Víkurfréttir - 20.09.2012, Side 23
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 20. SEPTEMBER 2012 23
Helgina 28.-30. september næstkomandi verður fullt
hús fróðleiks hjá Keili á Ásbrú,
sem er í sjálfu sér ekki frétt-
næmt, nema að þá helgi stendur
Íþróttaakademía Keilis fyrir ráð-
stefnu fyrir fagfólk úr íþrótta- og
heilsugeiranum. Slíkar ráðstefnur
eru mikilvægur þáttur í endur-
menntun þjálfara og annars fag-
fólks er starfar við heilsutengd
störf þar sem mikil framþróun á
sér stöðugt stað í rannsóknum og
aðferðafræði íþrótta- og heilsu-
fræðinnar.
Um 20 fyrirlesarar flytja erindi og
standa að vinnustofum, þar af koma
tveir erlendis frá. Johnny Gillespie,
þekktur yoga- og styrktarþjálfari frá
Bandaríkjunum verður aðalfyrir-
lesari en hann er eigandi líkams-
ræktarstöðva í Delaware og hefur
getið sér gott orð innan Banda-
ríkjanna fyrir þjálfunaraðferðir
sínar og er reglulegur fyrirlesari
hjá hinum virtu þjálfarasamtökum
National Strength & Conditioning
Association. Johnny er sérfræð-
ingur í hreyfikeðju mannslíkamans
og kennir áhrifaríka aðferð við að
virkja vanvirka vöðva, hvort sem um
er að ræða atvinnufólk í íþróttum
eða almennt kyrrsetufólk. Til þessa
blandar hann saman yoga-æfingum
og hefðbundinni styrktarþjálfun en
hann predikar að keðjan sé aldrei
sterkari en veikasti hlekkurinn.
Einnig mætir Norðmaðurinn Altle
Arntzen sem starfar sem þjálfunar-
og vörustjóri (product manager) hjá
líkamsræktarkeðjunni ELIXIA sem
er ein sú stærsta á Norðurlöndum.
Atle á einn stærstan þátt í viðsnún-
ingi í söluaukningu einkaþjálfunar
innan fyrirtækisins en ELIXIA
hefur stungið samkeppnisaðila sína
af í veltuaukningu síðan 2007 og
ber nú herðar og höfuð yfir aðra
á einkaþjálfaramarkaði Norður-
landa. Fyrirlestrar Atle fjalla um
mikilvægi þjónustu og áhrifaríkar
aðferðir við sölu á þjónustu eins og
einkaþjálfun. Flest heilsufagfólk,
svo sem nuddarar, sjúkraþjálfarar
og styrktarþjálfarar geta auðveld-
lega tileinkað sér aðferðafræðina
sem Atle kennir.
Fjöldi íslenskra fyrirlesara verða
einnig á staðnum með fyrirlestra
og vinnustofur þar sem hugsunin
er að miðla þekkingu og reynslu
fagfólks til fagfólks. Þátttakendur
geta valið á milli tveggja til þriggja
fyrirlestra hverju sinni svo að dag-
skráin verður ekki einslit hjá öllum
þátttakendum. Þannig ná gestirnir
að hámarka hag sinn af ráðstefn-
unni með því að velja efnistök eftir
áhugasviði hvers og eins.
Nánari upplýsingar um dagskrá og
fyrirlesara þjálfararáðstefnu ÍAK
er að finna á vefsíðu Keilis: www.
keilir.net/iak.
Keflvíkingar náðu í langþráðan sigur á heimavelli í Pepsi-deild karla í fótbolta
um síðastliðna helgi, en þá unnu þeir stór-
sigur á liði Fram, 5-0. Glöggir áhorfendur
hafa sjálfsagt tekið eftir því að Keflvíkingar
hituðu upp á vallarhelmingi Nettóvallarins
sem snýr að íþróttahúsinu við Sunnubraut og
svo skiptu þeir einnig um varamannaskýli en
vanalega sitja varamenn í skýlinu sem er nær
Hringbrautinni.
