Gerðir kirkjuþings - 01.01.1968, Blaðsíða 6

Gerðir kirkjuþings - 01.01.1968, Blaðsíða 6
6. Kirkjuþing « / o mál þeirra vera skipað 4 mönnum, kjörnum á Kirkjuþingi. ökuiu 3 þeirra vera leikmenn úr sínu biskupsdæmi hver, en sá fjóröi þjónandi prestur. Kirkjuráð fer með umboð þjóðkirkju íslands ót á við og fyrirsvar hennar í þeim málum, sem varða hana í heild. Reykjavíkurbiskup er forseti Kirkjuráðs. 5. gr. Kirkjuráð hefur skrifstofu í Reykjavík og er hún jafnframt embættisskrifstofa Reykjavíkurbiskups. Kirkjumálaráðherra skipar henni skrifst^fustjóra (biskupsritara) að fengnum tillögum biskupa en Kirkjuráð ræður annað starfslið með samþykki ráðherra. Kostnaður við skrifstofu Kirkjuráðs greiðist úr ríkissjóði. Hún annast afgreiðslu og fyrirgreiðslu sameiginlegra mála kirkjunnar gagnvart stjórnarvöldum og erlendum aðiljum og rekur erindi ein- stakra biskupsdæma samkvæmt tilvísun biskupa. Biskupinn í Reykja- vík hefur umsjón með skrifst^funni í umboði Kirkjuráðs. 6. gr. Kirkjuráð hefur á hendi vörzlu sameiginlegra sjóða kirkjunna og þeirra kirkjueigna, sem hún hefur eða fær umráð yfir. Það ráð- stafar samkvæmt tillögu biskupa því fé, sem veitt er árlega til prestssetra. Sjóðir og aðrar kirkjueignir, sem um hlutverk tak- markast við tiltekir biskupsdæmi, skulu vera í vörzlu hlutaðeigand biskups, ef lög eða reglugerðir mæla því eigi í gegn. 7. gr. Biskup vígir eftirmann sinn, verði því við komið, ella fram- kvæmir biskupsvígslu sá biskup, sem eldri er í biskupsembætti, eða að árum, sé embættisaldur jafn. Biskupar fara hver um sig með sérmál biskupsdæmis síns. Þeir vígja presta og kirkjur og framkvæma annað það í biskupsdæminu, sem lög, reglur eða venjur fella undir biskupsvald. Þeir skulu vísitera presta og söfnuði biskupsdæmis síns eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. Biskup skipar prófasta í biskupsdæmi sínu, svo og dómkirkju- prest til þeirrar dómkirkju, sem undir hann heyrir. Prófastur í

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.