Fréttablaðið - 17.12.2014, Page 24

Fréttablaðið - 17.12.2014, Page 24
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, PÁLÍNA MAGNÚSDÓTTIR frá Reykjum í Fnjóskadal, lést á dvalarheimilinu Hlíð 4. desember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju 18. desember kl. 13.30. Guðmundur Hafsteinsson Karítas Erla Jóhannesdóttir Sólrún Hafsteinsdóttir Sigurður B. Jónsson Lára Hafsteinsdóttir Fjölnir Sigurjónsson Gunnar M. Guðmundsson Erna H. Gunnarsdóttir Þóra K. Guðmundsdóttir Magnús Hallur Sævarsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Þakka af alhug þá vináttu og samúð sem mér var sýnd við andlát og útför hjartkærs eiginmanns míns, HALLDÓRS VEIGARS GUÐMUNDSSONAR (DÚDDA) skipstjóra hjá Eimskip, Lindarseli 1, Reykjavík, sem lést þann 6. október síðastliðinn. Þá vil ég þakka hina frábæru umhyggju og alúð sem hann naut hjá starfsfólki Landspítalans og hjá Antonio Grave sjúkraþjálfara. Þess mun ég og fjölskyldan minnast um ókomin ár. Guð veri með ykkur. Sigríður Gestrún Halldórsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og elskulegur sambýlismaður, JÓNAS ÞÓRIR DAGBJARTSSON fiðluleikari, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, miðvikudaginn 17. desember kl. 14.00. Margrét Þórisdóttir Guðmundur Þórðarson Kristín Þórisdóttir Karl Jóhannes Karlsson Jónas Þórir Þórisson Rósa Einarsdóttir Laufey Karlsdóttir barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EYSTEINN LEÓ JÓNSSON Látraseli 11, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 11. desember. Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi föstudaginn 19. desember kl. 13.00. Sigríður Guðmunda Jónsdóttir Jóhanna Eysteinsdóttir Pétur Steinn Sigurðsson Jón Björn Eysteinsson Margrét Káradóttir Sigrún Eysteinsdóttir Hlynur Geir Guðmundsson Sigríður Eysteinsdóttir Sigurður Gunnar Markússon barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BALDVIN STEINDÓRSSON rafvirkjameistari, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 13. desember, verður jarðsunginn föstudaginn 19. desember frá Háteigskirkju kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Kristniboðssambandið. Lilja Magnúsdóttir Lilja Baldvinsdóttir Þorbjörn Viggósson Kristján Baldvinsson Bryndís Ottósdóttir Magnús Baldvinsson Bettina Wilhelmi Halldór Baldvinsson Katrín Garðarsdóttir Guðbjörn Baldvinsson Ingibjörg Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Auðkúlu í Arnarfirði, Sólvangsvegi 2, Hafnarfirði, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 12. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 19. desember kl. 13.00. F. h. fjölskyldunnar, María Gunnarsdóttir Innilegar þakkir til ykkar allra, sem komuð til að vera með okkur fjölskyldunni, þegar við kvöddum HLAÐGERÐI ODDGEIRSDÓTTUR frá Grenivík og Raufarhöfn. Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Furugerði 1, Reykjavík. Börn Hlaðgerðar og fjölskyldur þeirra. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGEY ARNKELSDÓTTIR Grindavík, lést mánudaginn 1. desember. Útförin hefur farið fram að ósk hinnar látnu. Brynja Kristjánsdóttir Knútur Aadnegard Soffía Kristjánsdóttir Jóhann Guðmundsson Sigurður Kristjánsson Guðlaug Metúsalemsdóttir Jón Kristjánsson Íris Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir, systir og frænka, ANNA RÖGNVALDSDÓTTIR kennari og listmeðferðarfræðingur, Þverási 53, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans 11. desember sl. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. desember kl. 13.00. Sérstakar þakkir fá læknar og hjúkrunarfólk krabbameinslækningadeilda LSH, 11 B og 11 E, og líknardeildar LSH fyrir góða umönnun og hlýju. Þórarinn Sigurgeirsson Ragnar Þórarinsson Hulda Ósk Ágústsdóttir Ragna Rögnvaldsdóttir Gunnlaugur Rögnvaldsson María Eyþórsdóttir Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HARALDSDÓTTIR saumakona, lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 11. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið eða Styrktarfélag barna með einhverfu. Bragi S. Ólafsson Sigþrúður Bergsdóttir Marlín Birna Haraldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, AGNAR TÓMASSON Brekkugötu 36, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð sunnudaginn 7. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir færum við starfsfólkinu í Hlíð fyrir góða umönnun. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigurfljóð Káradóttir Vegna stærðar blaðsins á morgun, fimmtudag, verður Fréttablaðið prentað í tvennu lagi. Frestur til að skila inn dánarauglýsingum í fimmtudagsblaðið færist því fram til kl. 13.30. Í dag verður hinn árlegi jólabasar gallerísins Kunstschlager á Rauðar- árstíg opnaður. Þetta er í þriðja skiptið sem basarinn er haldinn en verður því miður síðasti viðburður- inn í galleríinu þar sem Kunstschla- ger bætist í hóp þeirra sem hrökkl- ast burt úr miðbænum vegna hækk andi húsaleigu. „Það er gaman fyrir fólk að koma og kynnast þessu áður en það lokar,“ segir Helga Páley Friðþjófsdóttir, einn aðstand- enda gallerísins. „Þetta er síðasti séns til að kíkja þarna inn á þess- um stað,“ segir Helga og ítrekar að ábendingar séu vel þegnar varðandi mögulegt húsnæði fyrir framtíðina. „Við viljum halda áfram sem hópur á næsta ári og erum enn að leita að húsnæði,“ segir Helga. Á Jólabasarnum í fyrra voru yfir 70 listamenn sem seldu verk. „Ég taldi ekki hvað þetta voru margir listamenn þegar við vorum að setja upp í fyrradag en ég er sjálf enn að taka við verkum. Það koma oft verk á síðustu stundu,“ segir Helga. Að sögn Helgu hefur basarinn hjálpað starfseminni mikið í gegn- um tíðina. „Þetta hefur verið okkar helsta tekjulind fyrir árið. Það er líka svo skemmtilegt að sjá hvað hér er fjölbreytt og mikið af verkum á basarnum. Þarna er öll flóran og mikið af fjölbreyttum lista mönnum. Þetta er list á góðu verði og góð fjárfesting.“ Húsið verður opnað klukkan 18.00 í dag og verður jólaglögg í boði og heitt á könnunni. Fram að jólum verður opið aðra daga frá klukkan 16.00 til 20.00. thorduringi@frettabladid.is Síðasti jólabasar í bili Kunstschlager heldur sinn þriðja jólabasar í dag en galleríið missir húsnæði sitt eft ir ár. AÐSTANDENDUR KUNSTSCHLAGER FRÁ VINSTRI: Sigmann Þórðarson, Kristín Karólína Hel- gadóttir, Helga Páley Friðþjófsdóttir, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Þorgerður Þórhallsdóttir, Helgi Þórsson, Hrönn Gunnarsdóttir og Ásta Fanney Sigurðardóttir. Þarna er líka kötturinn Pommes, sem er því miður ekki til sölu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.