Fréttablaðið - 17.12.2014, Page 18
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 18
FLÓTTAMENN „Aðstæður eru orðn-
ar betri en þær voru en þær eru
ekki eins og best verður á kosið.“
Þetta sagði Pia Prytz Phiri, svæðis-
stjóri Flóttamannahjálpar Samein-
uðu þjóðanna um dvalarstað flótta-
manna á Suðurnesjum, Fit Hostel,
á fundi með fréttamönnum í gær.
Svæðisstjórinn, sem heimsækir
Ísland reglulega og ræðir þá við
hælisleitendur og stjórnvöld, nefndi
sérstaklega erfiðleikana sem fylgja
því að hafa ekkert við að vera á
meðan beðið er í flóttamanna-
búðum eftir ákvörðun yfirvalda
um dvalarleyfi mánuðum og jafn-
vel árum saman. Hún sagði hælis-
leitendur hafa áhyggjur af fjöl-
skyldum sínum og að þeim liði illa
vegna aðgerðaleysis á meðan á bið-
inni stendur. Það væri hins vegar
ánægjuefni að íslensk stjórnvöld
hefðu stytt afgreiðslutíma dval-
arleyfa þannig að hann verði ekki
lengri en 90 dagar.
Einn þeirra hælisleitenda sem
bíða þurftu lengi eftir ákvörðun
stjórnvalda er Wali Safi. Hann
kom til Íslands í júní 2008 og er nú
meðal þeirra 34 umsækjenda sem
lagt er til að fái íslenskan ríkis-
borgararétt. Wali Safi segist hafa
þurft að bíða í eitt ár og ellefu mán-
uði áður en tekin var ákvðrðun um
að veita honum dvalarleyfi. „Þá
fyrst gat ég farið að vinna. Ég fékk
vinnu sem skólaliði í Salaskóla í
Kópavogi og starfa þar enn.“
Að sögn Safi var biðin eftir dval-
arleyfi erfið. „Ég mátti ekkert gera
og einangrunin var slæm.“
Hann hafði flust á milli nokkurra
landa áður en hann kom til Íslands.
„Ég fór frá föðurlandi mínu, Afgan-
istan, 1997 og bjó meðal annars í
Grikklandi.“ Að vera orðinn hluti
af íslensku samfélagi finnst honum
gott.
Phiri lagði áherslu á mikilvægi
þess að flóttamenn fengju fjöl-
skyldur sínar til sín. Þeir hefðu
misst margt, líka starfið sitt, og
þeir þyrftu tækifæri til að verða
hluti af samfélaginu.
Hún gat þess að framfarir hefðu
orðið á ýmsum sviðum í afgreiðslu
málefna flóttamanna hér á landi.
Fangelsun þeirra sem koma með
fölsuð eða útrunnin skilríki eða
skilríkjalausir, eins og tíðkast
hefur hér á landi, ætti alltaf að vera
allra síðasta úrræðið og þá bara við
alveg sérstakar aðstæður. Svæðis-
stjórinn kvaðst vona að Ísland yrði
innan tíðar meðal þeirra landa þar
sem málsmeðferð flóttamanna
væri réttlát. ibs@frettabladid.is
Málsmeðferð flótta-
manna verði réttlát
Pia Prytz Phiri, svæðisstjóri Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Norður-
Evrópu, fagnar framförum í málefnum flóttamanna á Íslandi. Fangelsun þeirra
sem koma með ógild skilríki eða skilríkjalausir ætti alltaf að vera síðasta úrræðið.
FLÓTTAMANNA-
HJÁLP Pia Prytz
Phiri, svæðisstjóri
Flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu
þjóðanna í Norður-
Evrópu, hvetur
íslensk stjórnvöld til
aukinnar samvinnu
við að aðstoða
flóttamenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÁSTRALÍA, AP Umsátri áströlsku lög-
reglunnar um kaffihús í Sydney á
mánudag lauk fljótlega eftir að eig-
andi kaffihússins sá sér færi og
greip um byssu gíslatökumannsins.
Þetta varð kaffihúsaeigandanum,
sem hét Tori Johnson, að bana því
skot hljóp úr byssunni. Það varð
hins vegar til þess að lögreglan
réðst til inngöngu, og lauk málum
með því að flestir gíslanna sautján
sluppu lifandi eftir sextán klukku-
stunda umsátur.
Kona að nafni Katrina Dawson
lést einnig, ásamt gíslatökumann-
inum Man Haron Monis. - gb
Yfirmaður á kaf ihúsinu stöðvaði gíslatökuna:
Greip í byssu Monis
TIL MINNINGAR UM HIN LÁTNU Fjöldi fólks kom í gær til að leggja blóm á gang-
stéttina við kaffihúsið í Sydney. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NOREGUR Hröð og mikil verðlækkun á olíu
hefur orðið þess valdandi að norska krónan
tapar verðgildi sínu jafnt og þétt. Á síðustu
sex mánuðum hefur hún lækkað um fjórðung
gagnvart Bandaríkjadal, og er nú orðin nokk-
urn veginn jöfn sænsku krónunni að verðgildi.
Norðmenn eru strax farnir að finna fyrir
því að innflutningsvörur hækka í verði, en
útflutningsgreinum gengur að sama skapi
betur. Lækkun olíuverðs hefur einnig valdið
Rússum miklum hremmingum síðustu mán-
uðina, með verðlækkun rúblunnar. - gb
Norska krónan orðin jafngild þeirri sænsku:
Gengið hefur sigið hratt
SIV JENSEN Efnahagsráð-
herra Noregs. NORDICPHOTOS/AFP