Fréttablaðið - 24.12.2014, Síða 23
GLEÐILEG JÓL
Samkvæmt hátíðadagatali íslensku þjóðkirkjunnar er aðfanga-
dagur jóla ekki sérstakur hátíðisdagur. Hann markar lok aðventu
eða jólaföstu og kl. 18 hefst jóladagur. Ástæða þessa er, að í stað
þess að miða upphaf dags við sólarlag, eins og Gyðingar, fast-
settu kristnir menn upphaf daga við miðaftan.
Dagur segir að desember hafi ver-ið annasamur. „Hefðin vill stund-um verða sú að maður sé að gera
hlutina á síðustu stundu. Það örlar á
því núna en hefur þó verið verra,“ segir
hann. „Eitt af því sem fylgir borgar-
stjóraembættinu er að opna jólaskóginn
þannig að nú var ekkert Þorláksmessu-
stress að redda jólatré. Ein af hefðunum
úr föðurfjölskyldu minni er að það megi
ekki skreyta jólatré fyrr en á aðfanga-
dag. Ég held að það séu leifar frá því
að jólatré voru lýst upp með kerta-
ljósum. Fólk var logandi hrætt við þau.
Við hunsum þessa hefð og skreytum á
Þorláksmessu.“
Dagur er alinn upp við hamborgar-
hrygg á aðfangadag en kona hans, Arna
Dögg Einarsdóttir, rjúpur. „Við borðum
með foreldrum mínum þessi jól og fáum
hinn hefðbundna hamborgarhrygg. Það
hefur verið erfitt að fá rjúpur undanfar-
in ár svo þær hafa ekki verið á borð-
um,“ segir Dagur sem á fjögur börn,
Ragnheiði Huldu, Steinar Gauta, Eggert
og Móeiði. „Börnin eru mjög spennt yfir
öllu jólastússinu og ég er ánægður með
jólasveinana í desember, það er heil-
mikið gagn að þeim. Það er auðvelt að
koma börnunum í háttinn á kvöldin og
fram úr á morgnana á meðan skórinn er
í glugganum. Þessi jól verða mikil fjöl-
skyldujól og nokkur jólaboð, enda marg-
ir frídagar sem raðast saman. Arna er
læknir á líknardeild og verður á vöktum
yfir jól og áramót. Ég og börnin finnum
okkur eitthvað til dundurs á meðan,“
segir Dagur, sem er formaður almanna-
varnanefndar og verður á vaktinni sem
slíkur yfir hátíðirnar.
„Það eru engin fundahöld í borgar-
stjórn um jólin svo ég get einbeitt mér
að því að vera pabbi og fjölskyldumað-
ur. Þetta hefur verið viðburðaríkt ár.
Það hefur margt verið að gerast í borg-
inni. Umhverfis- og skipulagssvið hefur
séð um jólaskreytingar og mér finnst
lýsingin sérstaklega falleg í ár. Klukk-
urnar eru íslensk smíði og mjög vel
heppnaðar,“ segir Dagur og bætir því
við að hann hlakki mikið til jólafriðarins
og síðan nýs árs. „Ég vona að árið verði
fjölbreytt og okkur miði fram veginn.
Ég trúi á sígandi lukku og að við fetum
okkur áfram að betra samfélagi. Ég vil
leggja áherslu á góð lífsgæði í breiðum
skilningi. Borgin er lifandi og kraftmikil
sem best sást á aðventunni.“
■ elin@365.is
HLAKKAR TIL
JÓLAFRIÐARINS
JÓL Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hlakkar mikið til jólahátíðarinnar og er
bjartsýnn á að næsta ár verði gott og gæfuríkt. Hann heldur í hefðirnar um
jólin og ætlar að nýta tímann vel með fjölskyldunni.
Í HÁTÍÐARSKAPI
Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri ætlar að
einbeita sér að fjöl-
skyldunni um jólin, fara
í jólaboð og njóta jóla-
friðarins.
MYND/GVA
Skartgripalínan Drífa fæst í
verslun Aurum, Bankastræti 4.