Zoran Ljubicic þjálfari Keflvíkinga viðurkenndi
að þarna hafi Keflvíkingar verið að reyna að
breyta til en þeim hefur ekki gengið sérlega vel
á heimavelli í sumar. „Okkur hefur gengið betur
á útivelli í sumar og ákváðum að vera útiliðið að
þessu sinni,“ sagði Zoran léttur í bragði í sam-
tali við Víkurfréttir. „Það var ákveðin sálfræði í
þessu og maður getur svo sem sagt ýmislegt eftir
á, þar sem þetta virðist hafa heppnast.“
Zoran hrósaði engu að síður leikmönnum sínum
enda vinnast leikirnir ekki í varamannaskýl-
unum. „Þeir lögðu sig alla fram og sýndu þetta
Keflavíkurhjarta, þannig unnum við leikinn.“
Þjálfarinn viðurkenndi að honum hafi verið létt
enda var þetta sannkallaður sex stiga leikur.
„Þarna voru að mætast lið sem voru að berjast
fyrir lífi sínu og það var allt undir. Nú förum við
aðeins rólegri í næsta verkefni en þar mætum
við öðru liði sem er að berjast fyrir sæti sínu í
deildinni,“ en þar á Zoran við lið Selfoss en sá
leikur fer fram í dag, fimmtudag. Zoran segir að
Keflavíkurliðið geti með með góðu móti komist
upp töfluna í lok móts en það sé algerlega undir
leikmönnum komið, möguleikinn sé sannarlega
fyrir hendi.
Keflvíkingar eiga þrjá leiki eftir: Gegn Selfossi
á útivelli í dag, Breiðablik heima og loks KR á
útivelli. Sem stendur eru Keflvíkingar í 7. sæti
með 27 stig en liðið í 2. sæti er með 31 stig. Það
getur því ýmislegt gerst á lokasprettinum í þess-
ari jöfnu deild.
Flestum knattspyrnuáhugamönnum er líklega ljóst að Grindvíkingar féllu ný-
lega úr Pepsi-deild karla í knattspyrnu eftir
2-1 tap gegn ÍBV í Eyjum. Þar náðu þeir á
ævintýralegan hátt að bjarga sér frá falli í
fyrra en frá byrjun sumars hafa Grindvík-
ingar siglt hægt og bítandi að feigðarósum,
og nú er fallið orðið staðreynd.
„Stemningin er eins og búast má við, en þegar
þetta er orðið að veruleika þá er soldið þungt
yfir mönnum,“ sagði fyrirliði Grindvíkinga,
Ólafur Örn Bjarnason í samtali við Víkurfréttir
fyrr í vikunni. „Þetta er kannski búið að vera í
kortunum undanfarinn mánuð eða svo, jafnvel
í allt sumar. Þetta kemur alls ekki upp sem eitt-
hvert áfall allt í einu. Við vitum það sem erum
í þessu og þeir sem hafa verið að fylgjast með
fótbolta að þetta hefur alveg verið í spilunum,“
heldur Ólafur áfram.
Grindvíkingar eiga enn eftir að leika þrjá leiki
og telur Ólafur að nálgunin verði sú sama í þá
leiki eins og alla aðra. „Þó svo að liðið sé fallið
þá þýðir það ekki að menn leggi sig ekki fram í
þá leiki sem eftir eru. Við erum jú íþróttamenn
og viljum alltaf vinna, sama hver staðan er. Ég
veit ekki hvort það sé einhver misskilningur
en menn vilja alltaf vinna og reyna að gera sitt
besta. Það verður ekki skortur á vilja í síðustu
verkefnunum en það er bara spurning um
hversu langt menn fara á því.“
Síðasti heimaleikur Grindvíkinga í efstu deild
að sinni er gegn Íslandsmeisturum síðasta árs,
KR en þeir röndóttu hafa ekki átt góðu gengi
að fagna að undanförnu. „Þó svo að þeim hafi
ekki gengið vel að undanförnu þá vita flestir Ís-
lendingar að KR er sennilega best mannaða lið
Íslands í dag. Við erum væntanlega ekki að fara
að spila við KR á næsta ári og því verður gaman
að mæta þeim,“ segir Ólafur en hann vill jafn-
framt hvetja Grindvíkinga til þess að fjölmenna
á leikinn og hita vel upp fyrir lokahófið sem
fram fer fljótlega.
