Fréttablaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 46
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 38 BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggvadóttur Einn virtasti tónlistarmaður R&B-heimsins, D’Angelo, gaf út fyrstu plötu sína í fjórtán ár síð- astliðið sunnudagskvöld. Platan ber nafnið Black Mess- iah og er að sögn D’Angelo sú pólitískasta sem hann hefur gert. „Hún fjallar um fólk að rísa upp í Ferguson, Egyptalandi og á Occupy Wall Street-mótmælunum og um alla þá staði þar sem íbú- arnir fá sig fullsadda og ákveða að láta af breytingum verða,“ segir hann. Questlove, trommari The Roots og einn þeirra sem lögðu sitt af mörkum á plötunni, hafði þetta um hana að segja: „Þetta er ástríðuverkefni og þetta er allt. Ég vil virkilega ekki tala um hana með ýkjum eða mikillæti en platan er allt. Hún er falleg, hún er ljót, hún er sannleikur, hún er lygar. Hún er allt.“ D’Angelo gefur út nýja plötu D’ANGELO Tónlistarmaðurinn hefur gefið út sína fyrstu plötu í fjórtán ár. Vefsíðan leikhus.is er nú komin með nýjan og endurbættan vef en þar er hægt að finna allt um leikhús á Íslandi á einum stað. Á vefnum er hægt að nálgast upp- lýsingar um allar leiksýningar á landinu, bæði áhuga- og atvinnu- leikhússýningar. Í tilkynningu frá síðunni, sem stofnuð var af Gunnari Andra Þórissyni frá Söluskóla Gunn- ars Andra, segir að á næsta ári verði síðan vett- vangur lifandi skoðanaskipta um leikhús og leikhúsmál, þar sem hægt verði að lesa umfjallanir, gagnrýni og fleira. Vefurinn var upprunalega stofnaður til að færa leikhúsið nær almenningi og auka mögu- leika áhuga- og atvinnuleikhúsa og hópa til að kynna sig. Uppfærður leikhúsvefur GUNNAR ANDRI ÞÓRISSON Eigandi vefsins leikhús.is „Það var nú bara haft samband við mig frá auglýsingastofu og ég beðinn að búa til sketsa,“ segir Ólafur Ásgeirsson leiklistarnemi, sem sló í gegn í auglýsingum fyrir Orville-popp. „Ég var settur með leikstjór- anum Eilífi Erni Þrastarsyni í verkefnið og við áttum að semja sketsana saman. Það versta var að við þekktumst ekkert svo það tók okkur alveg góðan mánuð að kynnast áður en við gátum farið að vinna að handritinu,“ segir Ólafur. Samstarfið gekk þó á endanum vonum framar og tveimur mán- uðum síðar varð karakterinn Orri Redenbacher til, en hann átti að vera erfingi popprisans. „Orri lifir í einhverri bólu og er alveg sama um annað fólk,“ segir Ólafur, sem fór með hlutverk Orra. Með honum í sketsunum er körfuboltamaður- inn Ragnar Nathanaelsson sem spilar með Sundsvall Dragons í Svíþjóð. Í auglýsingunum ber hann Orra um, þar sem hann telur sig yfir það hafinn að ganga sjálfur. „Þetta var mjög fyndið því hann er miklu stærri en ég. Hann á þakkir skilið því hann skróp- aði á körfuboltaæfingum til þess að vera með í sketsunum,“ segir hann. Ólafur er þessa dagana að sýna trúðasýningu nema í leiklist í Listaháskóla Íslands og stefnir að því að útskrifast í vor. - asi Sló í gegn sem popperfi ngi Leiklistarneminn Ólafur Ásgeirsson hefur vakið athygli fyrir leik í auglýsingu. POPPERFINGINN Ólafur í hlutverki Orra. Með honum í mynd- bandinu er körfuboltamaðurinn Ragnar Nathan aelsson. Það má alltaf deila um hvenær fólk er orðið fullorðið eða hvenær má kalla að það sé orðið ráðsett. Sumir telja sig í fullorðinna tölu á fermingardaginn, aðrir miða við bílpróf, lögráða aldur eða dag- inn sem þeir ganga inn í vínbúð án þess að horfa flóttalega í kringum sig. Stundum eru þeir kallaðir eilífðarunglingar, þessir sem vilja ekki fullorðnast. Þeir sem kalla þá eilífðarunglinga eru stundum kallaðir gamlar sálir. Þegar fólk eignast börn verður það óneitanlega að láta af ýmsum barnalegum siðum sjálft. Kannski má þá telja það fullorðið. En stundum er eins og það renni skyndilega upp fyrir okkur að við erum orðin fullorðin, kannski við ein- hverjar sérstakar aðstæður. ÉG er ekki frá því að ég hafi upplifað þess konar uppljómun fyrir stuttu. Það að ég fylli fjóra tugi á næsta ári hafði ekkert með hana að gera. Þessu laust bara skyndilega niður í kollinn á mér. Á tíunda áratugnum var ég nefni- lega hugfangin af rokkhljómsveit einni og öllum meðlimum hennar. Síðhærður söngvarinn átti hug minn og hjarta í nokkur ár, jafnvel eftir að hljóm- sveitin leystist upp og kenna mætti honum um hvernig fór. Æ síðan hef ég fengið sérstakan sting í magann þegar ég heyri lögin. Gítarsólóin gátu meira að segja komið fram tárum, ég segi það satt. OG nú var von á gítarleikara þessarar hljómsveitar til landsins þar sem hann myndi trylla lýðinn með fingralipurð sinni. Reyndar yrði hann sá eini úr þessari ein- stöku hljómsveit en með einvala lið með sér hafði ég heyrt. Þetta yrði magnað kvöld. ÞEGAR þetta einstaka kvöld rann loks upp var ég vissulega á tónleikum. Tónarnir sem ómuðu í eyrunum komu meira að segja fram tárum við og við. Það voru þó ekki síðhærðir eilífðarunglingar við hliðina á mér, öskrandi um græna grasið í Paradísar- borginni. Ég sat í brakandi baststól við hlið tengdamóður minnar í tilkomumiklum sal Hallgrímskirkju og hlustaði á aðventusöng Mótettukórsins. Þetta var magnað kvöld. OG þá rann það upp fyrir mér. Ég er orðin fullorðin. Paradísarborgin EXODUS 3D KL. 5.45 – 9 MOCKINGJAY– PART 1 KL. 8 – 10.40 DUMB AND DUMBER TO KL. 5.30 – 8 – 10.30 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 5.30 NIGHTCRAWLER KL. 8 – 10.30 ST. VINCENT KL. 5.30 EXODUS 3D KL. 4.30 – 8 – 11 EXODUS 2D KL. 8 – 11 EXODUS 3D LÚXUS KL. 4.30 – 8 – 11 MOCKINGJAY – PART 1 KL. 8 – 10.45 BIG HERO 6 3D KL. 3.15 – 5.30 BIG HERO 6 2D KL. 3.15 – 5.30 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.15 DUMB AND DUMBER TO KL. 5.30 – 8 – 10.30 - EMPIRE JÓLAMYNDIN Í ÁR ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK EMPIRENEW YORK POST siAMS HOLLYWOOD REPORTER EMPIRE ROLLING STONE EMPIRE Jólamyndin 2014 Jólamyndin 2014 HARÐSNÚINN blandari Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 7, 10(P) 4:30 4:30 7, 10 4:30 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.