Fréttablaðið - 17.12.2014, Síða 48

Fréttablaðið - 17.12.2014, Síða 48
 Ég var alveg hættur að geta haldið andliti þarna undir lokin. Lárus Helgi Ólafsson, markvörður HK – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 ellingsen.is Munið gjafabréfi n! Gefðu góða skó PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 4 4 1 5 9 SOREL WINTER CARNIVAL Brúnir og grænir. Stærðir 36,5–41 24.990 KR. ZAMBERLAN TREK LITE Stærðir 40–48 36.990 KR. SOREL YOOT PAC BARNAKULDASKÓR Blá og bleik. Stærðir 25–39 18.990 KR. SOREL CHEYANNE Svartir og brúnir. Stærðir 41–46 34.990 KR. Jólagjöfin fæst í Ellingsen SPORT 17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR HANDBOLTI Lárus Helgi Ólafsson, markvörður HK í Olís-deild karla í handbolta, fór á kostum í leik HK- inga gegn FH á mánudagskvöldið. Hann varði ríflega 20 skot í leikn- um, þar af sjö vítaköst. Því miður fyrir Lárus tapaði HK leiknum með þremur mörkum. „Þetta var að sjálfsögðu gaman, en að sama skapi hrikalega svekkj- andi að tapa leiknum. Við skorum náttúrlega bara átta mörk í seinni hálfleik,“ segir Lárus Helgi í sam- tali við Fréttablaðið. Varnarmenn HK stóðu vakt- ina ekki alveg nægilega vel enda fengu gestirnir úr Hafnarfirðinum heil átta vítaköst. „Það var svekkj- andi að verja þau ekki öll,“ segir Lárus Helgi, en Daníel Matthías- son, línumaður FH, var sá eini sem fann leiðina fram hjá Lárusi af vítalínunni. „Ég var í þeim bolta líka,“ segir hann. En hvernig fara menn að því að verja sjö vítaköst? „Maður var í stuði og svo er þetta smá heppni líka. Bara samspil nokkurra þátta. Ég var alveg hættur að geta hald- ið andliti þarna undir lokin. Við og FH-ingarnir hlógum bara að þessu.“ Sebastian á metið Ótrúlegt en satt er þetta ekki met í efstu deild karla því Sebastian Alexandersson, markvörðurinn þrautreyndi sem er enn að spila í 1. deildinni, varði átta vítaköst gegn Haukum árið 1998. Fram kemur í Morgunblaðinu í grein um þann leik að Sebasti- an hafi bætt met ÍR-ingsins Guð- mundar Gunnarssonar sem varði sjö vítaköst gegn Val árið 1971. HK-ingar, sem tæknilega séð féllu úr deildinni í fyrra eftir ömurlegt tímabil þar sem þeir unnu aðeins einn leik, eru einnig rótfastir við botninn þennan vet- urinn með fjögur stig eftir fimm- tán umferðir. „Það er farið að reyna á okkur að tapa svona mörgum leikjum, sérstaklega að tapa leik eins og gegn Stjörnunni í bikarnum með tólf mörkum. Það er nóg eftir af mótinu en liðin fyrir ofan okkur hafa verið að vinna leiki á meðan við höfum verið að slaka á ef eitt- hvað er. Við verðum að fara að rífa okkur í gang,“ segir Lárus Helgi. Bræðurnir spila saman Þorgrímur Smári Ólafsson, skytta HK-inga og bróðir Lárusar, er markahæstur í liðinu þannig að synir Ólafs Björns Lárussonar verða seint sakaðir um að gera ekki sitt fyrir HK. Þeir spiluðu einnig saman hjá Gróttu og Val. „Það er hrikalega gaman að vera að æfa með honum. Það ger- ist örsjaldan að við rífumst. Þá öskrum við aðeins hvor á annan en svo er það búið. Við förum sam- ferða á flestar æfingar og svona. Við erum bara orðnir pakkadíll,“ segir Lárus Helgi Ólafsson. tomas@365.is Svekkjandi að verja ekki öll Lárus Helgi Ólafsson, markvörður HK í Olís-deild karla, gerði sér lítið fyrir og varði sjö víti af þeim átta sem hann fékk á sig gegn FH í tapleik. HK-ingar eru rótfastir við botn deildarinnar og þurfa að taka sér tak. VÍTABANI Lárus Helgi Ólafsson jafnaði árangur Guðmundar Gunnarssonar frá árinu 1971 en Sebastian Alexandersson á metið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KÖRFUBOLTI Það verða örugglega ánægjulegir endurfundir hjá Önnu Maríu Sveinsdóttur og félögum hennar úr Íslandsmeistaraliði Kefla- víkur frá 1998 þegar hin bandaríska Jenny Boucek kemur til Íslands í janúar. Boucek