Víkurfréttir - 20.09.2012, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGURINN 20. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR8
Tíu strigapokar
á Hafnavegi
Lögreglunni á Suður-
nesjum var í
liðinni viku gert
viðvart um að all-
margir úttroðnir
pokar lægju á
Hafnavegi, nærri Höfnum, og að
af þeim gæti reynst slysahætta.
Þegar lögregla kom á vettvang
reyndist um að ræða tíu striga-
poka sem voru fullir af skreið.
Höfðu þeir fallið af vörubílspalli
og var ökumaðurinn á leiðinni til
baka að sækja skreiðina. Engin
óhöpp hlutust af þessu atviki.
Steig á bensín í
stað bremsu
Talsvert var um um-ferðaróhöpp í umdæmi
lögreglunnar á Suðurnesjum í
vikunni sem leið. Ökumaður sem
var að aka inn á bifreiðastæði
steig á bensíngjöf í stað þess að
hemla, með þeim afleiðingum
að bifreiðin fór yfir gang-
stétt og utan í aðra bifreið á
stæðinu. Þá skullu tveir bílar
saman á Reykjanesbraut eftir að
öðrum þeirra hafði verið ekið
inn á veginn í veg fyrir hinn.
Fjarlægja þurfti þá af staðnum með
kranabíl. Þriðja óhappið varð á
gatnamótum á Vatnsnesvegi, þegar
tveir bílar rákust saman. Loks
varð árekstur í Keflavík og fóru
báðir ökumennirnir á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja, þar sem þeir
kenndu eymsla. Ökutækin voru
fjarlægð með tækjabifreiðum.
Þetta var fyrir u.þ.b. 10 árum síðan.
Ég var á námskeiði í Bandaríkjunum
hjá alveg hreint frábærri konu sem
vann við uppeldis- og fræðslumál og
var mér mikilvæg fyrirmynd og men-
tor. Hún hafði skrifað bækur sem ég
hafði lesið af miklum áhuga þar sem
henni var tíðrætt um hversu mikið
sjálfstraust stýrir í lífi okkar. Á nám-
skeiðinu voru konur bæði frá Evrópu og Bandaríkjunum,
vel menntaðar konur sem voru búnar að framkvæma
ótrúlegustu hluti og mér fannst ég lítið peð í þessum
hópi og sjálfstraustið ekki upp á marga fiska. Við borð-
uðum alltaf saman í hádeginu og völdum á sameiginlegt
borð, sögðum hvað okkur langaði í og síðan fór starfs-
maður út og verslaði. Þegar við völdum okkur mat vildi
ég ekki vera með neitt vesen og þegar mig langaði í
sushi einn daginn og einhver setti upp svip og sagðist
ekki borða hráan fisk, bakkaði ég fljótt og sagði: mér
er alveg sama hvað ég borða. Það liðu þrír dagar og ég
endaði yfirleitt á því að segja: mér er alveg sama .........
Á fjórða degi var ákveðið að búa til salat og við áttum
að nefna hvað við vildum hafa í því. Þegar kom að mér
sagði ég: furuhnetur ........og þegar einhver kvennanna
setti upp vandlætingarsvip bakkaði ég strax og sagði:
sleppum bara hnetunum. Þá stóð vinkona mín, men-
torinn upp, barði í borðið og sagði: Anna Lóa, þú skalt
fá þínar furuhnetur og hananú!! Mér krossbrá, horfði á
konuna eins og hún væri búin að ,,missa“ það og sagði:
já en þetta skiptir engu máli - ,,it’s only nuts“!
Mentorinn minn sagði að þetta snerist alls ekki bara
um hnetur, heldur hvernig við látum aðra stjórnast með
líf okkar af því að við tökum ekki ákvarðanir á eigin
forsendum. Stundum væri það vanabundin hegðun að
segja: mér er alveg sama og þá gerir umhverfið ráð fyrir
því að það þurfi ekki að bera virðingu fyrir óskum okkar
eða löngunum. Sjálfstraust okkar ber skaða, því það er
ekki gott að finna að skoðanir okkar skipta ekki máli og
að fólk reikni jafnvel ekki með að við höfum skoðanir
á hlutunum. Mentorinn minn hélt áfram: svo förum við
bara í gegnum lífið eins og lauf í vindi, fjúkum til og frá
eftir því hvað hentar öðrum og tökum ekki ákvarðanir
um hvert við viljum stefna. Anna Lóa, þú segir allt of oft:
mér er alveg sama! Ef þú getur ekki tekið ákvarðanir um
hvað þú ætlar að borða í hádeginu þá skaltu byrja þar
og skoða svo hvernig þú tekur ákvarðanir og velur líf
þitt. Málamiðlanir eru eðlilegar í tengslum við ákveðna
hluti en á heildina litið áttu að velja fyrir þig það sem
þú telur vera gott eða henta inn í líf þitt þá stundina, út
frá eigin smekk, gildismati, styrkleikum og draumum.
Ætlar þú að fara í nám sem er vinsælt þá stundina án
þess að það henti þér, enda í einhverju starfi þar sem
styrkleikar þínir fá ekki notið sín, kaupa föt sem einhver
sölumaðurinn telur þér trú um að fari þér afskaplega
vel, taka næsta mann sem býðst af því þú vilt ekki
vera ein og flytja með honum út í buskann af því að
hann velur það? Svo vaknar þú upp einn daginn með
menntun sem hentar ekki, í starfi sem þú ert óánægð
í, með karli sem þú átt ekkert sameiginlegt með, búsett
í Kasakstan og ofan á allt annað, í fötum sem fara þér
hræðilega illa!! Þetta snýst um að velja sjálfur en ekki
að verða valin, eða láta aðra velja fyrir sig. Trúðu mér, þú
vilt ekki líta til baka og segja: af hverju valdi ég ekki líf
mitt betur! It’s not only about nuts!!
