Fréttablaðið - 24.12.2014, Page 8
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
GLEÐILEGA HÁTIÐ TIL
SJÁVAR OG SVEITA OG
FARSÆLT KOMANDI ÁR
NORÐUR-KÓREA Norður-Kórea
missti internetaðgang sinn í um
níu tíma aðfaranótt þriðjudags og
átti í vandræðum í gærmorgun
með að halda tengingunni við int-
ernetið. Orsökin virtist vera utan-
aðkomandi truflun sem ekki hefur
fengist útskýring á.
Matthew Prince, formaður
fyrir tækisins CloudFlare sem er
internetöryggisfyrirtæki, sagði
að það hefði verið sem allar leið-
ir að internetkerfi Norður-Kór-
eu hefðu horfið. „Það var eins og
Norður-Kórea hefði verið þurrk-
uð út af internetheimskortinu.“
Prince sagði mögulegt að þetta
væri verk einstaklings en sagðist
ekki geta fullyrt hvort um árás
hefði verið að ræða.
Spjótin beindust um leið að
yfirvöldum í Bandaríkjunum
en Norður-Kórea hefur átt í rit-
deilum við Bandaríkin að undan-
förnu vegna kvikmyndarinnar
The Interview sem kvikmynda-
verið Sony Entertainment frum-
sýnir á jóladag. Vegna árása á
tölvukerfi Sony, sem FBI hefur
lýst yfir að hafi komið frá Norð-
ur-Kóreu, og vegna hótana tölvu-
þrjótanna gegn hverjum þeim
sem myndi sjá myndina var hætt
við sýningu hennar en í gær var
ákveðið að henni yrði haldið til
streitu.
Norður-Kórea hefur þvertek-
ið fyrir að hafa átt aðild að tölvu-
árásinni á Sony. Barack Obama
Bandaríkjaforseti leit árásina á
Sony alvarlegum augum og gaf það
út að Bandaríkin myndu bregðast
við með einhverjum hætti. Tals-
kona stjórnvalda vestanhafs sagði
þó að almenningur yrði viðbragð-
anna ekki endilega var.
Dan Holden, sem er yfirmaður
viðbragðsteymis internetöryggis-
mála hjá Arbor Networks, segist
telja það ólíklegt að Bandaríkin
hafi staðið á bak við tímabundið
internetleysi Norður-Kóreu. Hann
teldi þetta einum of augljóst bragð.
„Þú myndir ekki vita af við-
brögðum frá Bandaríkjunum fyrr
en það væri of seint. Þetta lítur
ekki út fyrir að vera verk stjórn-
valda.“
Kína liggur einnig undir grun
en nær allur internetaðgangur
Norður-Kóreu fer þar í gegn. Kína
hefur neitað að hafa haft nokkuð
með málið að gera.
Því hefur einnig verið velt upp
hvort yfirvöld í Norður-Kóreu hafi
af einhverjum ástæðum sjálf tekið
upp á því að leggja niður aðgang að
interneti sínu. Þá hafa hinir ýmsu
hópar aðgerðasinna, á borð við
Anonymus eða Lizard Squad, verið
nefndir sem mögulegir orsaka-
valdar. nanna@frettabladid.is
Óljóst hver olli því að inter-
net Norður-Kóreu lá niðri
Norður-Kórea hafði ekki aðgang að internetinu í um níu tíma í fyrrinótt. Einungis æðstu yfirmenn landsins
hafa aðgang að internetinu vegna strangrar ritskoðunar. Spjótin beinast að Bandaríkjunum eða Kína.
NETLAUS
Norður-Kóreu-
menn voru
netlausir í níu
tíma aðfarar-
nótt þriðju-
dags.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Fæstir Norður-Kóreubúar fundu fyrir því þegar lokað var fyrir internet landsins
þar sem almenningur hefur takmarkaðan aðgang að því.
Í landinu er aðeins eitt IP-net með 1.024 IP-tölum. Mörg tæki geta tengst
sömu IP-tölunni að vísu en þrátt fyrir það teljast Norður-Kóreubúar til þeirra
þjóða sem hafa hvað minnstan aðgang að interneti í heiminum. Til saman-
burðar má nefna að hér á landi er RHnetið eitt og sér, en það er hið íslenska
háskóla- og rannsóknarnet, með yfir 65 þúsund IP-tölur samkvæmt upplýsingum
frá netstjóra ISNIC.
Internetið í Norður-Kóreu er einungis í boði fyrir fáa útvalda; æðstu stjórn-
endur, nokkra sendiherra, nemendur í herþjálfun og örfáa aðra. Jafnvel sendiráð
í Pyongyang hafa verið látin takmarka internetaðgang sinn þar sem hætta er
á að borgarbúar nái tengingu við veraldarvefinn með því að koma sér fyrir
fyrir utan byggingar þeirra. Almenningur hefur hins vegar aðgang að sérstöku
landlægu innra neti, „gervi-interneti“, sem kallast Kwangmyong. Þetta innra net
hefur í mesta lagi um 5.500 vefsíður og fá notendur aðeins að sjá síður sem yfir-
völd í landinu hafa ákveðið að leyfa þeim að sjá.
Hvernig er internetmálum
háttað í Norður-Kóreu?
SVEITARSTJÓRNIR Meirihluti
sveitarstjórnar Mýrdalshrepps
segir óskiljanlegt að fulltrúar
minnihluta M-listans hafi setið
hjá þegar ákveðið var að áfrýja
héraðsdómi um eignarrétt í
Dyrahólaey til Hæstaréttar. Með
dómnum var viðurkennd sam-
tals 18,3 prósent eignarhlutdeild
þriggja einstaklinga í Dyrhóla-
ey. Meirihlutinn segir það vera
skyldu kjörinna fulltrúa að gæta
almannahagsmuna. „Í því sam-
bandi bendir meirihluti sveitar-
stjórnar á sveitarstjórnarlög og
siðareglur kjörinna fulltrúa Mýr-
dalshrepps.“
- gar
Sátu hjá við áfrýjun:
Minna fulltrúa
á siðareglurnar
DYRHÓLAEY Áfrýja töpuðu máli.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR