Fréttablaðið - 24.12.2014, Side 18

Fréttablaðið - 24.12.2014, Side 18
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| JÓL | 18 Fyrir fimmtán árum fæddi ég yngri son minn á aðfangadagskveldi á Bræðraborgarstíg 13, viðstaddar voru tvær ljósmæður, tvær vin- konur, mamma mín og eldri sonur minn, þá níu ára, ein síams kisa sem var í pössun hjá mér og inni í stofunni píptu kanarífuglar í búri sínu. (Gleðileg jól, öllsömul.) Af hverju ég lét aka mér heim til mín til að fæða veit ég ein, alla vega fékk ég mínu framgengt og urraði bara að ég vildi komast heim þegar mér var ekið fram hjá fæðingardeildinni á leiðinni úr Kópavogi vestur í bæ. Sjálfsagt er fyrir þá sem nenna að hafa skoð- anir á því hversu skynsamlegt það var af mér, einstæðri að bæta á mig barni að annast um, lífið er stundum algjörlega laust við skyn- semi og kannski bara sem betur fer, annars væru ekki svona marg- ir á ferðinni í dag til að hugsa um og það er reynsla mín að helm- ingur mannkynsins hefur sterka tilhneigingu til þess að hugsa um hinn helminginn hvað sem geng- ur á. Nema ég var búin að plana heimafæðingu lauslega, var með símanúmer hjá ljósmóður sem brást svo fallega við þegar ég hringdi til hennar másandi milli hríða, vegna þess að eiginmaður hennar og systir eiga líka afmæli á þessum góða degi, þannig að mér leið ekki eins og að ég væri að trufla hana of mikið þó svo ég tæki hana frá fjölskyldu sinni í miðjum hátíðarmatnum. Fæðingin gekk fljótt og vel fyrir sig, það er ekki ólíklegt að ég hafi verið extra dugleg sjálf vegna nærveru fólksins og þá sérstaklega eldri sonarins sem reyndi staðfastur að halda jól- unum gangandi með því að ein- beita sér að því að opna gjafirn- ar inni í stofu. Og það var meira en sérstakt að hafa nýburann sinn í fanginu og taka upp gjöf- ina frá þeim eldri, sem var teikn- uð ástaryfirlýsing: Ég elska þig MAMMA, inní stóru hjarta með öðrum litlum í kring. Auðvitað er þessi mynd ein af dýrgripunum mínum ásamt annarri teikningu sem er eftir þann yngri og hann gaf mér fyrir tæpum fimm árum þar sem hann heldur utan um mig undir stóru hjarta og sömu yfirlýs- ingu: Ég elska þig MAMMA. En þá var ég ekki að eignast annað barn heldur að glíma við veikind- in sem ég er enn að glíma við, en það er önnur saga og leiðinlegri. Ég hef aldrei séð eftir því að hafa leyft eldri syni mínum að vera við- staddur fæðingu bróður síns, enda skildi hann strax að svona litla og viðkvæma veru þyrfti að passa vel og honum datt engin betri í hug en ég til þess að sinna því hlutverki svo að ég hafði hans skilning mín megin frá og með þeirri stundu að hann hélt á bróður sínum á meðan ég fæddi fylgjuna. Ári síðar hafði mér tekist að bjóða pabba hans hingað til þess að skrifa undir faðernispappíra og hélt nafnaveislu á hinum eina og sanna fæðingardegi, þar sem íbúðin fylltist af fullorðnu fólki og ég trúði því andartak að allt þetta fólk væri þorpið okkar og að við værum partur af hópnum þrátt fyrir að hafa stolið aðalpakkadegi ársins. Ég hafði ekki rétt fyrir mér, hefðirnar eru sterkari og ég varð að skilja að öðrum þætti ekki eins mikið til afkvæmis míns koma og mér sjálfri, svo að ég hef oftar en ekki lánað honum minn afmæl- isdag til hátíðarhalda og þegar honum fór að finnast það asna- legt þá hættum við því og höfum bara hagað seglum eftir vindi og boðið hvern sem er velkominn í tilefni dagsins og hann fær að skipuleggja skemmtun með vinum sínum. Ég hefði ekki trúað því að óreyndu að þessi dagsetning gæti flækt framtíðina, en þið sem deil- ið þessum degi með honum hér á Íslandi vitið sjálfsagt vel hvað ég er að tala um. Það er flókið fyrir fimm ára að skilja að enginn má vera að því að koma í afmælið þitt af því sumir eru uppteknir við að halda upp á afmæli annars stráks frá Nasaret eða verða að fram- kvæma sín ritúöl svo ljósið komist fyrir í myrkasta skammdeginu, en núna á 15da aðfangadeginum skil- ur hann alla