu sér í veðurofsanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á LEIÐ ÚR SKÓLA Foreldrar voru beðnir um að láta börn sín ekki fara fylgdarlaus
heim úr skólum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNSÝSLA Ekki þykir sannað
að Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra, hafi látið
ómálefnaleg eða ólögmæt sjónar-
mið ráða þegar ákveðið var að skipa
Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur
sem framkvæmdastjóra Lánasjóðs
íslenskra námsmanna.
Skipanin var umdeild á sínum
tíma enda hafði stjórn LÍN kom-
ist að þeirri niðurstöðu að Kristín
Egilsdóttir, ein af umsækjendum,
væri hæfari en Hrafnhildur Ásta
til að gegna embættinu. Kristín
stefndi íslenska ríkinu vegna skip-
anarinnar. Fyrir dómi hélt lög-
maður íslenska ríkisins því hins
vegar fram að ráðherra hefði lagt
meiri áherslu en hann teldi stjórn
Lánasjóðsins hafa gert á þekkingu
á stjórnsýslulögum og stjórnsýslu
ríkisstofnana. Ráðherra hefði lagt
meiri áherslu á þekkingu á fjár-
málum í ríkisrekstri, þar á meðal
fjárlagagerð og stefnumótun.
Dómari féllst á málatilbúnað rík-
isins og kvað upp sýknudóm sinn í
málinu í gær. - jhh
Ríkið var sýknað vegna framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna:
Ráðherrann mátti skipa í starf
Save the Children á Íslandi
EFTIR DÓMINN Lögmaður ríkisins, til
hægri á myndinni, taldi að ráðherra
hefði mátt leggja meiri áherslu á þekk-
ingu á stjórnsýslulögum en stjórn LÍN
gerði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN