Víkurfréttir - 20.09.2012, Side 21
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 20. SEPTEMBER 2012 21
Á NÝJUM STAÐ Í REYKJANESBÆ, BOLAFÆTI 1
421 7708 - www.bilahusid.is
Vox Felix er sönghópur ungs fólks á aldrinum 16 til
25 ára. Stjórnandi er Arnór B.
Vilbergsson sem Suðurnesja-
menn þekkja fyrir margvísleg
skapandi tónlistarstörf, ekki
síst á sviði popptónlistar. Nægir
þar að nefna sýninguna, Með
blik í auga, sem sýnd var fjórum
sinnum á Ljósanótt, fyrir fullu
húsi.
Þarna gefst ungu fólki tækifæri
til þess að kynnast spennandi
hliðum á tónlistinni og láta á sig
reyna í þessu skapandi verkefni.
Kórinn mun taka fyrir létt trúar-
leg verk auk annars tónflutnings.
Kirkjurnar á Suðurnesjum standa
í sameiningu fyrir kórnum.
Nemendur FS geta fengið góða
ástundun metna sem eina ein-
ingu.
Æfingar fara fram í Gamla Grá-
gásar húsinu að Vallargötu 14, kl.
16:45 á fimmtudögum.
Ekki þarf að senda tilkynningu,
bara mæta á svæðið!
Seldu listaverk fyrir
alvarlega veik börn
Hugulsöm börn í Vogunum tóku til hendinni og söfn-
uðu töluverðu fé fyrir börn sem
glíma við alvarlega, sjaldgæfa og
ólæknandi sjúkdóma. Börnin sem
eru á aldrinum þriggja til níu ára
söfnuðu pening með því að teikna
sjálf myndir og ganga í hús og
selja íbúum Voga, sem tóku afar
vel í uppátækið.
Móðir eins listamannsins sagði í
samtali við Víkurfréttir að börnin
hafi átt hugmyndina alveg skuld-
laust og voru þau vöknuð fyrir
allar aldir og farin að teikna nú um
helgina. Vel gekk að selja glæsileg
listaverkin og söfnuðust á annan tug
þúsunda króna sem renna munu
í söfnunina Á allra vörum, en um
100 milljónir hafa þegar safnast.
Fimmtudaginn 23. ágúst hélt 0% Suðurnes stofn-fund sinn í Grágás í Keflavík. 0% Suðurnes er
klúbbur í 0% hreyfingunni sem eru samtök fyrir
ungt fólk á aldrinum 14 - 30 ára sem valið hefur sér
lífsstíl án áfengis og annarra vímuefna.
Á stofnfundinum var kosin ný stjórn og er stjórninni
ætlað að gera starfsáætlun fyrir klúbbinn og hafa m.a.
hitting og viðburði fjórum sinnum í mánuði til að
byrja með.
0% Suðurnes er í Grágás Vallarbraut 14 í Keflavík en
þar er hópur fólks sem ætlar að gera gamla Grágásar-
húsið að flottri félagsmiðstöð fyrir ungt fólk.
0% Suðurnes stóðu fyrir kynnningu starfsins í opnu
húsi í Grágás á Ljósanótt.
Margir velunnarar klúbbsins hafa styrkt þau myndar-
lega meðal annars með fjárstyrkjum eða gjafabréfi á
hraðlestrarnámskeið og munu styrkirnir nýtast vel.
0% Suðurnes ætlar að hafa samvinnu við æskulýðsstarf
á Suðurnesjum, íþróttafélög og fleiri.
Ný stjórn 0% 2012-2013: Formaður, Helgi Laxdal, rit-
ari, Þorgeir Steingrímsson og gjaldkeri, Ólafur Veigar
Jarlsson ásamt meðstjórnendum og varamönnum.
0% hreyfingin hefur í 3 ár staðið fyrir vikulegum at-
burðum í Reykjavík þar sem félagsfólk hittist sér til
skemmtunar og afþreyingar. Sumarnámskeið ACTIVE
Evrópusamtakanna var haldið á Úlfljótsvatni í byrjun
ágúst og voru hér 250 ungmenni frá 25 þjóðum sem
skemmtu sér í viku í vímulausu umhverfi.
„0% hreyfingin sér þörf fyrir því að skapa vímulausa
skemmtun fyrir ungt fólk og vill bæta aðstöðu ungs
fólk á þeim vettvangi,“ sagði Helgi Laxdal nýkjörinn
formaður 0% Suðurnes.
0% Suðurnes tekið til
starfa í gömlu Grágás
Ungbarna-
söngnámskeið
í Keflavík
Fimmtudaginn 27. sept. kl. 11:00 hefst í "Gamla Grágásar
húsinu" í Keflavík ungbarnasöng-
námskeið í umsjá Ester Daníels-
dóttur van Gooswilligen.
Ungbarnatrallið eða "Babysong" er
frábært námskeið sem farið hefur
sigurför um alla Skandinavíu. Nám-
skeiðið að þessu sinni er sérstaklega
ætlað ungum mæðrum og nær yfir
10 skipti.
Námskeiðið er ókeypis og er skrán-
ing þegar hafin. Hámark 12 börn
með foreldri komast að.
Nánari upplýsingar og skráning eru
hjá Ester í síma 694 3146 eða hjá
ester@herinn.is
Hjálpræðisherinn í Reykjanesbæ
Vox Felix
- sönghópur fyrir 16-25 ára
Frá vinstri efri röð: Björn Hermann, Kristín Júlíana 10 ára, Alexandra Líf 7 ára, Anna
Hjartadóttir 7 ára, Anna Ingibjörg 7 ára, Emma 8 ára. Neðri röð frá vinstri: Viktoría 6 ára,
Arnbjörg Hjartadóttir 5 ára, Andrea 3 ára. Karen Lind 7 ára.