Ólafur segir að stuðningurinn á bak við liðið
og gengi liðsins haldist að vissu leyti í hendur.
„Það hefur alltaf verið viss stuðningur bak við
Grindavíkurliðið sama hvert gengið er. Þegar
útlitið var orðið fremur svart fyrr í sumar,
þá fann maður að trúin var aðeins farin að
minnka og því voru kannski færri að mæta á
völlinn. Þetta var þó svipað og undanfarin ár
nema í ár var útlitið orðið slæmt snemma á
tímabilinu.“
En eru Grindvíkingar þá með lakasta lið
deildarinnar?
„Það skiptir ekki öllu máli hvað mér finnst, því
taflan lýgur ekki. Þegar þú ert þetta langt frá
hinum liðunum og miðað við framistöðuna
í sumar, þá er ekki hægt að mótmæla stöð-
unni. Svo má alltaf reyna að finna einhverjar
ástæður fyrir slæma genginu. Auðvitað hafa
mikið af lykilmönnum verið á hliðarlínunni
vegna meiðsla. Þannig er hægt að segja, að
ef við hefðum haft alla þá leikmenn, hvernig
hefði okkur gengið þá? Það er tilgangslaust að
tala um það, staðan er eins og hún er og menn
verða bara að sætta sig við það.“
Á tvö góð ár eftir
Fyrirliðinn Ólafur er nú orðinn 37 ára gamall og
segist hann ætla að hugsa sig vel um að loknu
tímabili um hvert framhaldið á hans ferli verði.
„Maður þarf vissa fjrlægð frá þessu áður en
maður tekur fullmótaða ákvörðun um fram-
haldið. Maður heldur öllu opnu,“ segir Ólafur
en hann segir að líkamlega sé hann enn í fínu
standi. „Það er þó þannig að þegar það gengur
illa þá tekur það bæði á líkamlega og andlega, frá
því verður ekki hlaupið og maður tekur það með
í reikninginn þegar tímabilið verður gert upp.“
Í fyrra þjálfaði Ólafur lið Grindvíkinga ásamt
því að leika sjálfur með liðinu en það segir
hann hafa verið ómögulegt. „Ég hef tvímæla-
laust áhuga á því að þjálfa en fyrir mér var
erfitt að sameina það að spila og þjálfa í fyrra.
Ég hef þó ennþá gaman af því að spila fótbolta
og sé fyrir mér að geta gert það áfram. Þjálf-
unina hefur maður þó bak við eyrað en ég hef
áhuga á að reyna fyrir mér á þeim vettvangi.“
Blaðamaður þykist greina að Ólafur hafi hug
á að spila áfram og hann segist vilja gera það
meðan hann hefur enn gaman af fótboltanum.
„Þetta eru kannski tvö síðustu árin sem maður
getur spilað fótbolta en þjálfun er svo í boði
síðar. Maður verður bara að setja þetta inn
í þessa jöfnu og taka svo einhverja gáfulega
ákvörðun,“ segir Ólafur að lokum.
- Grindvíkingar munu leika í 1. deild í knattspyrnu að ári
Taflan lýgur ekki
Keflvíkingar voru útilið á heimavelli
Fagráðstefna
þjálfara
á vegum
Íþróttaaka-
demíu Keilis