Gerðir kirkjuþings - 01.01.1968, Síða 5

Gerðir kirkjuþings - 01.01.1968, Síða 5
6. KirkjuÞinq 1. mál • 1* gr. Biskupsdæmi hinnar íslenzku þjóðkirkju skulu vera þrjú, Reykjavíkur- Skálholts- og Hólabiskupsdæmi, og skulu biskupar sitja á stöðum þeim, sem biskupsdæmin eru við kennd. Kirkju- málaráðherra getur ákveðið, að Holabiskup skuli einnig hafa annað aðsetur í biskupsdæminu, ef meiri hluti sóknarpresta og safnaðarfulltrua biskupsdæmisins óskar þess. 2. gr. Takmörk biskupsdæmanna eru hin sömu og var til forna, en undan Skálholti takast Reykjavíkur- og Kjalarnessprófasts- dæmi og verða Reykjavíkurbiskupsdæmi. 3. gr• Forseti Islands veitir biskupsaæmi að undangengnu biskups- kjöri. Prófastar og þjónandi prestar hvers biskupsdæmis kjósa sér biskup. Kennarar við Guðfræðideild Háskóla íslands, þeir er kjörgengir eru til biskups, hafa kosningarrétt í Reykjavíkur- biskupsdæmi. Skipa skal þann er hlýtur 3/5 atkvæða við biskups- kjör. Nú hlýtur enginn það atkvæðamagn og skal þá kjósa að nýju milli þeirra tveggja, sem flest hlutu atkvæði. Veroi þeir jafnir skal veita embættið þeim, sem eldri er £ þjónustu kirkjunnar. Kjörgengir eru allir þeir, sem fullnægja skilyrðum til prests- embættis í þjóðkirkjunni, án tillits til pess, hvar búsettir eru. Kirkjumálaráðherra setur með reglugerð fyrirmæli um framkvæmd biskupskosningar. 4. gr. Biskupar eru sjálfkjörnir á Kirkjuþing, enda verði leik- mannafulltrúum á Kirkjuþingi fjölgað um 2. Biskupar eru forsetar þingsins á víxl eftir þeirri röð, sem þeir koma sér saman um. Biskupar eru og sjálfkjörnir í kirkjuráð, en það skal auk

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.