Fréttablaðið - 17.12.2014, Side 22

Fréttablaðið - 17.12.2014, Side 22
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 22 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099 www.heimsferdir.is Kanarí B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Dorotea Frá kr. 77.900 Netverð á mann frá kr. 77.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 5. janúar í 10 nætur. Parquesol Frá kr. Frá kr. 95.900 Netverð á mann frá kr. 95.900 m.v. 2 fullorðna í smáhýsi. 5. janúar í 10 nætur. Los Tilos Frá kr. 69.900 Netverð á mann frá kr. 69.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 5. janúar í 10 nætur. Roque Nublo Frá kr. 76.900 Netverð á mann frá kr. 76.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 5. janúar í 10 nætur. Sjá fleiri 2fyrir1 tilboð á heimsferdir.is E N N E M M / S IA • N M 66 42 4 44.950 Flugsæti frá kr. Í nútímasamfélagi er mikilvægt að upplýsingar séu almenningi aðgengi- legar á einfaldan hátt. Á Íslandi hefur almenning- ur ríkan rétt til að afla sér upplýsinga á eigin spýtur en flestir reiða sig þó á upplýsingamiðlun sem fer fram í gegnum fjölmiðla. Þar vinnur mikið af hæfu og áreiðanlegu fólki sem tekur alvarlega það hlut- verk sitt að miðla hlut- lægum staðreyndum. Þetta fólk reynir að leggja eigin skoðanir til hliðar og telur sig ekki hafið yfir málefnalega umræðu um verk sín. Á tæplega 30 ára ferli mínum sem blaðamaður fékk ég ósjald- an símtöl frá lesendum sem vildu ræða um efnistök og áherslur í mínum skrifum. Slíkt hefur ávallt þótt eðlilegt í blaðamannastétt og ef efnisleg rök gefa tilefni til, t.d. ef rangar upplýsingar rata í skrif, þykir flestum sjálfsagt að leiðrétta mistökin. Það þekki ég af eigin raun og engin eftirgjöf á ritstjórnarlegu frelsi felst í því að taka tillit til sjónarmiða annarra. Síðustu 15 mánuði hef ég starfað sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Íslands. Hluti þess starfs felst í samskiptum við fjöl- miða, innlenda sem erlenda. Ég hef lagt áherslu á að fjölmiðla- fólk hafi greiðan aðgang að mér og hef reynt að greiða götu þeirra eins og unnt er. Í því felst að oft er skipst á símtölum og stundum skoðunum. Í einhverjum tilvikum hef ég bent á bein rangindi, sem blaðamenn hafa yfirleitt verið þakklátir fyrir, enda vilja flestir greina rétt frá. Fram til þessa hefur þetta vinnulag ekki verið sérstakt vandamál. Ábendingar Síðastliðinn föstudag hafði ég samband við ritstjórn vikublaðsins Grapevine. Á vefsíðu miðilsins hafði birst frétt þar sem frétta- skrifara virtist ókunnugt um mikilvæg efnisatriði. Fréttaskrifarinn sjálf- ur var ekki viðlátinn en af efnistökum þeirra að dæma virtust skrifin vera byggð á umræðu á sam- félagsmiðlum og frétta- skrifum hins ágæta mið- ils DV. Um samskiptin er í sjálfu sér ekki margt að segja. Ég kom mínum ábendingum á framfæri við fulltrúa fjölmið- ilsins - sem að mestu fólust í að benda á tilvist og slóð áðurbirtrar leiðréttingar um fjölda aðstoðar- manna forsætisráðherra, sem eru tveir en ekki sjö eins og Frétta- blaðið og fleiri héldu fram í síð- ustu viku. Að venju lét ég honum eftir að ákveða hvernig fjölmið- illinn myndi bregðast við. Í því fólust engin fúkyrði, og hvorki hótanir né dónaskapur. Niður- staða Grapevine var sú að breyta efnislega engu í sinni frásögn og í lokasvari frá ritstjóranum, Hauki S. Magnússyni, segir m.a.: „Varð- andi orðalagið „ditches“ er það vissulega kersknislegt, en merk- ingin stendur engu að síður og er í samræmi við stíl þann sem við höfum tileinkað okkur við frétta- flutning, sem er oft á gamansöm- um nótum.“ Sá ég að þarflaust var að lengja þessa orðræðu og taldi málinu þar með lokið. Eiga sér enga stoð Það kom mér þess vegna á óvart að sjá Grapevine gera þessi sam- skipti að sérstöku umræðuefni á vef sínum síðar sama dag og gefa í skyn að undirritaður hafi farið fram með ógnunum og hót- unum. Það eru stór orð sem eiga sér enga stoð. Í fréttum nokkurra annarra miðla af samskiptunum er þeim líkt við tilraun til ritskoð- unar! Slíkt er auðvitað fjarri lagi og ekkert hefur verið lagt fram sem rennir stoðum undir slíkt. Leiðarahöfundur Fréttablaðs- ins, Friðrika Benónýsdóttir, gerir svo samskiptin að umfjöllunar- efni í gær undir fyrirsögninni „Fyndnu strákarnir í Stjórnar- ráðinu.“ Í leiðurum Fréttablaðs- ins birtast fyrst og fremst skoðun þess sem heldur á penna hverju sinni og í því samhengi skipta staðreyndir litlu máli. Það er engu að síður miður þegar sterk- ar skoðanir byggja á hæpnum forsendum. Í stuttu máli snýst leiðarinn um að í Stjórnarráðinu starfi hrokafullir strákar sem láti sér mannréttindi og lýðræði í léttu rúmi liggja, traðki á rétt- indum blaðamanna og vilji ráða öllu. Því verð ég að mótmæla, sem og fullyrðingum um að á vegum Stjórnarráðsins sé grip- ið til „refsiaðgerða gegn þeim fréttamiðlum sem ekki eru þeim nógu hliðhollir“. Slíkt er fráleitt og dregur úr trúverðugleika þess sem skrifar. Gagnrýnin umræða er þörf en það er ástæðulaust að reyna að búa til grýlur þar sem engar eru. Hlutlæg blaðamennska sem byggir á staðreyndum og sann- girni gegnir mikilvægu sam- félagshlutverki og það minnk- ar enginn blaðamaður við það að leiðrétta það sem rangt er sagt. Eftir stendur sú spurning; telja einstaka fjölmiðlamenn að við þeirra verk megi ekki gera athugasemdir? Af meintum ógnunum Sum okkar muna eftir því að í febrúar árið 2000 setti nýr iðnaðarráðherra Framsóknarflokksins fram tillögu um að flytja aðalstöðvar Rarik til Akur- eyrar. Kallað var til ráðgjafa- fyrirtæki sem fékk það verkefni að gera úttekt sem skyldi sýna fram á að flutningurinn yrði hag- kvæmur. Í úttektinni var til dæmis ekki eitt orð um dýrari rekstur aðalskrifstofu eftir flutning. Þrátt fyrir athugasemdir og mótmæli okkar starfsmanna í Reykjavík, sem bentum á falsað- ar tölur og slæleg vinnubrögð við úttektina, var málið keyrt áfram og allt virtist stefna í flutning. Á sama tíma var verið að þvinga Byggðastofnun með sömu aðferð- um til Sauðárkróks og skömmu áður höfðu Landmælingar fengið að flytja til Akraness. Hér er útdráttur úr mínum athugasemdum frá 2.2.2000, en svona upplifðum við starfsmenn Rarik í Reykjavík viðhorf ráðu- neytisins til okkar: „Fólkið sem vinnur á aðalskrif- stofu RARIK er flest gamalt og afdankað stofnanalið sem eng- inn missir er að, ef það skyldi nú heltast úr lestinni við flutninginn, enda skapar það ný störf á Akur- eyri. Starfsmennirnir sem flytj- ast með til Akureyrar sýna það hins vegar í verki að vinnan er þeim meira virði en fjölskyldan og vinar tengslin, slíkur vinnukraft- ur sýnir þjónustulund sem ekki má forsmá!“ Sem betur fer valdi þáverandi iðnaðarráðherra að ræða við starfsmenn og skoða fleiri hliðar málsins áður en ákvörðun væri tekin, og fallið var frá flutningi höfuðstöðva Rarik árið 2000, enda augljóst orðið að mikið hagræði er fólgið í nálægð aðalstöðv- anna við aðalhöfn landsins og alla birgjana auk þess sem meira en fimmtung- ur viðskiptamanna Rarik er búsettur á höfuðborgar- svæðinu. Nú dregur aftur til tíð- inda hjá Rarik. Forsætis- ráðherra fann það verkefni fyrir nokkra aðstoðarmenn að vinna tillögur sérstak- lega með hag Norðvestur- lands að leiðarljósi, þó ekki Vestfjarða, og hafa þeir komist að þeirri niðurstöðu að höfuð stöðvar Rarik og rekstur skipa Landhelgis- gæslunnar eigi best heima á Sauð- árkróki. Forsætisráðherra velur á hefðbundinn hátt að skella þessu framan í landsmenn án samtals eða samráðs. Viðbrögð sveitarstjórnarmanna utan Norðvesturlands sýna að þessar tillögur eru ekki til þess fallnar að stuðla að friði í landinu, fremur benda þau til að hreppa- pólitíkin eflist nú sem aldrei fyrr. Þessi aðferðafræði við virka byggðastefnu virðist nokkuð vin- sæl meðal framámanna Fram- sóknarflokksins og sumra annarra stjórnmálamanna. Ekki hefðbundin ríkisstofnun Mig langar til að benda þessum hreppaflutningamönnum á nokkr- ar hugmyndir. Væri ekki þjóðráð að flytja aðalstöðvar Framsóknar- flokksins á vel valinn stað á skag- firska efnahagssvæðinu? For- sætis ráðherrann hefði allavega gott af vænum skammti af innri íhugun. Nú, og hvað um stjórnar- ráðið til Grímseyjar? Alþingi til Þingvalla? Þingmenn gætu þá aðstoðað við eftirlit með náttúru- pössum ferðamanna milli funda. Þegar betur er að gáð, væri ekki ráð að flytja Reykjavík í heilu lagi á Sprengisand? Nóg er nú plássið! Hugsið ykkur friðinn sem gæti ríkt í vinnunni. Engir útlending- ar til þess að trufla, ekkert salt til þess að eyðileggja bílana okkar, þarna gætum við unað í heim- spekilegri ró og velt fyrir okkur hvernig leysa mætti lífsgátuna, ótrufluð af amstri umheimsins, sæl í okkar einangrun, sambands- laus og áhyggjulaus. Varðandi Rarik langar mig reyndar til að spyrja hvort það sé eðlilegt að ríkisstjórn Íslands skipti sér af staðsetningu á aðal- skrifstofu fyrirtækisins. Árið 2006 var Rarik nefnilega gert að hluta- félagi og er fyrirtækið því ekki lengur hefðbundin ríkisstofnun. Í lögunum nr. 25 2006 um stofnun hlutafélagsins Rarik ohf. stendur í 2. grein: „Ákvæði laga um hluta- félög gilda um félagið ef ekki er kveðið á um annað í lögum þess- um.“ Hvergi er í lögunum minnst á rétt eigenda til að skipta sér af rekstri fyrirtækisins á þennan hátt. Það kann vel að vera svo að meirihluti hluthafa geti þvingað fram slíkar breytingar á rekstri hlutafélags með tillögum á aðal- fundum, en er það eðlilegt? Hreppafl utningar STJÓRNSÝSLA Guðmundur Karlsson starfsmaður Rarik ohf. ➜Mig langar til að benda þessum hreppafl utninga- mönnum á nokkrar hug- myndir. Væri ekki þjóð- ráð að fl ytja aðalstöðvar Framsóknarfl okksins á vel valinn stað á skagfi rska efnahagssvæðinu? Forsætis- ráðherrann hefði allavega gott af vænum skammti af innri íhugun. Nú, og hvað um stjórnarráðið til Gríms- eyjar? Alþingi til Þingvalla? ➜ Gagnrýnin umræða er þörf en það er ástæðulaust að reyna að búa til grýlur þar sem engar eru. FJÖLMIÐLAR Sigurður Már Jónsson upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.