Fréttablaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 28
FÓLK|FERÐIR Alda Margrét fór með foreldrum sínum til Kanaríeyja um jólin 1977, þá unglingur, og fannst notalegt að vera í birtunni og góða veðrinu. Núna er hún með stóra fjölskyldu og börnin upp- komin. „Tvö þau yngstu, 19 og 23 ára, fara með í sólina. „Við fórum til Kanaríeyja um jól 2009 og 2012. Mér finnst mjög notalegt að vera í sólinni og finnst skemmtilegt að stunda útiveru. Þarna er yndislegt um- hverfi og góðar strendur. Við söknum ekki íslenskra jóla, enda njótum við alls þess sem aðventan hefur upp á að bjóða hér heima. Við erum þegar búin að halda hangikjötsveislu fyrir fjölskylduna og síðan borðum við íslenska jólamatinn, hamborgarhrygg, þegar við komum aftur heim,“ segir Alda Margrét en fjölskyldan flýgur út á föstudag með Sumarferðum. SANNUR JÓLAANDI Gran Canaria er þriðja stærsta eyjan í Kanarí eyjaklasanum en eyjarnar eru sjö. Á Kanaríeyjum er hlýtt árið um kring og draga eyjarnar að sér mikinn fjölda ferða- manna frá Norðurlöndum, Þýskalandi og Englandi auk Spánverja. Alda Margrét segir að hún hafi fundið fyrir nokkurri fjölgun ferðamanna á eyjunni þegar hún kom þangað 2012 miðað við árið 2009 en þá hafi verið mikill samdráttur. Hún segist vita til þess að fjölgunin verði enn meiri núna og flestar ferðir uppseldar. Alda Margrét segist taka með sér smá jólastemningu til Kanarí. „Við tökum með okkur jólastyttur af Jesú, Maríu og hirðingjunum og setjum upp. Einnig hef ég jóladúk og kerti með mér. Það þarf ekki meira til að gera jólalegt. Við erum sam- mála um að jólin eru innra með manni en ekki ytra,“ segir Alda en allir taka með sér tvo pakka til að taka upp á aðfangadags- kvöld. Við hlustum líka á íslenskt útvarp í gegnum tölvuna. „Á aðfangadag förum við út að borða, síðast fórum við á Íslendinga- hitting þar sem boðið var upp á þrjá jóla- lega rétti. Við erum ekki búin að ákveða hvort við förum þangað núna eða prófum eitthvað annað í þetta skiptið.“ MARGT BREYST Fjölskyldan ætlar að njóta sólarinnar í sautján daga og koma til baka 5. janúar. „Við borðum jólamatinn okkar á þrett- ándanum,“ segir Alda. „Þegar ég fór til Kanarí sem unglingur héldu Spánverjar jól á þrettándanum sem tengist þeirra siðum. Það hefur margt breyst og í dag skreyta þeir í okkar anda. Maður sér jólasveininn hanga á svölum og jólaserí- ur eru líka sjáanlegar. Vissulega er þó margt ólíkt og það er bara gaman að upp- lifa það. Mér finnst þetta vera yndisleg tilbreyting sem styttir veturinn mikið. Við verðum með íbúð rétt við ströndina, erum dugleg að fara í göngutúra, spila minigolf eða keyra um og skoða eyj- una. Það er margvísleg afþreying í boði. Við höfum líka farið í enska kirkju sem Norðurlandabúar og Englendingar sækja yfir hátíðirnar og það er mjög hátíðlegt,“ segir Alda Margrét sem var byrjuð að pakka sumarfötunum í töskur. ■elin@365.is Í SÓL OG BLÍÐU Á KANARÍ UM JÓLIN ÖÐRUVÍSI JÓL Stór hópur sólþyrstra Íslendinga ætlar að verja jólum og áramótum á Kanaríeyjum. Alda Margrét Hauksdóttir er að fara í þriðja skiptið ásamt fjölskyldu