Fréttablaðið - 24.12.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 24.12.2014, Blaðsíða 38
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 34 Óskar Ófeigur Jónsson ooj@frettabladid.is KÖRFUBOLTI Tómas Heiðar Tóm- asson, 23 ára leikmaður karla- liðs Þórs úr Þorlákshöfn, og Berg- þóra Holton Tómasdóttir, 20 ára leikmaður kvennaliðs KR, eiga fleira sameiginlegt en að hafa nýtt þriggja stiga skotin sín best af öllum leikmönnum Domino’s-deild- anna fyrir jól. Þau eru nefnilega systkini, börn Tómasar Holton og Önnur Bjarkar Bjarnadóttur, sem sjálf voru bæði A-landsliðsmenn á sínum tíma. Fréttablaðið hitti þessi hittnu systkini sem eru uppalin hjá Fjölni en skiptu bæði úr æskufélaginu þegar Fjölnisliðin féllu vorið 2013. Sumir með ákveðið forskot „Ég held að mikið af því sem teng- ist skothæfileikum sé eitthvað sem maður finnur og síðan pínu fæðist með. Það er alltaf hægt að bæta skotið meira og meira með því að æfa sig en sumir hafa kannski ákveðið forskot,“ segir Tómas Heiðar aðspurður hvort þetta sé í genunum. En hverju þakkar Berg- þóra þessa góðu nýtingu? „Það fyrsta sem mér dettur í hug eru góðar skotæfingar frá því ég var lítil, hef alltaf verið með nokkuð gott skot. Annars er þetta bara æfing, skjóta nóg af þristum á æfingum og/eða fyrir og eftir æfingarnar,“ segir Bergþóra. Tómas hefur skorað 24 þrista og nýtt 50 prósent þriggja stiga skota sinna en Bergþóra hefur skor- að 22 þrista og nýtt 39,3 prósent þriggja stiga skota sinna. „Þetta er búið að vera mjög gott tíma- bil fyrir mig. Ég hef tekið á mig aðeins meiri ábyrgð sóknarlega heldur en á síðasta tímabili eða bara áður í úrvalsdeildinni. Ég hef bara gaman af því,“ segir Tómas og hann hrósar liðsfélögum sínum: „Það skiptir miklu máli fyrir skot- menn að fá góð skot og það gerist bara þegar maður er með góða menn í kringum sig,“ segir Tómas. „Tímabilið byrjaði ekki alveg nógu vel hjá okkur KR-stelpun- um, en við höfum bætt okkur með tímabilinu og verðum betri með hverjum degi. Ég er bjartsýn fyrir seinni hluta tímabilsins og mjög spennt,“ segir Bergþóra. Skemmtileg tilviljun Bergþóra og Tómas gleðjast bæði yfir góðu gengi hvort annars. „Þetta er skemmtileg tilviljun en svo er bara alltaf gaman þegar Tómasi gengur vel. Hann er búinn að eiga frábæra byrjun á tíma- bilinu og ég er mjög spennt að sjá hvað Þór kemst langt í deildinni þetta árið,“ segir Bergþóra. „Ég varð óvart góður skotmaður fyrst,“ rifjar Tómas upp í léttum tón. „Ég var alltaf langminnstur í yngri flokkunum og oft var það eina sem ég gat gert að skjóta til þess að skora. Ef ég fór inn í, þá var ég allt of lítill og allt of aumur til að klára eitthvað. Það er ein af ástæðunum fyrir því að ég varð góður skotmaður og svo fann maður það út þegar maður varð eldri að það hefur þvílíka kosti að vera góður skotmaður. Þá fór líka mikið af mínum æfingatíma í það að æfa skotið,“ segir Tómas. Tómas er að spila sitt fimmta tímabil í úrvalsdeildinni en hann vantar enn 109 þrista til að skora jafn margar þriggja stiga körfur og pabbi hans sem skoraði 290 í 319 leikjum frá 1981 til 2000. Berg- þóra er komin fram úr mömmu sinni en hún hefur skorað samtals 78 þrista í 65 leikjum í úrvalsdeild. En hversu líkir leikmenn eru þau systkinin? Með svipaða takta „Ég myndi