Fréttablaðið - 17.12.2014, Side 16
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 16
Þúsundir landsmanna stunda skotveiði sér til
ánægju og yndisauka. Í þessari bók, sem er
sjálfstætt framhald af Skotveiði í máli og myndum
sem kom út árið 2009, er komið víða við og
stemmning skot veið innar svífur yfir vötnum.
Nokkrir af snjöllustu skotveiði mönnum landsins
segja sögur, rifja upp skemmtileg atvik og miðla af
reynslu sinni. Einnig eru í bókinni eldri frásagnir
og greinar sem sýna breytta tíma.
Bókin er ríkulega myndskreytt. LITRÓF
ÓF
Skotveiðií máli og myndum 2
Sk
ð
l
d
176
Einn sprækur og tilbúinn.
Mynd Dúi Landmark.
Aðgerð um borð.
Mynd Dúi Landmark.
Pétur Alan Guðmundsson á heiðagæsaslóðum.
177
132
Karri á spjalli við bergbúann.
Mynd Pétur Alan Guðmundsson.
133
Margir skotveiðimenn, ekki síst byrje
ndur standa óklárir á stærðum
haglaskota. Í stuttum pistli ætlum v
ið að reyna að útskýra mun á
stærð haglaskota. Það er bæði þyngd, h
leðslu, hraða og síðast en ekki
síst haglastærð.
Í fyrstu er rétt að hafa í huga að þe
gar talað er um þyngd og
hleðslu skota er átt við þyngd á höglu
m en ekki púðri eins og sumir
halda.
Blý er algengasta efnið í höglum hé
r á landi og víðar. Fram-
leiðendur hafa valið blý þar sem það
er heppilegast með tilliti til
þyngdar, dreifingar og ákomu. Allr
a síðustu ár hefur blý verið
bannað sumstaðar erlendis sér í lag
i þar sem veitt er í votlendi
(Waterfowl Hunting). Til „Waterfowl
hunting“ mætti telja andaveiði
og heiðagæsaveiði hér á landi eða með
öðrum orðum þar sem skotið
er við vötn og ár. Í Bandaríkjunum e
r blý víðast hvar leyft þar sem
stundaðar eru „Upland Hunting“ ve
iðar en svo gætum við kallað
grágæsa- og rjúpnaveiði hérlendis.
Fyrri hluta hausts í gæsaveiði eru alg
eng skot 2¾“ með um 40
gramma hleðslu en þegar líður á veiði
tíma, fugl verður varari um sig
og skjóta þarf jafnvel á lengri færum
, færa f leiri veiðimenn sig í
þyngri hleðslur sem gjarnan eru kalla
ðar Magnum hleðslur og velja
3“ skot og þá oftar stærri högl. Í r
júpnaveiði velja menn léttari
hleðslur svo sem 32, 36 eða 42 gramm
a hleðslur og smærri högl.
Oft er rætt um hraða skota og þykir m
örgum hraði skipta megin-
máli við val á skotum. Hraði getur vi
ssulega skipt máli þegar veiða
skal hraðfleyga fugla svo sem endur,
en við gæsaveiði skiptir hraði
minna máli. Gott er að hafa í huga a
ð skot með léttari hleðslu, svo
sem 32 eða 36 gramma, eru að öllu jö
fnu mun hraðari en skot með
þyngri hleðslu svo sem 42 eða 50 gram
ma.
Haglastærð skota vefst fyrir mörgum
veiðimanninum enda ekki
skrítið þar sem enginn alþjóðlegur st
aðall er til. T.a.m. nota enskir
framleiðendur eitt númerakerfi á með
an bandarískir framleiðendur
nota annað. Réttast væri að nota milli
metramál.
Við vonum að þessi pistill hjálpi sk
otveiðimönnum við val á
stærð haglaskota.
Ólafur Vigfússon.
Ýmislegt um haglaskot
Mynd Pétur Alan Guðmundsson.
156
Aflinn sóttur. Veiðimaður er Harpa Hlín Þórðardóttir,
mynd Stefán Sigurðsson.
