Víkurfréttir - 20.09.2012, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGURINN 20. SEPTEMBER 2012 • VÍKURFRÉTTIR18
›› Umdæmisþing Kiwanis í Reykjanesbæ:
Nýjustu fréttir
alla daga á vf.is
Kiwanishreyfingin hélt sitt 42. umdæmisþing í Reykjanesbæ
um nýliðna helgi en á þinginu
voru gestir frá Færeyjum, Noregi
og Bandaríkjunum.
Styrktarsjóður Umdæmisins Ís-
land-Færeyjar veitti nokkra styrki
á þinginu. Fyrst má nefna styrk
til átaksins „Á allra vörum“ sem
var styrkt um 500.000 krónur. Þá
styrkti sjóðurinn einnig vitundar-
vakninguna Bláa naglann um
500.000 krónur. Að endingu þá gaf
sjóðurinn sendi í sjúkrabíl Bruna-
varna Suðurnesja. Sendir þessi
tengist Landspítalanum og sendir
upplýsingar um ástand sjúklinga
sem fluttir eru með bílum BS.
Kiwanisklúbburinn Keilir, sem var
gestgjafi umdæmisþingsins, afhenti
einnig gjafir við þetta tækifæri.
Þannig fengu Brunavarnir Suður-
nesja bangsa í sjúkrabílana. Undan-
farin ár hefur Keilir gefið bangsana
í sjúkrabílana en þá nota sjúkra-
flutningamenn til að gefa yngstu
sjúklingunum sem þeir flytja.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar fékk
einnig gjafabréf að andvirði 200.000
kr. til hljóðfærakaupa.
Kiwanis gefur
góðar gjafir
Það er löngu v i t a ð a ð
regluleg hreyf-
ing gefur okkur
a u k n a h a m -
ingju, heilbrigði
og hraustan lík-
ama. En okkur
hefur eflaust ekki grunað að við
myndum verða skýrari í koll-
inum fyrir vikið! Vísindamenn í
The Dartmouth College komust
að því að hreyfing gerir mun
meira fyrir okkur en að koma
blóðflæðinu af stað. Þeir fundu
út að regluleg hreyfing, helst
daglega, eykur framleiðslu á
efni sem kallast ´brain-derived
neurotrophic factor´ eða BDNF,
sem er talið skerpa á einbeitingu
og auka námsgetu og minni.
(http://www.ncbi.nlm.nih.gov/
pubmed/22554780). Það er
lykilatriði að hreyfa sig reglu-
lega og finna þá hreyfingu sem
hentar hverjum og einum. Þetta
ætti nú að vera ein af mörgum
ástæðum til að koma okkur
af stað og þessa dagana eru
líkamsræktarstöðvar og nám-
skeið tengd hreyfingu að byrja
á fullum krafti og margt spenn-
andi í boði. Skarpari hugsun,
sterkari lungu og hjarta- og
æðakerfi, aukin orka, bættara
geð, allt er þetta ávinningur
reglulegrar hreyfingar!
Heilsukveðja,
Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/
grasalaeknir.is
www.facebook.com/grasalaeknir.is
Hreyfum okkkur!
Áttatíu ökumenn
í góðu lagi
Lögreglunni á Suðurnesjum var um miðnætti á sunnu-
dagskvöld tilkynnt um grun þess
efnis að ölvaður ökumaður væri
að leggja af stað frá Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Lögreglumenn
fóru þegar á vettvang og voru um
áttatíu bifreiðir stöðvaðar, þar á
meðal bifreið ökumannsins sem
svaraði til lýsingarinnar í tilkynn-
ingunni. Allir ökumennirnir
reyndust vera í góðu lagi.
Þrjár lendingar
með veika
farþega
Þrjár flugvélar hafa lent á Kefla-víkurflugvelli á undanförnum
dögum með veika farþega. Ein
þeirra, sem var á leið frá Berlín til
New York, lenti á mánudag með
veika konu.
Á sunnudag lenti önnur vél, á leið
frá Abu Dabi til New York, vegna
konu sem veikst hafði hastarlega
um borð. Þriðja flugvélin kom frá
Minneapolis á laugardag og um
borð í henni var aldraður maður
sem átti í öndunarerfiðleikum.
Allir farþegarnir þrír voru fluttir á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og
einn þaðan á Landspítalann.
Grindvíkingar
þurfa líka að
skipta um
gervigras
Í gær var fjölnota íþróttahúsinu í
Grindavík, Hóp-
inu, lokað þar
sem byrjað verður
a ð s k i p t a u m
gervigras í hús-
inu vegna galla.
Á meðan verða æfingar yngri
flokkanna á sparkvöllum við báða
grunnskólana. Hafa æfingarnar
forgang á sparkvellina þangað til
Hópið opnar að nýju um miðjan
október.
Þjálfarar einstakra flokka gefa upp-
lýsingar um hvar æfingarnar verða
hverju sinni.
›› FRÉTTIR ‹‹
Messa verður í Grindavíkur-kirkju sunnudaginn 23.
september kl. 11:00 á 30 ára
afmæli kirkjunnar. Biskup Ís-
lands, Agnes M. Sigurðardóttir,
predikar. Kór Grindavíkurkirkju
leiðir sönginn undir stjórn Bjarts
Loga Guðnasonar organista.
Fermingarbörnin taka þátt í mess-
unni m.a. munu Karólína Ívars-
dóttir og Karlotta Sjöfn Sigurðar-
dóttir syngja. Kaffiveitingar eftir
messu.
Grindavíkursókn fór í stefnumót-
unarvinnu nú í vor undir hand-
leiðslu Gylfa Dalmann mannauðs-
stjóra við HÍ og verður sú vinna
kynnt í kaffinu.
Gamlar myndir verða til sýnis í
safnaðarheimilinu m.a. myndir frá
vígslu kirkjunnar.
Helga Kristjánsdóttir sýnir olíu-
málverk í fordyri kirkjunnar.
Allir velkomnir!
Séra Elínborg Gísladóttir
- Biskup Íslands predikar
30 ára afmælishátíð
í Grindavíkurkirkju
›› Grindavík:
Nú standa yfir miklar um-breytingar í Reykjaneshöll
en skipta á út gervigrasinu sem
þekur gólf hennar. Grasið sem er
fimm ára gamalt, reyndist gallað
frá framleiðanda í Þýskalandi
og því var ákveðið að skipta því
út. Grasið verður að hluta nýtt
áfram en m.a. verður það notað í
göngustíga fyrir golfiðkendur við
Hólmsvöll í Leiru.
Framleiðendur taka á sig hluta af
kostnaði á lagningu á nýju grasi
sem verður það besta og nýjasta
sem í boði er.
Þegar blaðamaður kíkti í heimsókn
í Reykjaneshöll þá blasti við heljar-
innar hrúga af sandi fyrir utan höll-
ina en búið er að sópa upp tæplega
300 tonnum af sandi úr gervigras-
inu. Sá sandur verður hreinsaður
og nýttur að miklu leyti aftur. Inni
er svo byrjað að fletta upp grasinu
en fyrirætlað er að verkinu verði
lokið um næstu mánaðamót en
það verður eflaust kærkomið fyrir
knattspyrnuiðkendur enda vetur
rétt handan við hornið.
›› Skipt um gras í Reykjaneshöllinni:
300 tonn af sandi