segja að við séum með svipaða takta inn á milli, en ólík á sinn hátt. Tómas er miklu betri varnarmaður og hefur alltaf verið en við erum greinilega bæði ágætar skyttur,“ segir Bergþóra í léttum tón og Tómas tekur undir þetta. „Ég held að við séum að mörgu leyti nokkuð svipaðir leikmenn. Ég treysti aðeins meira á skot- ið heldur en hún. Hún er á móti með aðeins betri boltatækni en ég, jafnhentari og getur því klár- að meira með báðum höndum,“ segir Tómas. Bergþóra hrósar líka bróður sínum fyrir yfirveg- un á vellinum. „Hann er yfirleitt mjög rólegur og yfirvegaður. Ekk- ert mikið fyrir að röfla í dómur- um né öðrum leikmönnum,“ segir Bergþóra kímin. Kemur oft við eftir æfingar Þau segjast vera mjög samrýnd og tala heilmikið saman um körfu- boltann. „Við tölum mjög mikið saman. Ég á heima í Vesturbænum núna og Bergþóra kemur oft við hjá mér eftir æfingar. Við höfum oft rætt málin og þá erum við oft mikið að fara yfir andlegu hliðina, hvernig maður undirbýr sig fyrir leiki og hvernig hugsunarþáttur- inn þurfi að vera,“ segir Tómas. Foreldrar þeirra styðja líka vel við bakið á þeim. „Ég þarf ekki að leita langt til að fá ráðleggingar,“ segir Tómas og Bergþóra tekur undir það. „Foreldrar okkar eru mjög dugleg að mæta á leiki. Frá því að ég byrjaði í körfu þá held ég að ég hafi nánast alltaf haft annað hvort þeirra á leik hjá mér. Þau eru einnig mjög hjálpsöm eftir erfið töp og samgleðjast í sigurleikjum,“ segir Bergþóra. En hvort þeirra er betri skot- maður? „Ég, ég er rétthent. Nei, ég held að Tómas sé orðinn stöð- ugri skotmaður en ég, enda á ég þrjú ár til góða,“ segir Bergþóra létt að lokum. Samrýnd og hittin systkini Systkinin Tómas Heiðar Tómasson og Bergþóra Holton Tómasdóttir eru bestu þriggja stiga skytturnar í Dominos-deildunum í körfubolta en engir leikmenn hafa hitt betur úr langskotunum í fyrri hlutanum. TALA MIKIÐ SAMAN Tómas Heiðar Tómasson og Bergþóra Holton Tómasdóttir bregða á leik á dögunum. BESTU 3JA STIGA SKYTTUR FYRRI HLUTANS DOMINOS-DEILD KARLA 1. Tómas Heiðar Tómasson, Þór Þ. 50,0% 2. Austin Magnus Bracey, Snæfell 49,4% 3. Nemanja Sovic, Þór Þ. 48,6% 4. Pavel Ermolinskij, KR 47,1% 5. Helgi Már Magnússon, KR 44,6% 6. Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Snæfell 43,6% DOMINOS-DEILD KVENNA 1. Bergþóra Holton Tómasdóttir , KR 39,3% 2. Sólrún Inga Gísladóttir, Haukum 36,7% 3. Berglind Karen Ingvarsd., Breiðabli. 36,2% 4. Guðbjörg Sverrisdóttir, Val 35,7% 5. Carmen Tyson-Thomas, Keflavík 33,3% 6. Björg Guðrún Einarsdóttir, KR 32,3% FÓTBOLTI Áhugamenn um ensku úrvalsdeildina í fótbolta fara ekki í jólaköttinn í ár frekar en fyrri daginn, en eins og alltaf verður boðið upp á heila umferð á öðrum degi jóla. Veislan hefst skömmu fyrir eitt þegar topplið Chelsea tekur á móti West Ham á Stamford Bridge. West Ham hefur komið liða mest á óvart í deildinni og er með 31 stig eftir sautján umferðir. Á síðustu leiktíð náði Stóri Sam markalausu jafntefli á Brúnni með West Ham-liðið og fékk skömm í hattinn frá José Mourinho fyrir leiðinlega og varnarsinnaða knatt- spyrnu. Allardyce hló að Portúgal- anum og mun sækja stig í eintölu eða fleirtölu að þessu sinni með ráðum og dáð. Manchester United tekur á móti Newcastle og reynir að halda í við efstu liðin, en City- menn eiga útileik gegn West Bromwich Albion. Arsenal fær QPR í heimsókn í síðdegisleiknum og Liverpool heimsækir Burnley. Brendan Rodgers og lærisveina hans er farið að þyrsta í sigur eftir fjóra úrvalsdeildarleiki án þess að fá þrjú stig. - tom Fær Stóri Sam síðbúna jólagjöf á Brúnni? STÓRI SAM Allardyce á erfiðan leik fyrir hönd- um gegn toppliði Chelsea. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Óskar Örn Hauksson, framherji KR, er að ná samningum við kanadíska liðið Edmonton FC sem leikur í NASL [North American Soccer League ], næstefstu deild Bandaríkjanna, samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins. Edmonton FC var stofnað fyrir fjórum árum, en liðið hafnaði í níunda sæti af ellefu liðum á fyrri hluta síðustu leiktíðar, en þriðja sæti um haustið. Óskar Örn mun því spila í sömu deild og spænska goðsögnin Raúl sem samdi fyrr í vetur við New York Cosmos. Óskar Örn kom til KR frá Grindavík árið 2006 og hefur spilað átta síðustu tímabil með Vesturbæjarliðinu. Hann á að baki 148 leiki í efstu deild með KR og 30 mörk. Þetta er mikið áfall fyrir KR sem hefur einnig misst fyrirliða sinn, Baldur Sigurðsson, í atvinnumennsku, en þeir hafa verið bestu menn liðsins undanfarin ár. - tom Óskar frá KR til Kanada KÖRFUBOLTI Að venju er dag- skrá NBA-deildarinnar á jóladag glæsileg en tvær af viðureignun- um fimm verða í beinni útsend- ingu á Stöð 2 Sport. Þar ber einna hæst endurkomu LeBron James til Miami eftir að hann sneri aftur til Cleveland í sumar. James fór með Miami fjórum sinnum í lokaúrslitin og vann titilinn tvívegis. Dwayne Wade, fyrrverandi liðsfélagi hans hjá Miami, hvatti stuðningsmenn til að taka honum vel, þó hann viti vel að viðbrögð þeirra verði blendin. „Miðað við það sem hann gerði fyrir félagið ættu stuðningsmenn okkar að taka honum afar vel, að minnsta kosti í upphafi leiks,“ sagði Wade. „Svo þegar út í leik- inn er komið gera þeir það sem þá lystir.“ Leikurinn hefst klukkan 22.00 en klukkan 19.00 verður viður- eign meistara San Antonio Spurs og Oklahoma City Thunder. - esá Kóngurinn snýr aft ur HANS HÁTIGN LeBron James er ekki kallaður kóngurinn að ástæðulausu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY LEIKIR UM HÁTÍÐARNAR JÓLADAGUR 19.00 San Antonio - Oklahoma Sport HD 22.00 Miami - Cleveland Sport HD ANNAR Í JÓLUM 12.45 Chelsea - West Ham Sport 2 HD 15.00 Burnley - Liverpool Sport HD 15.00 Man. Utd. - Newcastle Sport 2 HD 15.00 WBA - Man. City Sport 3 15.00 Swansea - Aston Villa Sport 4 15.00 Leicester - Tottenham Sport 5 15.00 Crystal P. - Southampton Sport 6 15.00 Everton - Stoke Stöð 3 15.00 Sunderland - Hull Bravó 17.30 Arsenal - QPR Sport 2 HD ÍÞRÓTTIR Lesendakosning Vísis á íþróttamanni ársins hófst í gær og stendur yfir hátíðarnar. Tekið var við tilnefningum í tölvu- pósti og er nú hægt að velja á milli þeirra tíu sem flest atkvæði fengu á íþróttavef Vísis. Tilnefndir eru Dagný Brynj- arsdóttir, Eygló Ósk Gústafs- dóttir, Fanney Hauksdóttir, Guð- jón Valur Sigurðsson, Gunnar Nelson, Gylfi Þór Sigurðsson, Jón Arnór Stefánsson, Jón Mar- geir Sverrisson, Norma Dögg Róbertsdóttir og Sif Pálsdóttir. Lesendur velja íþróttamann ársins á Vísi FRÉTTABLAÐ IÐ /PJETU R SPORT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.