Fréttablaðið - 24.12.2014, Qupperneq 20
24. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| JÓL | 20
HEIMSÓTTU BÖRNIN Einar Mikael og Viktoría sýndu börnunum töfrabrögð og færðu þeim gjafir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FLOTTIR Ólafur Ingi fékk að halda á dúfunni.
Það er jólalegt um að litast á Barnaspítala Hrings-ins við Hringbraut þegar blaðamann og ljósmynd-ara ber þar að garði rétt fyrir hádegi á Þorláks-
messu. Hér er allt gert til þess að
skapa sem notalegasta stemmingu
fyrir börnin sem hér dvelja og
aðstandendur þeirra en sum þeirra
þurfa að vera hér yfir hátíðarn-
ar. Búið er að skreyta og nokkrar
hjúkrunarkonurnar eru klæddar í
hjúkrunarbúninga með jólamynstri.
Flestir fá að fara heim
Átján börn eru núna á deildinni en
flest þeirra fá að fara heim fyrir
aðfangadagskvöld. „Við reynum eins
og við getum að útskrifa sem flesta,
hliðra til lyfjagjöfum og gera allt til
þess að þau fái að fara heim á jól-
unum ef þau geta,“ segir Fríða Ólöf
Ólafsdóttir aðstoðardeildarstjóri.
„Við náum líklega að útskrifa níu
í dag, þá verða níu eftir á morgun
og vonandi nær allavega helmingur
þeirra að fara heim,“ segir hún.
Á aðfangadagskvöld eru þrír á
vakt. Sjúklingar og starfsfólk fá
jólamat og reynt er að hafa allt sem
hátíðlegast þó að aðstæður séu oft
erfiðar. „Sjúklingar og aðstandend-
ur þeirra fá líka jólamat og sumir
koma með sinn eigin. Síðan kemur
fólk með gjafir og heldur sín jól
hér,“ segir Fríða.
Gleðja börnin
Það er eftirvænting í loftinu þegar
töframennirnir Einar Mikael og
Viktoría ganga inn á deildina í fylgd
sjúkraliðanema frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti sem standa fyrir
komu þeirra. Með þeim í för eru
tvær dúfur sem vekja strax mikla
hrifningu barnanna. Þau sem eru
nógu frísk fara fram á sameigin-
lega setustofu þar sem þau spjalla
við töfrafólkið og fá að gjöf töfra-
bækur og búninga.
Hér koma reglulega skemmti-
kraftar til þess að gleðja börnin í
þeim erfiðu aðstæðum sem þau eru
í. Töfrafólkið vekur mikla gleði hjá
börnunum sem fá að klappa dúfun-
um og gleyma veikindunum um
stund.
Yndislegt starfsfólk
Fimm ára strákur sest með þeim
í sófann og spjallar við þau. Hann
heitir Ólafur Ingi Kjartansson og
berst við hvítblæði. Að sögn móður
hans, Guðrúnar Skírnisdóttur, þá
veiktist Ólafur í febrúar síðastliðn-
um og síðan þá hefur fjölskyldan
þurft að eyða mörgum stundum hér
á spítalanum. Ólafur Ingi er búinn
með tíu mánuði af tveggja og hálfs
árs meðferð sem hann þarf að fara
í vegna veikindanna. Fjölskyldan
er búsett á Akureyri og hefur því
þurft að fljúga mikið á milli til þess
að Ólafur Ingi geti sótt læknis-
meðferðir á spítalanum. Þau segja
ómetanlegt hvað þau hafa gott bak-
land og að starfsfólkið hér Barna-
spítalanum sé einstakt. „Þetta
hefur verið mikið púsluspil. Þegar
systir hans var fermd var hann til
dæmis í einangrun hér á spítalan-
um og pabbi hans var með honum.
Pabbi hans fékk svo að skjótast
heim í nokkrar klukkustundir og
á meðan kom hér ein af starfsfólk-
inu sem var í fríi og passaði hann á
meðan. Þetta er svo yndislegt fólk,“
segir hún. Fjölskyldan fær að fara
norður í dag og halda jólin heima.
Þar bíða tvö eldri systkini Ólafs,
fjórtán og nítján ára. „Það verður
gott að koma heim,“ segir móðir
hans en þau fara svo aftur á spítal-
ann milli jóla og nýárs.
Jólin á spítalanum
Eftir að hafa glatt börnin frammi
ganga töframennirnir milli stofa
hjá börnunum sem voru í sumum
tilvikum of máttfarin til þess að
fara fram og fylgjast með. Á einni
stofunni liggur hin átta ára gamla
Sigrún Birna Þórarinsdóttir. Á
veggjum stofunnar hanga jóla-
skreytingar og við gluggann er
skór enda koma jólasveinarnir
líka við á Barnaspítalanum. Það
er dimmt inni á stofunni þar sem
hún þolir illa ljós eftir að hafa
hlotið höfuðmeiðsl fyrir nokkr-
um dögum. Sigrún slasaðist þegar
hún var að leik með vinum sínum
í frístund. Faðir hennar, Þórarinn
Alvar Þorsteinsson, segir óvíst
hvort þau fái að fara heim á morg-
un. „Við verðum hérna örugglega
eitthvað næstu daga. Hún þarf að
vera farin að borða áður en við
förum heim,“ segir hann. Sigrún
er þreytt en brosir til okkar og
segir að það hafi verið gaman að
fá heimsókn frá töfrafólkinu.
Frammi eru hjúkrunarfræðing-
arnir að fara yfir lista yfir þau
börn sem liggja inni. Allar líkur
eru á að sem flestir fái að fara
heim. „Það verða allavega tvær
fjölskyldur hér annað kvöld. En
það fer ekkert illa um þau. Jólin
eru líka haldin hátíðleg hér,“ segir
Fríða Ólöf brosandi.
Jólin á Barnaspítala Hringsins
Reynt er að skapa jólalega og hátíðlega stemmingu á spítalanum fyrir þau börn sem dveljast þar á aðfangadagskvöld.
STARFSFÓLKIÐ Hjúkrunarfræðingarnir á deildinni voru í jólaskapi.
JAFNAR SIG Sigrún Birna hlaut höfuðmeiðsli fyrir nokkrum dögum og þarf líklega
að vera á spítalanum um jólin.
KÁTUR Ólafur Ingi berst við hvítblæði. Hann fær að fara heim til Akureyrar með
fjölskyldunni sinni um jólin.
KLÖPPUÐU DÚFUNUM Dúfur Einars Mikaels vöktu mikla gleði meðal barnanna.
VILDU GLEÐJA BÖRNIN Sjúkraliðanemar frá FB stóðu fyrir heimsókn töfra-
mannanna.
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is