Gerðir kirkjuþings - 01.01.1968, Page 4
6. KirkjuÞing
1. mál
Frumvaro til laqa um biskupsdæmi
hinnar íslenzku þjóðkirkju.
Fyrir Kirkjuþingi 1966 lá frv. um biskupa hinnar
íslenzku þjóðkirkju. Var það afgreitt á því þingi með
svofelldri ályktun:
"Kirkjuþing ályktar að vísa frumvarpinu um biskupa hinnar
íslenzku þjóðkirkju til biskups og kirkjuráðs til frekari
undirbúnings undir næsta Kirkjuþing".
í samræmi við þessa ályktun lagði biskup f.h. kirkjuráðs
fram það frumvarp, er hér fer á eftir. í gerðabók kirkjuráðs
er tekið fram, að þótt ráðið hafi talið sór skylt að framkvæma
þá endurskoðun á þessu frv., sem því var falin af síðasta
Kirkjuþingi, telji einstakir kirkjuráðsmenn sig óbundna
gagnvart frv. og einstökum greinum þess. Einn kirkjuráðsmaöur,
Þórarinn Þórarinsson, lét bóka sérstaklega, að hann væri andvígur
því ákvæði frumvarpsins, að biskupum sé fjölgað í þrjá og telji
tvo nægja.
Frumvarpið fer hér á eftir eins og kirkjuráð gekk frá því.