sinni og hlakkar mikið til. Hún fór reyndar fyrst árið 1977 og segir margt hafa breyst síðan þá. KLÖRUBAR Fjölskyldan, Alda, maður hennar, Grettir Sigurjónsson, og börnin, Nanna, Einar og Kári, á hinum víðfræga Klörubar þar sem Örvar Grétarsson lék oft íslensk jólalög fyrir gesti. MYND/EINKASAFN BÚIN AÐ PAKKA Alda Margrét er hér með barna- barnið, Unu Björt, sem verður án ömmu sinnar þessi jól. MYND/EINKASAFN Á GÖNGU Alda Margrét og fjölskylda hennar fara daglega í göngu eftir ströndinni en þar er fjölbreytt mannlíf. Þriðja árið í röð býður Veiðiportið upp á glæsilegt fluguhnýtingarsett handa byrjendum sem inniheldur efni í flugur sem hafa sannað sig í ís- lenskum ám og vötnum undanfarin ár. Settið er sett saman af íslenskum flugu- hnýtingarmönnum og inniheldur efni í 20 vinsælustu flugur landsins, bæði ætlaðar til lax- og silungsveiða. Að sögn Tómasar Skúlasonar, framkvæmdastjóra Veiðiports- ins, eru allar þessar flugur löngu búnar að sanna sig gegnum árin hér á landi. „Við köllum þetta „íslenska fluguhnýtingar- settið“ vegna þess að það er sett saman sérstaklega fyrir flugur sem hafa sannað sig hérlendis. Flugurnar eru þó bæði inn- lendar og erlendar og má þar nefna þekkt- ar flugur á borð við Snælduna, Francis, Mýsluna, Nobbler, Krókinn, Black Ghost, Peter Ross Peacock og Black Killer svo einhverjar séu nefndar sem allir reyndir veiðimenn þekkja. Með settinu fylgir einn- ig efnislisti með númerum sem búið er að þýða yfir á íslensku.“ Í fluguhnýtingarsett- inu má einnig finna öngulklemmu, lakknál, keramik-keflisheldu, skæri, fjaðurklemmu og hátt í 100 öngla. Að sögn Tómasar hefur fluguhnýtingar- settið fengið mjög góð viðbrögð en versl- unin hefur selt rúmlega 200 sett undan- farin tvö ár. „Settið er eðlilega stílað inn á byrjendur og hefur vakið mikla lukku. Það hentar fyrir veiðimenn á öllum aldri og meira að segja börn niður í átta ára aldur hafa nýtt það. Svona sett er náttúrulega tilvalið í jólagjafapakkann til veiðimanns- ins. Það er nefnilega fátt notalegra en að ylja sér við heitan kaffibolla á köldum vetrardegi og hnýta nokkrar flugur. Þeir sem eru lengra komnir leyfa oft sköpunar- gáfunni að njóta sín og breyta þekktum flugum örlítið og gera sínar eigin útgáfur. Þær reynast oft betur en frumgerðin og verða í kjölfarið sannarlegar leyniflugur sem enginn fær að sjá nema kannski nán- ustu aðstandendur veiðimannsins.“ Fluguhnýtingarsettið frá Veiðiportinu kostar einungis 14.950 kr. en verðið hefur haldist óbreytt í þrjú ár. Allar nánari upplýsingar má finna á www.veidiportid.is og á Facebook-síðu Veiðiportsins. FLUGUHNÝTINGARSETT Í JÓLAGJÖF VEIÐIPORTIÐ KYNNIR Fluguhnýtingarsettið sem Veiðiportið hefur selt undanfarin ár hefur notið mikilla vinsælda enda hentar það veiðimönnum á öllum aldri. Settið inniheldur efni í 20 vinsælustu laxa- og silungaflugur landsins. SÍGILDAR Tvær þekktar flugur, rauður Francis og svartur Nobbler. MYND/ÚR EINKASAFNI VINSÆLASTAR Fluguhnýtingarsettið inniheldur efni í 20 vinsælustu flugur landsins. MYND/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.