heillaði alla fyrir tæpum sautján árum og heillaðist sjálf af landi og þjóð. Nú snýr hún aftur og heldur æfingabúðir fyrir stelpur á aldrinum átta til sautján ára. „Björg (Hafsteinsdóttir) fékk þessa hugmynd í haust þegar við settumst niður og fórum yfir það hvernig fjár- öflun vetrarins yrði. Okkur datt í hug að athuga það hvort hún væri til í að koma,“ segir Anna María Sveins- dóttir, sem var spilandi þjálfari Keflavíkurliðsins fyrir sautján árum. „Þegar hún var hérna þá varð hún alveg heilluð af landi og þjóð. Fannst allt æðislegt, fiskurinn og allt þetta. Mamma hennar og pabbi komu og afi hennar og amma komu líka. Það kom öll fjölskyldan til hennar og þetta var mjög sérstakt fyrir erlendan leik- mann og öðruvísi en við áttum að venjast,“ segir Anna María. Jenny Boucek hefur ekki komið til Ísland allan þennan tíma en Anna María segir að þær hafi haldið sam- bandi við hana. „Okkur datt því í hug að spyrja hana hvort hún hefði áhuga á því að koma, setja upp æfingabúðir og jafnvel þjálfarafundi og eitthvað svoleiðis. Hún var meira en lítið til í það,“ segir Anna María. Leikir Jenny Boucek með Keflavík voru síðustu leikir hennar á atvinnu- mannaferlinum en hún meiddist um sumarið og var ekkert með Cleve- land Rockers í WNBA-deildinni eins og árið áður. Jenny Boucek fór strax út í þjálf- un. Hún var aðalþjálfari WNBA- liðsins Sacramento Monarchs frá 2007 til 2009 en hefur lengst af verið aðstoðar þjálfari hjá Seattle Storm og sinnir því starfi í dag. Jenny Boucek kom til Keflavíkur í nóvember 1997 og spilaði alls 18 leiki í öllum keppnum. Keflavík vann 16 af þessum 18 leikjum og varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Boucek skoraði 27 stig í bikarúrslitaleiknum og var með 18,2 stig, 5 stolna bolta og 3,2 stoðsendingar að meðaltali í úrslitakeppninni. „Þetta var algjör sigurvegari sem leikmaður og hún er frábær karakt- er og algjör liðsleikmaður. Þó að hún hafi verið svakalega góð hjá okkur þá var liðið alltaf í fyrsta sæti hjá henni. Þetta er svakalega flottur karakter. Ég var spilandi þjálfari á þessum tíma og hún hjálpaði mér helling. Hún var oft að grípa inn í og koma með hugmyndir. Ég sá því strax þjálfara- takta hjá henni,“ segir Anna María sem hefur engar áhyggjur af ein- hverjum stjörnustælum hjá WNBA- þjálfaranum. „Við vorum að spyrja hana út í það hvort hún væri með einhverjar kröf- ur. Nei það var ekkert svoleiðis. Hún vildi bara vera með okkur og okkar fjölskyldum og komast síðan í rækt- ina einu sinni á dag. Það voru einu skilyrðin sem hún setti. Hún er enn á fullu að æfa og þegar ég talaði við hana á Skype um daginn þá var eins og hún hefði verið geymd í formalíni því það var eins og ég hefði hitt hana í gær,“ segir Anna María í léttum tón. Anna María mælir með því að lauma námskeiðinu í jólapakkann fyrir upprennandi körfuboltakonur. „Krakkar eiga nú allt í dag þannig að okkur fannst það mjög sniðugt að geta boðið þetta sem jólagjöf. Þess vegna vorum við að auglýsa þetta svona snemma og gefum út gjafa- bréf fyrir þá sem vilja,“ segir Anna María. Æfingabúðirnar verða í Keflavík 10. til 11. janúar og er hægt að skrá sig á kvennarad@keflavik.is. Jenny Boucek er yfirþjálfari búðanna og stýrir þeim ásamt fjölda valinkunnra þjálfara og leikmanna úr körfubolta- hreyfingunni. - óój Eins og hún hefði verið geymd í formalíni Jenny Boucek vann tvöfalt með Kefl avík 1998 og snýr nú aft ur sautján árum síðar til að stýra æfi ngabúðum. ÍSLANDS- OG BIKARMEISTARAR 1998 Jenny Boucek með liðsfélögum sínum í Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/BRYNJAR GAUTI HJÁLPAÐI KEFLAVÍK AÐ VINNA TVÖFALT Jenny Boucek í leik með Kefla- víkurliðinu vorið 1998. FRÉTTABLAÐIÐ/BRYNJAR GAUTI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.