157
Stórglæsileg
bók um
skotveiði
í máli og
myndum
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 08.12.14 - 14.12.14
1 2
5 6
7 8
109
43
Náðarstund
Hannah Kent
Kamp Knox
Arnaldur Indriðason
Sveitin í sálinni
Eggert Þór Bernharðsson
DNA
Yrsa Sigurðardóttir
Gula spjaldið í Gautaborg
Gunnar Helgason
Orðbragð
Brynja Þorgeirsdóttir/Bragi Valdimar
Ljónatemjarinn
Camilla Läckberg
Þín eigin þjóðsaga
Ævar Þór Benediktsson
Öræfi
Ófeigur Sigurðsson
Saga þeirra, sagan mín
Helga Guðrún Johnson
PAKISTAN Hópur vopnaðra manna
réðst inn í skóla í borginni Pes-
hawar í Pakistan í gærmorgun,
tók að skjóta á börn og kennara og
drap fjölda fólks. Sjö mannanna
voru með sprengjur festar við föt
sín og sprengdu sig í loft upp.
Alls fórust þarna nærri 150
manns, þar af meira en 130 börn.
Hátt í 120 manns særðust í árás-
inni og þurftu á læknisaðstoð á
sjúkrahúsi að halda.
Hermenn komu fljótlega á stað-
inn og hófst þá skotbardagi milli
árásarmanna og hermanna. Ekki
var að sjá að árásarmennirnir hafi
ætlað að taka gísla, heldur hafi
ætlunin einungis verið sú að valda
sem mestu manntjóni.
„Eini tilgangur þeirra virðist
hafa verið sá að drepa þessi sak-
lausu börn. Það gerðu þeir,“ sagði
Asim Bajwa, yfirmaður í pakist-
anska hernum. „Þeir eru ekki
bara óvinir Pakistans, heldur alls
mannkyns.“
Pakistanska talibanahreyfing-
in Tahreek-e-Taliban lýsti yfir
ábyrgð á árásinni. Hreyfingin vill
setja bönd öfgatrúar á íbúa lands-
ins og er meðal annars sérlega
uppsigað við skólagöngu stúlkna.
Nawaz Sharif, forsætisráðherra
Pakistans, fordæmdi árásina. Hið
sama gerði Barack Obama Banda-
ríkjaforseti og fjöldi annarra þjóð-
höfðingja.
„Ég er harmi lostin vegna þessa
tilgangslausa og miskunnarlausa
hryðjuverks í Peshawar,“ sagði
pakistanska stúlkan Malala Yous-
afzai, sem fyrir fáeinum dögum
tók á móti friðarverðlaunum Nób-
els í Noregi. Hún varð sjálf fyrir
árás talibana í október árið 2012,
eftir að hafa vakið athygli fyrir
baráttu sína fyrir réttindum
kvenna til skólagöngu.
„Enginn málstaður getur rétt-
lætt hrottaskap af þessu tagi,“
sagði Ban Ki-moon, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna.
Herinn í Pakistan brást strax
í gær við með harðvítugum loft-
árásum á talibana í ættbálka-
héruðunum í norðvesturhluta
landsins, nálægt landamærum
Afganistans.
Tahreek-e-Taliban er í samstarfi
við afgönsku talibanahreyfinguna
en beinir spjótum sínum sérstak-
lega að stjórnvöldum í Pakistan.
Hreyfingin stóð í sumar fyrir árás
á alþjóðaflugvöllinn í Karachi.
gudsteinn@frettabladid.is
Drápu hátt á annað
hundrað skólabarna
Pakistanska talibanahreyfingin lýsti yfir ábyrgð sinni á fjöldamorðum í skóla í
Peshawar. Pakistanski herinn hóf í kjölfarið harðar loftárásir á talibana í norð-
vestur hluta landsins. Árásin hefur verið fordæmd af þjóðarleiðtogum víða um heim.
LIFÐU AF
HILDARLEIK-
INN Foreldrar
fylgja börnum
sínum úr
skólanum í
Peshawar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP