Gerðir kirkjuþings - 01.01.1968, Page 2

Gerðir kirkjuþings - 01.01.1968, Page 2
Kirkjuþing hinnar íslenzku þjóðkirkju, hið 6. í röðinni, var kvatt saman í Reykjavík miðvikudaginn 16. október. Hófst það með guðsþjónustu í Neskirkju kl. 14 þann dag. Sr.Þorgrímur Sigurðsson, prófastur, pródikaði og þjónaði fyrir altari. Að guðsþjónustu lokinni fór þingsetning fram í safnaðarsal Nes- kirkju og þar voru þingfundir haldnir. í þingsetningarræðu sinni minntist forseti þingsins, herra Sigurbjörn Einarsson, biskup, fyrrv. kirkjuþingsmanns, Jónasar Tómassonar, tónskálds, ísafirði. Hann átti sæti á Kirkjuþingi 1958-64. Þingfulltruar heiðruðu minningu hans með því að rísa ur sætum. Á þessum fyrsta fundi var kosin kjörbréfanefnd. Kjörnir voru: Steingrímur Benediktsson, sr. Þorgrímur Sigurðs- son, sr. Björn Magnósson, sr. Sigurður Guðmundsson og Þóróur Möller. Kl. 16 sama dag var 2. fundur þingsins. Kjörbrófanefnd skilaði áliti. Hafði hún athugað kjörbréf þingmanns VII. kjör- dæmis, Erlends Björnssonar, Vatnsleysu, en hann hafði ekki áður getað setið á þingi. Var kjörbréf hans samþykkt. Fyrri varaforseti var kjörinn Þórarinn Þórarinsson, annar varaforseti sr. Gunnar Árnason. Skrifarar voru kosnir þeir Steingrímur Benediktsson og sr. Sigurður Guðmundsson. Samkvæmt þingsköpum voru kosnar tvær fastanefndir. í löggjafarnefnd hlutu kosningu: Friðjón Þórðarson, Jósefína Helgadóttir, sr. Þorsteinn B. Gíslason, sr. Gunnar Árnason, Þgrður Möller, Þórarinn Þórarinsson, sr. Þorbergur Kristjánsson, sr. Björn Magnósson. Form. löggjafarnefndar var kosinn sr. Þorsteinn B. Gxslason, ritari sr. Gunnar Árnason.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.