betur og finnst bara fallegt að hugsa til þess að svona mörgum líði jafnvel vel á þessum degi og séu vænir hver við annan. Árin sem hafa liðið eru ekki búin að vera auðveld eða einföld, oft erfið og stundum hrikaleg og hann hefur fengið að finna fyrir því að vera sonur mömmu sinnar og uppskorið meiri fordóma vegna mín, heldur en að eiga föður sem er frá Jamaíku. Og það eru senni- legast hin jákvæðustu merki á voru samfélagi að húðlitur er ekki eins mikið tabú þó svo að seint fyrirgefist kvenmanni að fara sínar eigin leiðir þó hún sé ekki að reyna mikið meira en að komast af. Á þessum 15 árum hefur hann flutt níu sinnum og búið lengst þar sem við erum núna eða þrjú ár (gleðileg jól, Félagsbústaðir!). Þess má geta að eldri bróðir hans hefur flutt nítján sinnum og ég nokkuð oftar, blessað basl þetta líf og best að vera alltaf tilbúin að hreyfa sig skyldi eitthvað fýsi- legra finnast. Þegar ég sýndi honum frétt fyrir skömmu þess eðlis að hann væri í hópi þeirra barna og ung- linga sem verst hefðu það í sam- félaginu út frá félagsvísindalegri rannsókn sem mat stöðu hans út frá tekjum mínum, þá rak hann upp stór augu, var eiginlega alveg steinhissa því honum finnst hann aldrei hafa haft það eins gott og núna: við eigum heimili sem okkur líður vel á og þú ert ekki eins veik og í fyrra og hittifyrra og þar fyrrað, það er bara skólinn sem er stundum leiðinlegur og allt þetta áhyggjufulla fólk sem er alltaf að segja mér að ég hafi það slæmt og vill ekki leyfa mér að vinna svo ég geti hjálpað til! Og svo varð hann móðgaður fyrir okkar hönd sem er skiljan- legt því ég hef heldur aldrei skilið tilganginn með þessum útreikn- ingum á því hver hefur það verst ef því fylgja engar aðgerðir. Staða er bara staða sem hægt er að færa sig úr, vandamál eru nokkuð sem hægt er að leysa og ef það kemur nýr dagur á morgun þá hoppum við öll samferða í áttina að fram- tíðinni vitandi að við gerum það á öxlum einhverra sem eru líka að paufast áfram því: Það gerir eng- inn meira en hann getur og gerir varla mikið meira betur, þú ríst eins hátt og sá sem boginn ber þig inn á hamingjunnar lendur og um ill einstigi. Mér finnst ég heppin að vera samferða sonum mínum og þó svo að ég hefði alltaf viljað þeim auðveldari og skemmtilegri tíma þá þarf ég ekki að gera neitt lítið úr því sem ég hef áorkað fyrir þá með því einu að vera alltaf til stað- ar hvernig sem mín staða er eða verður. Á aðfangadag munum við borða mat frá Mæðrastyrksnefnd (gleðileg jól!) sem afmælisbarn- ið mun matreiða og komi nokkur þá verður ekki tómur kofinn og allir sem láta sjá sig fá kraftmik- ið og heiðarlegt knús frá afmælis- barninu. Hann er kannski krakk- inn sem stal jólunum á vissan hátt, en hann er líka hiklaust krakkinn sem minnir mig á jólin allt árið, ekki skrautið og skrumið, heldur tilganginn sem gengur út á sam- veruna og tilfinningalega viður- kenningu á tilhlökkun barnshjart- ans sem við öll finnum fyrir þegar jólin koma sér fyrir í hálsakotinu hjá okkur. Mér er það minnisstætt þegar amma mín, skjálfrödduð, reyndi að útskýra fyrir mér að ég ætti að passa upp á Jesúbarnið í mér með því að passa öll börn og hún hafði nokkuð til síns máls með þeirri áminningu, enda af kynslóð sem mátti hafa fyrir lífinu og ég hugsa oft til hennar því hún var alltaf og ævinlega vakandi fyrir því litla, mikið til út af því að hún hafði særst sjálf. Enginn verður óbar- inn biskup eða óbrenndur bak- ari og barnið sem fæðist í dag er manneskja morgundagsins, bless- uð framtíðin er böðuð í barns- hjörtum sem fyrirgefa manni bröltið í baslinu ef maður gleymir ekki hvar á að kveikja á kertinu sem skreytir afmælistertu dags- ins jafnvel þótt hún sé teiknuð, eða bara pappírshjarta með örfá- um einlægum orðum: Ég elska þig. Gleðileg jól og lifið heilust. Hvar eru jólin? Jólasaga eftir Diddu M YN D : H AL LD Ó R BA LD U RS SO N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.