Fréttablaðið - 17.12.2014, Qupperneq 26
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
„Microlax er hægðalyf sem eykur
vatnsinnihald í hægðum og mýkir
þær. Microlax endaþarmslausn
fæst án lyfseðils og er ætluð til
meðhöndlunar við hægðatregðu,“
segir Jódís Brynjarsdóttir,
markaðstengill hjá Vistor. Helstu
einkenni hægðatregðu eru harðar
hægðir sem erfitt er að losna við
og tilfinning um að ná ekki að
tæma við hægðalosun. Önnur
einkenni geta verið magaverkir,
uppþemba og óþægindi við
hægðalosun.
Jódís útskýrir að brotthvarf
innihaldsefnanna verði í hægðum
og þau hvorki frásogist, dreifist
né umbrotni með altækum hætti
(systemic). „Þá er ekki búist við
neinni óæskilegri verkun hjá
fóstrum eða nýburum sé lyfið
notað eins og mælt er fyrir um á
meðgöngu og við brjóstagjöf þar
sem frásog Microlax er takmark-
að,“ segir hún og bætir við að
Microlax hafi verið í klínískri notkun í meira en 25
ár án nokkurra vandkvæða hvað varðar öryggi við
notkun.
MICROLAX:
• Virkar hratt, á aðeins um 15 mínútum
• Túpan inniheldur aðeins 5 ml af vökva, sem jafn-
gildir einni teskeið
• Staðbundin verkun í endaþarmi og skilst út með
hægðum
• Áhrifin eru fyrirsjáanleg (þú ræður tíma og stað-
setningu hægðalosunar)
NOTKUNARLEIÐBEININGAR:
• Snúið innsiglið af enda túpusprotans, smyrjið
enda sprotans með einum dropa af innihaldi
túpunnar – þá mun verða auðveldara að setja
túpusprotann inn í endaþarminn.
• Færa skal allan túpusprotann inn í endaþarminn, hjá
börnum yngri en þriggja ára skal þó einungis færa
sprotann inn að hálfu (sjá merki á sprotanum).
• Tæmið túpuna alveg – einnig hjá börnum – og
haldið henni samanklemmdri á meðan sprotinn er
dreginn út.
• Hægðalosun verður eftir um 15 mínútur.
ÞJÁIST ÞÚ AF
HÆGÐATREGÐU?
VISTOR KYNNIR Microlax-endaþarmslausn til staðbundinnar notkunar við
hægðatregðu.
Microlax-endaþarmslausn (inniheldur natríumsítrat og natríumlárilsúlfóasetat)
fæst án lyfseðils og er notað við hægðatregðu og til þarmahreinsunar fyrir
skurðaðgerð, endaþarmsspeglun eða röntgenmyndatöku. Skammtar: Full-
orðnir og börn: 1 túpa í endaþarm u.þ.b. 15 mín. áður en áhrifa er óskað. Snúið
enda túpusprotans af og smyrjið endann með dropa af innihaldinu. Færið
allan sprotann inn í endaþarm, hjá börnum yngri en 3 ára skal einungis færa
sprotann inn að hálfu. Tæmið túpuna alveg og haldið samanklemmdri á meðan
sprotinn er dreginn út. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna.
Varnaðarorð: Gætið varúðar við notkun hjá börnum yngri en 3 ára. Notið
ekki ef einstaklingur þjáist af blæðandi eða særandi gyllinæð, þarmabólgu
eða bráðum maga- eða þarmasjúkdómi. Má aðeins nota daglega í skamman
tíma. Óeðlilega mikil notkun getur valdið niðurgangi og vökvatapi. Ef þörf er á
hægðalyfjum daglega skal kanna ástæður hægðatregðunnar. Tíð eða endurtek-
in notkun í meira en viku getur valdið ávanabindingu. Ef blæðir frá endaþarmi
eða ef engin hægðalosun verður eftir notkun getur ástæðan verið alvarleg.
Skal þá meðferð hætt og leitað læknis. Inniheldur sorbínsýru sem getur valdið
staðbundnum útbrotum. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki er búist við óæskilegri
verkun hjá fóstrum/nýburum sé lyfið notað eins og mælt er fyrir um. Lesið
allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi:
McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., sími: 535-7000.
Söfn og minnismerki eru aðalsmerki Washing-ton borgar en Lonely Planet velur hana sem eina af heitustu áfangastöðum næsta árs. Þar
ber helst að nefna Smithsonian-söfnin. Söfnin eru
vel heimsóknarinnar virði en þau eru 19 talsins.
Þar er að finna allt frá 3,5 milljarða gömlum stein-
gervingum til geimferðabúnaðar Apollo. Það er
ókeypis inn á söfnin og flest þeirra eru á sama skik-
anum og göngufæri milli þeirra.
Minnismerkið um Abraham Lincoln er tilkomu-
mikið að sjá og eitt af því sem ætti að festa á mynd
í ferðalagi. Á næsta ári eru 150 ár síðan Abraham
Lincoln var skotinn til bana og verður af því tilefni
sett upp sýning þar sem meðal annars má berja
augum byssuna sem notuð var til verksins.
Georgetown er sögulegt hverfi sem áhugavert er
að skoða og ku víst einnig vera verslunarparadís.
Þar er einnig að finna spennandi veitingastaði
í röðum með matseld frá öllum heimshornum.
Gönguferð í gegnum Old Town Alexandria er líka
spennandi fyrir söguáhugafólk.
SPENNANDI BORG
ÁFANGASTAÐIR Undir lok árs er tilvalið að skipuleggja ferðalög næsta sum-
ars. Á vef Lonely Planet er búið að taka saman heitustu áfangastaðina 2015
og auðvelda okkur þar með valið. Washington DC trónir þar í fyrsta sæti.
VINSÆL Washington DC er sögð ein af þeim tíu borgum sem spennandi er að
heimsækja á næsta ári.
ÁHUGAVERÐ SÖFN Mörg áhugaverð söfn og minnismerki er að finna í borginni.
Smithsonian-söfnin tróna þar efst en þar er að finna allt frá milljarðagömlum stein-
gervingum til búnaðar sem notaður var í geimferðum Apollo.
FORSETI Minnismerkið um Abraham Lincoln,
16. forseta Bandaríkjanna er eitt af helstu kenni-
leitum borgarinnar. Á næsta ári eru 150 ár síðan
Lincoln var skotinn. Af því tilefni verður opnuð
sýning þar sem meðal annars verður hægt að
skoða byssuna sem notuð var til verksins.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is