Fréttablaðið - 17.12.2014, Page 21

Fréttablaðið - 17.12.2014, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 17. desember 2014 | SKOÐUN | 21 Verðandi landlæknir hljóp á sig í sinni fyrstu opinberu yfirlýsingu. Áður en hann er tekinn við embætti. Það er ekki góðs viti. Ber merki um fljótfærni og skort á fagmennsku. Apar upp full- yrðingar um 50% launa- kröfur lækna, sem samn- ingamenn læknafélaganna höfðu borið til baka. Setti sig ekki inn í málið áður en hann tjáði sig. Þjóðin á öðru að venjast frá þeim sem hafa setið í embættinu. Hellti sér í pólitískan hráskinnaleik sitjandi á erlendri grundu. Skyldi þetta vera hin nýja lína stjórnvalda? Að heilbrigðisstéttir skuli leita sam- þykkis landlæknis áður en þær fara fram með kröfur á hendur ríkinu í kjarabaráttu sinni? Munu sjúkra- liðar, sálfræðingar, félagsráðgjafar og hjúkrunarfræðingar sætta sig við slíkt? Maðurinn virðist að þessu leyti ekki skilja hlutverk embættis- ins sem hann er að taka við. Nú er erfitt að fá lækna til að koma til starfa á Íslandi vegna launakjara og læknaskortur þegar orðinn vandamál á nokkrum svið- um. Það virðist líka gilda um land- læknisembættið. Við tekur læknir sem er hættur að vinna í Svíþjóð vegna aldurs. Kannski verður það viðmiðið í framtíðinni. Að íslensk- ir læknar fáist til að koma til starfa á Íslandi þegar þeir verða 67 ára. Hafa eftirlaunastuðning erlendis frá. Er virkilega svona komið fyrir íslensku heilbrigðiskerfi? Á móti straumnum Verðandi landlæknir syndir á móti straumnum. Flyst heim þegar straumurinn er út. Við vildum að yngri læknar fylgdu fordæmi hans. Hann á e.t.v eftir að átta sig á því hvers vegna svo er ekki. En út á það gengur bar- átta lækna fyrir leiðrétt- ingu á grunnlaunum sínum til samræmis við almenna launaþróun í landinu og sér- staklega aðrar heilbrigðis- téttir. Verðandi landlæknir getur líklega upplýst stjórn- völd um hvaða laun bjóðast íslenskum læknum sem vilja starfa í Skandinavíu fyrst hann er í þess- um ham. Unglæknum með lækninga- leyfi sem fara til framhaldsnáms í Svíþjóð bjóðast a.m.k. 38 þúsund sænskar krónur í dagvinnulaun á fyrsta ári. Það gera um 620 þús- und íslenskar krónur á mánuði á fyrsta ári í framhaldsnámi miðað við gengi í dag. Á Íslandi geta 55 ára og eldri sérfræðilæknar með áralanga starfsreynslu og þjálfun vænst þess að fá slík grunnlaun skv. kjarasamningi Læknafélags Íslands, ef þeir halda áfram að taka vaktir fram í rauðan dauðann á við sér yngri menn. Afsala sér réttind- um til vaktahvíldar. Byrjunarlaun sérfræðinga á Íslandi eru 530 þúsund eða um 100 þúsund krónum lægri en þegar framhaldsnám hefst erlendis. Í Sví- þjóð voru meðallaun sérfræðilækna á sjúkrahúsum árið 2012 um 1.100 þúsund á mánuði fyrir dagvinnu. Svo bætast vaktagreiðslur ofan á fyrir nætur- og helgarvaktir. Svipað er að segja frá Noregi þar sem kjör eru heldur betri. Fín frí þar að auki í boði. Eflaust gildir sama um flestar aðrar starfstéttir. Að þær hefðu það betra í erlendu starfsumhverfi. Raunverulegt umboð Hins vegar búa læknar við það að þeir hafa þegar flutt utan til fram- haldsnáms og sjá hvaða kjör útlærð- um sérfræðingum bjóðast þar. Þeir vilja ekki koma heim. Það er stað- reynd sem verður ekki horft fram hjá. Það er vandamálið sem þarf að finna lausn á, ef veita á viðunandi læknisþjónustu í landinu. Það ger- ist ekki með óbreyttu ástandi og þriggja prósenta launahækkun. Þar þarf að lyfta grettistaki. Er eitthvað annað til ráða fyrir utan að fá elli- lífeyrisþega sænska ríkisins í stöð- urnar til skamms tíma í senn? Lög- málið um framboð og eftirspurn virðist vefjast fyrir talsmönnum frelsis í viðskiptum og samninga- frelsis