Fréttablaðið - 17.12.2014, Qupperneq 50
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 42
FÓTBOLTI „Ég sit bara og bíð,“ segir
Hannes Þór Halldórsson, lands-
liðsmarkvörður í knattspyrnu, við
Fréttablaðið um stöðu sína. Hann-
es lauk sínu fyrsta ári í atvinnu-
mennsku fyrr í vetur þegar hann
féll með norska liðinu Sandnes
Ulf úr úrvalsdeildinni þar í landi
á ævintýralegan hátt.
Hannes átti mjög gott tímabil
þrátt fyrir fall liðsins, en hann
fékk gríðarlega góða dóma allt árið
og sagði í umsögn Verdens Gang
um hann undir lok tímabils að liðið
væri fyrir löngu fallið hefði hans
ekki notið við. Hannes fékk á sig 53
mörk í 30 leikjum með Sandnes og
hélt hreinu í fyrstu þremur leikj-
um undankeppni EM 2014 þar sem
strákarnir eru í góðum málum.
„Það er einhver áhugi hér og þar
en liðin eru ekkert að drífa sig í
að koma með tilboð. Ég er bara að
bíða og sjá hvað gerist. En þang-
að til get ég ekkert annað gert en
undirbúið mig fyrir æfingu hjá
Sandnes 5. janúar,“ segir Hannes.
Hann vill helst ekki spila með
Sandnes í B-deildinni en neyðist
til þess berist ekki tilboð í hann.
„Ef ekkert annað gerist þá er
ég náttúrlega samningsbundinn
Sandnes og þá er ekkert annað
í stöðunni en að spila þar áfram.
En ég er búinn að segja mönnum
þar sem og öllum að ég vilji spila
í betri deild, með fullri virðingu
fyrir Sandnes. Ég er líka alveg
vongóður um að það gerist. Mér
finnst líklegra en ekki að ég fái
tilboð,“ segir Hannes.
Landsliðsmarkvörðurinn er hér
heima á Íslandi þessa dagana og
heldur sér í formi. „Ég er að æfa
með KR og fara í ræktina,“ segir
Hannes sem er að safna orku fyrir
átök næsta árs þar sem hann verð-
ur í eldlínunni í atvinnumennsk-
unni og með íslenska landsliðinu
á því sem verður vonandi sögu-
legt ár.
„Ég hef það bara huggulegt
hérna heima í góða veðrinu,“ segir
hann og hlær við. „Ég var að koma
heim með fjölskylduna úr Smára-
lindinni. Við börðumst í gegnum
storminn. Maður er bara aðeins að
taka fótinn af bensíngjöfinni til að
geta komið inn í nýtt ár af krafti,“
segir Hannes Þór Halldórsson. - tom
Hannes vongóður um að tilboð berist
Landsliðsmarkvörðurinn fer á æfi ngu hjá Sandnes í byrjun nýs árs ef ekkert gerist fyrir áramót.
EINBEITTUR Hannes Þór hélt hreinu
gegn Hollandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Þegar 16 af 26
umferðum dönsku úrvalsdeild-
arinnar í handbolta er lokið
trónir Íslendingur á toppi eins
lista þegar litið er yfir tölfræði
deildar innar.
Varnartröllið og landsliðs-
maðurinn Vignir Svavarsson,
leikmaður HC Midtjylland, hefur
fengið flestar tveggja mínútna
brottvísanir í deildinni. Hann
hefur fengið 16 brottvísanir í 16
leikjum eða eina að meðaltali
í leik sem þykir nú ekki slæmt
fyrir mann sem spilar fasta vörn
og er ansi harður í horn að taka.
Hann er einni brottvísun á
undan Ásbirni Madsen hjá Mors-
Thy og Stefan Hundstrup sem
leikur með Bjerringbo-Silkeborg.
Vignir hefur einnig spilað
sóknarleikinn í Danmörku af
meiri krafti en undanfarin ár og
er markahæsti Íslendingurinn í
úrvalsdeildinni. Hann er búinn að
skora 48 mörk í 16 leikjum, fimm
mörkum meira en hornamaður-
inn Guðmundur Árni Ólafsson hjá
Mors-Thy. - tom
Vignir fær fl est-
ar brottvísanir
VARNARTRÖLL Vignir er harður í horn
að taka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KOSNING Lesendum Vísis gefst færi
á að útnefna íþróttamann ársins
2014 nú um áramótin. Opnað hefur
verið fyrir tilnefningar og er öllum
frjálst að senda inn.
Tekið er við tilnefningum á net-
fanginu ithrottamadurarsins@visir.
is en frestur til að tilnefna rennur út
næstkomandi sunnudag, þann 21.
desember.
Ritstjórn Vísis fer yfir innsendar
tilnefningar og í kjölfarið hefst
atkvæðagreiðsla. Einstaklingurinn
verður heiðraður í byrjun nýs árs.
Í tilnefningunni þarf nafn viðkom-
andi að koma fram auk upplýsinga
um hvers vegna viðkomandi á skilið
að vera útnefndur sem Íþróttamaður
ársins 2014.
Farið verður yfir tilnefningar
með tilliti til rökstuðnings og fjölda
tilnefninga sem hver og einn fær.
Atkvæðagreiðsla fer svo fram á Vísi
yfir jólin.
Tilnefndu þína konu eða þinn
mann á netfanginu ithrottamadur-
arsinss@visir.is með fullu nafni við-
komandi og stuttum rökstuðningi.
Veldu íþróttamann
ársins 2014 á Vísi
Nurofen Apelsin
Íbúprófen mixtúra fyrir börn
á aldrinum 6 mánaða til 12 ára
Fæst í Lyfjum & heilsu
Nurofen Apelsin 40 mg/ml mixtúra, dreifa. Inniheldur Íbúprófen. Til skammtímameðferðar gegn vægum til miðlungi alvarlegum verkjum eða hita. Skammtar og lyfjagjöf: Til inntöku. Dagsskammtur af Nurofen er 20-30 mg/kg
líkamsþyngdar tekin inn í 3-4 aðskildum skömmtum á u.þ.b. 6 til 8 klst. fresti. Mælt er með því að sjúklingar sem eru viðkvæmir í maga taki Nurofen með mat. Ekki ráðlagt fyrir börn yngri en 6 mánaða eða undir 8 kg. Aðeins til
skammtímanotkunar. Leita skal til læknis ef einkenni versna. Ef lyfið er notað án lyfseðils og einkenni barnsins eru viðvarandi í meira en 3 daga skal leita til læknis. Lágmarka má aukaverkanir með því að nota lægsta virka skammt í eins
stuttan tíma og hægt er til að meðhöndla einkenni. Ekki má taka lyfið ef þú: Hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni, bólgueyðandi gigtarlyfjum, hveiti eða einhverju innihaldsefnanna, sögu um berkjukrampa, astma, nefslímubólgu eða ofsakláða í
tengslum við inntöku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja, sögu um blæðingar eða rof í meltingarvegi í tengslum við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyfjum, virk sár, eða sögu um endurtekin sár/blæðingar í maga,
virka blæðingu í heila eða annars staðar, alvarlega lifrarbilun, alvarlega nýrnabilun, alvarlega hjartabilun, storkuvandamál, óútskýrðar truflanir á blóðmyndun svo sem blóðflagnafæð, ert á síðasta þriðjungi meðgöngu, tekur önnur bólgueyðandi
gigtarlyf eða meira en 75 mg af acetýlsalicýlsýru daglega, ert með hlaupabólu, hefur nýlega gengist undir stóra skurðaðgerð, hefur ofþornað. Gæta skal sérstakrar varúðar og ræða við lækni eða lyfjafræðing ef þú ert með, hefur
einhvern tíman fengið eða átt hættu á að fá: Bandvefssjúkdóm, þarmasjúkdóm, hjarta og/eða æðasjúkdóm, skerta nýrnastarfsemi, lifrarsjúkdóm, óþol fyrir sykrum eða ef þú tekur önnur lyf. Regluleg notkun verkjalyfja getur leitt til
varanlegra truflana á nýrnastarfsemi. Andþyngsli geta komið fyrir ef barnið hefur astma, langvinnt nefrennsli, sepa í nefi eða ofnæmissjúkdóma. Örsjaldan hefur verið greint frá alvarlegum viðbrögðum í húð í tengslum við notkun bólgueyðandi
gigtarlyfja. Hætta skal notkun Nurofen Apelsin strax við fyrstu merki um útbrot á húð, sár á slímhúðum eða önnur einkenni ofnæmisviðbragða. Lyf svo sem Nurofen Apelsin geta tengst aukinni hættu á hjartaáfalli eða heilaslagi. Ekki nota
meira en ráðlagðan skammt og ekki lengur en ráðlagt er. Ef blæðing eða sár koma fram í meltingarvegi ætti að hætta meðferð strax. Hættan á blæðingum, sáramyndun eða rofi í meltingarvegi eykst við notkun stærri skammta af bólgueyðandi
gigtarlyfjum, hjá sjúklingum með sögu um sár í meltingarvegi, einkum ef þeim hafa fylgt blæðingar eða rof og hjá öldruðum. Lyfið getur dulið einkenni sýkinga og hita. Sjúklingar með sögu um aukaverkanir í meltingarfærum, sérstaklega
aldraðir, ættu að hafa samband við lækni án tafar og greina frá öllum óvenjulegum einkennum frá meltingarvegi. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi:
Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
• Hitalækkandi
• Verkjastillandi
• Bólgueyðandi
Sýnt hefur verið fram á að Nurofen apelsin slær
á hitann eftir aðeins 15 mínútur og áhrifanna
gætir í allt að 8 klukkustundir
www.lyfogheilsa.is