Fréttablaðið - 24.12.2014, Side 23

Fréttablaðið - 24.12.2014, Side 23
GLEÐILEG JÓL Samkvæmt hátíðadagatali íslensku þjóðkirkjunnar er aðfanga- dagur jóla ekki sérstakur hátíðisdagur. Hann markar lok aðventu eða jólaföstu og kl. 18 hefst jóladagur. Ástæða þessa er, að í stað þess að miða upphaf dags við sólarlag, eins og Gyðingar, fast- settu kristnir menn upphaf daga við miðaftan. Dagur segir að desember hafi ver-ið annasamur. „Hefðin vill stund-um verða sú að maður sé að gera hlutina á síðustu stundu. Það örlar á því núna en hefur þó verið verra,“ segir hann. „Eitt af því sem fylgir borgar- stjóraembættinu er að opna jólaskóginn þannig að nú var ekkert Þorláksmessu- stress að redda jólatré. Ein af hefðunum úr föðurfjölskyldu minni er að það megi ekki skreyta jólatré fyrr en á aðfanga- dag. Ég held að það séu leifar frá því að jólatré voru lýst upp með kerta- ljósum. Fólk var logandi hrætt við þau. Við hunsum þessa hefð og skreytum á Þorláksmessu.“ Dagur er alinn upp við hamborgar- hrygg á aðfangadag en kona hans, Arna Dögg Einarsdóttir, rjúpur. „Við borðum með foreldrum mínum þessi jól og fáum hinn hefðbundna hamborgarhrygg. Það hefur verið erfitt að fá rjúpur undanfar- in ár svo þær hafa ekki verið á borð- um,“ segir Dagur sem á fjögur börn, Ragnheiði Huldu, Steinar Gauta, Eggert og Móeiði. „Börnin eru mjög spennt yfir öllu jólastússinu og ég er ánægður með jólasveinana í desember, það er heil- mikið gagn að þeim. Það er auðvelt að koma börnunum í háttinn á kvöldin og fram úr á morgnana á meðan skórinn er í glugganum. Þessi jól verða mikil fjöl- skyldujól og nokkur jólaboð, enda marg- ir frídagar sem raðast saman. Arna er læknir á líknardeild og verður á vöktum yfir jól og áramót. Ég og börnin finnum okkur eitthvað til dundurs á meðan,“ segir Dagur, sem er formaður almanna- varnanefndar og verður á vaktinni sem slíkur yfir hátíðirnar. „Það eru engin fundahöld í borgar- stjórn um jólin svo ég get einbeitt mér að því að vera pabbi og fjölskyldumað- ur. Þetta hefur verið viðburðaríkt ár. Það hefur margt verið að gerast í borg- inni. Umhverfis- og skipulagssvið hefur séð um jólaskreytingar og mér finnst lýsingin sérstaklega falleg í ár. Klukk- urnar eru íslensk smíði og mjög vel heppnaðar,“ segir Dagur og bætir því við að hann hlakki mikið til jólafriðarins og síðan nýs árs. „Ég vona að árið verði fjölbreytt og okkur miði fram veginn. Ég trúi á sígandi lukku og að við fetum okkur áfram að betra samfélagi. Ég vil leggja áherslu á góð lífsgæði í breiðum skilningi. Borgin er lifandi og kraftmikil sem best sást á aðventunni.“ ■ elin@365.is HLAKKAR TIL JÓLAFRIÐARINS JÓL Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hlakkar mikið til jólahátíðarinnar og er bjartsýnn á að næsta ár verði gott og gæfuríkt. Hann heldur í hefðirnar um jólin og ætlar að nýta tímann vel með fjölskyldunni. Í HÁTÍÐARSKAPI Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ætlar að einbeita sér að fjöl- skyldunni um jólin, fara í jólaboð og njóta jóla- friðarins. MYND/GVA Skartgripalínan Drífa fæst í verslun Aurum, Bankastræti 4.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.