á vinnumarkaði þegar kemur að læknum og fjölskyldum þeirra. Fjármálaráðherra hefur lausnina í hendi sér. Hann verður að veita samninganefnd sinni raunverulegt umboð. Vonandi reynist nýr land- læknir honum ráðagóður þegar hann hann hefur sett sig inn í málin og skilur alvöruþunga og samstöðu lækna til að bæta heilbrigðiskerfið nú en ekki síðar. Hann verður von- andi ekki dragbítur á þá endurreisn. Frumhlaup verðandi landlæknis Engar nýjar kjarabætur til handa öldruðum er að finna í fjárlagafrumvarp- inu fyrir árið 2015. Aðeins er í frumvarpinu eðlileg leiðrétting vegna fjölgunar bótaþega lífeyristrygginga milli ára og vegna hækkun- ar á frítekjumarki lífeyris- sjóðstekna ellilífeyrisþega samkvæmt samkomulagi, sem stjórnvöld gerðu við Landssamtök lífeyrissjóða 2010. Í rauninni hefur rík- isstjórnin ekki látið aldraða fá neinar kjarabætur frá því á sum- arþinginu 2013. Það sem ríkisstjórn- in lét af hendi rakna þá var rýrt í roðinu: Hætt var að láta grunnlíf- eyri skerðast vegna greiðslna úr líf- eyrissjóði. Það gagnaðist þeim betur settu á meðal eldri borgara, þ.e. þeim, sem höfðu góðan lífeyrissjóð. Frítekjumarki vegna atvinnutekna aldraðra var breytt þannig að frí- tekjumarkið var hækkað úr 40 þús- und kr. á mánuði í 110 þúsund kr. á mánuði. Það kom þeim til góða sem voru á vinnumarkaðnum. Ríkisstjórnin gerði hins vegar ekkert á sumarþinginu fyrir þá verr settu meðal eldri borgara, þ.e. þá sem höfðu lélegan lífeyrissjóð eða gátu ekki verið á vinnumark- aðnum vegna heilsubrests. Stjórnar- flokkarnir gáfu eldri borgurum og öryrkjum stór kosningaloforð fyrir þingkosningarnar 2013. Því var lofað, að kjaragliðnun frá kreppu- tímanum yrði leiðrétt, það er líf- eyrir aldraðra og öryrkja hækkaður til að vega upp gliðnunina sl. fimm ár en á því tímabili hækkuðu lág- markslaun miklu meira en líf eyrir. Til þess að jafna metin þarf að hækka lífeyri um a.m.k. 20%. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert í því að efna þetta loforð. Auk þess lof- uðu stjórnarflokkarnir að afturkalla alla kjaraskerð- inguna frá 1. júlí 2009. Þar var um sex atriði að ræða. Tvö þeirra, sem ég gat um hér að framan, hafa verið afturkölluð. Eitt rann út af sjálfu sér, þar eð lögin voru tímabundin. En þrjú atriði hafa ekki verið afturkölluð. Á flokksþingi Framsóknarflokks- ins 2013 var eftirfarandi sam- þykkt: „Kjaraskerðing aldraðra og öryrkja, sem tók gildi 1. júlí 2009, verði afturkölluð. Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður vegna kjaraskerðingar þeirra (og kjara- gliðnunar) á krepputímanum.“ Sjálf- stæðisflokkurinn samþykkti að aftur kalla ætti kjaraskerðinguna frá 2009 tafarlaust. Miðað við þess- ar ákveðnu samþykktir komast flokkarnir ekki hjá því að efna þessi kosningaloforð. Það verður að efna þau strax. Þrátt fyrir að aðeins lítill hluti kosningaloforða við aldraða hafi verið efndur lét ríkisstjórnin sér sæma að minnka hækkun á lífeyri, sem aldraðir og öryrkjar áttu að fá samkvæmt fjárlagafrumvarpinu um áramót. Lífeyrir átti að hækka um 3,5%. En nú hefur verið ákveð- ið að að hækkunin verði aðeins 3%. Þetta gerist þótt lífeyrir hafi um tíma verið frystur í krepp- unni þegar laun voru að hækka. Ég skora á ríkisstjórnina að leiðrétta þetta aftur. Engar nýjar kjara- bætur fyrir aldraða KJÖR ALDRAÐRA Björgvin Guðmundsson formaður kjara- nefndar Félags eldri borgara KJARAMÁL Reynir Arngrímsson varaformaður Læknafélags Reykjavíkur Ómissandi um jólin ➜ Skyldi þetta vera hin nýja lína stjórnvalda? Að heil- brigðisstéttir skuli leita sam- þykkis landlæknis áður en þær fara fram með kröfur …

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.