Eftir vikudvöl í Bandaríkjunum var komið að heimferð.
Þegar ég var spurð hvort ég væri með séróskir varðandi
sætaval í flugvélinni breyttist ég á einu augabragði í
Sally (When Harry met Sally) og svaraði: ég vil gjarnan
sitja við gang og helst í sætaröð 9-18. Ef ekkert er laust
þar þá vil ég frekar vera aftar í vélinni en alls ekki aftast
því þar er ekki hægt að halla sætunum. Ég vil ekki vera
beint fyrir aftan neyðarútganginn og ef það eru bíós-
kermar í loftinu þá vil ég alls ekki vera of langt frá einum
slíkum. Síðast en ekki síst vil ég fá sæti með heilum
glugga - alls ekki svona hálfum sem gluggasætis-
farþeginn einokar. You see, I know how to choose my
nuts in life!!
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa
Fylgstu með mér
http://www.facebook.com/Hamingjuhornid
Þú skalt fá þínar furuhnetur!
„Að þessu sögðu er nokkuð ljóst að
það er langsamlega farsælast að vera
með litla snyrtibuddu í töskunni og
sleppa öllum snyrtivöruokurlánum“.
FÉLAG SMÁBÁTAEIGENDA Á SUÐURNESJUM
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Reykjaness verður haldinn í Salthúsinu, Grindavík
laugardaginn 29. september 2012. Fundurinn hefst kl. 17:00
Dagskrá :
• Venjuleg aðalfundarstörf
• Kjarasamningar Landssambands smábátaeigenda:
Umræður og atkvæðagreiðsla.
• Stækkunarmál Smábáta: Umræður og atkvæðagreiðsla
• Tillögur til 28. aðalfundar LS.
• Önnur mál
Gestir fundarins:
Arthur Bogason, formaður LS.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS.
Pétur Sigurðsson, formaður samninganefndar LS.
Kvöldmatur í boði félagsins í fundarhléi.
Smábátaeigendur fjölmennið.
Stjórn Reykjaness
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
LAMPAÚRVAL
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Ryco LCB-T5003 T5 lampi
13W með 1,8 m snúru 59 cm
2.590Ryco LDL-MD418A lampi m.grind 4x18W T8 62x60x8
cm án peru
7.990
Ryco LDL-MD236A
lampi m.grind 2x36w T8
122x30x7,5cm án peru
6.990
Ryco LCL-M1036 T8/G13
lampi 36W 122 cm
2.490m/peru
Ryco lampi án peru
hvítur spegill 2x36W
4.690
Ryco LCL-M2 T8 lampi
2x36W 113 cm IP30
7.990
ATVINNA
TANNLÆKNASTOFA -FRAMTÍÐARSTARF.
Starfskraftur óskast á tannlæknastofuna Tjarnargötu 2
Reykjanesbæ. Æskilegur aldur 35+.
Þarf að geta hað störf eigi síðar en 1. nóv. nk.
Starð felst bæði í afgreiðslu og aðstoð á klinik.
Umsóknir sendist á póstfang jonbjorn@jonborn.is
eða benni@mitt.is fyrir 27. sept. nk.
Fr a m þ r ó u n í í s l e n s k u m sjávarútvegi er mikil þessi
misserin og þar leggja grindvísk
sjávarútvegsfyrirtæki sitt af
mörkum. Íslenski sjávarklasinn
hófst sem verkefni innan Háskóla
Íslands árið 2010 en er nú orðið
að fullstarfandi fyrirtæki sem
stuðlar að tækifærum og styrkir
tengslanet milli fyrirtækja í haf-
tengdri starfsemi á Íslandi og um
allan heim. Samstarfsaðilar klas-
ans eru stjórnendur í fyrirtækjum
sem eru í fremstu röð á sínu sviði
í haftengdri starfsemi og öðrum
greinum.
Eitt af verkefnum klasans er stofnun
Codland sem er fullvinnslufyrir-
tæki með það að leiðarljósi að efla
ímynd og hámarka fullnýtingu á
fisktengdum afurðum. Erla Péturs-
dóttir verkefnisstjóri hjá Vísi hf. í
Grindavík á sæti í stjórn Codlands.
„Codland er fullvinnslufyrirtæki
með það að leiðarljósi að efla ímynd
og hámarka fullnýtingu á þorski í
Norður-Atlantshafi. Á Reykjanesi
er verið að reisa heilsuvöruverk-
smiðju sem nýtir slóg. Verksmiðjan
er við hliðina á þurrverksmiðjunni
Haustaki sem sérhæfir sig í þurrkun
á fiskhausum og beingörðum.
Haustak er jafnframt aðilinn á
bak við Codland. Í verksmiðjunni
verður unnið mjöl og lýsi en einnig
vinnur Codland að þróun frekari
fullvinnslu,“ sagði Erla í samtali við
heimasíðu Grindavíkurbæjar.
„Íslenski sjávarklasinn hefur leitt
þessa þróunarvinnu en það eru
gríðarleg tækifæri í fullvinnslu
um allt Norður-Atlantshaf. Stefna
Codland er einnig að reisa auð-
lindahús í Grindavík þar sem væri
góð aðstaða fyrir fyrirtæki og sér-
fræðinga í fullvinnslu. Við höfum
fundið fyrir miklum áhuga fyrir
þessu verkefni og samstarfsvilja hjá
fyrirtækjum á svæðinu um að nýta
betur hráefnið og skapa verðmæti
og störf,“ sagði Erla ennfremur
en viðtalið má sjá í heild sinni á
grindavík.is.
Codland reisir heilsu-
vöruverksmiðju
Alltaf eitthvað nýtt á vf.is