Víkurfréttir - 20.09.2012, Síða 24
Glötuð sál
Hann var sp enntur fyrir helginni. Föstu-
dagurinn leið á ljóshraða
og fyrr en varði var hann
í afgreiðslunni í Ríkinu.
Kunnugleg andlit komu
fyrir sjónir í hverju horni en
suma þekkti hann alls ekki.
Fólkið talaði útlensku. Hann kom því ekki
fyrir sig hvaðan það var og skipti hann engu
máli. Hann var að hugsa um sjálfan sig og
kvöldið framundan. Í hverju hann ætti að
fara? Jakkafötum eða bara þægilegum galla-
buxum og sportjakka. Það var ekki oft sem
hann fór út á lífið núorðið en þegar svo bar
undir, langaði hann til þess að líta vel út.
Grásprengt hárið var eilítið úfið og þykkt
en nú var allt of seint að fara í klippingu til
Ragga. Hann yrði bara að setja gel í hárið og
vona að það héldi.
Bjórinn var volgur en góður. Rann niður þurrar kverkarnar. Hann fann hvernig
áhrifin liðu upp í höfuð og út í líkama.
Áhyggjur hversdagsins urðu að engu.
Framtíðin þokkalega björt. Hann hafði náð
athygli á vinnustaðnum fyrir fádæma góða
frammistöðu og nú lá leiðin eflaust upp
á við. Hann saknaði þó fjölskyldulífsins.
Konan farin og börnin með. Hún hafði
gefist upp á honum. Labbaði bara út einn
daginn án þess að kveðja. Hann saknaði
barnanna og umstangsins í kringum þau.
Það þýddi ekkert fyrir hann að rembast
eftir á. Hann hafði sjálfur fyrirgert öllum
rétti sínum í ölæði og rugli. Hann vissi það
mæta vel hvað hann hafði gert og tók af-
leiðingunum.
Vinnustaðagleðin stóð stutt. Hann drakk óvenjumikið og var málglaður.
Ofmetnaðist í sjálfumgleðinni. Stelpurnar
forðuðust hann og gömlu vinirnir sátu uppi
með gamlar tuggur um fyrri afrek. Höfðu
heyrt þær allar áður. Fortíðarþráin átti ekki
síður hug hans en framtíðin. Hann ætlaði
sko að sýna öllum að hann væri maðurinn.
Félagarnir sneru sér undan um leið og hann
gúlpaði enn einum bjórnum niður. Hann
var bæði orðinn þvoglumæltur og leiðin-
legur. Kjagaði milli borða og lét öllum illum
látum.
Leigubílstjórinn þekkti hann vel og kom honum niður í bæ. Hafði margsinnis
ekið honum í gegnum tíðina. Vorkenndi
honum. Sá hann hverfa inn í þvöguna. Enn
einu sinni. Ljótan hafði heltekið andlitið og
baráttan um sjálfsvirðinguna þvarr dag frá
degi. Hrókur alls fagnaðar í hópi glataðra
sála sem hittust helgi eftir helgi. Á sama
stað. En nóttin var döpur. Daprari en nokk-
urn tímann áður.
vf.is
Fimmtudagurinn 20. september 2012 • 37. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18
Akureyri Furuvöllum 15. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-14
Húsavík Garðarsbraut 50. Opið virka daga kl. 8-18
Vestmannaeyjar Flötum 29. Opið virka daga kl. 8-18
Sérfræðingar í
rykSugum
Ryk/blautsuga Drive ZD10-50L
1000W, 50 lítrar
27.900,-
Ryk/blautsuga Drive ZD98-3B 3000W,
3 mótorar 90 lítrar, PP vatnstankur
47.990,-
Ryk/blautsuga Drive ZD98A-2B 2000W,
70 lítrar
42.890,-
Arges HKV-100GS30 1000W, 30 lítrar
25.900,-
Arges HKV-200GS60 2000W, 60 lítrar
39.900,-
Spandy heimilisryksuga
1600W, HEPA filter
5.990,-
Drive Bískúrsryksugan 1200W,
20 lítrar
6.990,-
Soteco 900W
4 þrepa hreinsun, afar hljóðlát
29.900,-
Junior 315 1000W ítölsk
vatns- & ryksuga
49.900,-
Fyrir fyrirtækin Fyrir alvöru verktaka Fyrir meistara
Fyrir minni spámenn Fyrir stærri spámenn Fyrir iðnaðarmanninn
Fyrir bílskúrinn
og verðverndina
Fyrir húsbóndann Fyrir læknaFyrir alla
Arges HKV-100GS15 1000W, 15 lítrar
21.900,-
Nýjustu fréttir
alla daga á vf.is
Ekki er vika án
Víkurfrétta - sem koma
næst út fimmtudaginn
27. september 2012.
Bókið auglýsingar í síma
421 0001 eða á fusi@vf.is