Víkurfréttir - 27.12.2012, Page 20
fimmtudagurinn 27. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR20
Kristófer Sigurðs-son er einn af
efnilegri sundmönnum
landsins um þessar
mundir en hann er
liðsmaður ÍRB. Eins og
gefur að skilja á sund
hug hans allan en hann
stefnir í framtíðinni á
háskólanám í Banda-
ríkjunum. Kristófer er
17 ára gamall Keflvík-
ingur og stundar hann
nám á náttúrufræðibraut í FS. Nýverið náði
Kristófer góðum árangri á Norðurlandamóti
unglinga í sundi og það verður forvitnilegt að
fylgjast með honum í framtíðinni. Kristófer
er FS-ingur vikunnar hjá Víkurfréttum þessa
vikuna.
Af hverju valdir þú FS?
Aðallega vegna þess að ég er að æfa sund
hérna í Reykjanesbæ og ef ég hefði farið
í bæinn þá hefði ég þurft að hætta.
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Það er mjög fínt.
Áhugamál?
Æfa sund og vera með vinum.
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Fara til Bandaríkjanna í háskóla.
Ertu að vinna með skóla?
Nei.
Hver er best klæddur í FS?
Ekki hugmynd.
Hvað er skemmtilegast við skólann?
Félagslífið.
Hvar hangirðu í eyðum og frímínútum?
Annað hvort inni í matsal eða heima hjá mér.
Stundarðu íþróttir eða ert
í öðrum tómstundum?
Já, ég æfi sund.
Hvað borðar þú í morgunmat?
Beikon og egg, annars fæ ég mér
cheerios ef það er ekki til.
Hvaða FS-ingur er líklegur til
þess að verða frægur?
Sennilega Samúel Kári fyrir sudda-
lega hæfileika í fótbolta.
Hvað fær þig til að hlæja?
Góðir brandarar.
Hvað er heitasta parið í skólanum?
Aron Ívar og Helena Ósk eru frekar heit.
Hverju myndirðu breyta ef
þú værir skólameistari FS?
Matnum.
Eftirlætis:
Sjónvarpsþættir:
Chuck og How I Met Your Mother
Vefsíður:
Facebook er mest notað.
Flík:
Rauðu Converse skórnir mínir.
Skyndibiti:
Búllan
Kennari:
Guðjón sögukennari er meistari,
en hann er því miður hættur.
Fag:
Stærðfræði
Tónlistin:
Wiz Khalifa, Kid Cudi, Kid Ink,
Frank Ocean, Coldplay og fleiri.
Hvað tónlist fílarðu í laumi
(guilty pleasure)?
Give me love með Ed Sheeran.
FS-INGUR VIKUNNAR
EFTIRLÆTIS...
Bandaríkin,
beikon og egg
Yfir 90 nemendur úr Reykjanesbæ eru á meðal þeirra 10% nemenda á
öllu landinu sem hlutu hæstu einkunnir
á samræmdum prófum á haustönn
2012. Þetta gerist um leið og grunn-
skólanemar Reykjanesbæjar náðu al-
mennt mjög stórstígum framförum á
samræmdum prófum í haust.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri, veitti hópnum
viðurkenningarskjöl í tilefni þessa frábæra
námsárangurs í Víkingaheimum miðviku-
daginn 19. desember að viðstöddum for-
eldrum, öfum og ömmum og forsvars-
mönnum grunnskólanna. Það voru nem-
endur í 4., 7. og 10. bekk grunnskólanna í
Reykjanesbæ sem þreyttu samræmd próf sl.
haust, alls 614 nemendur. Prófin eru fram-
kvæmd með sama hætti um allt land og
fara fram í íslensku, stærðfræði og ensku.
Í ávarpi Árna bæjarstjóra lagði hann
áherslu á mikilvægi þess að viðurkenna
hinn frábæra árangur sem þessir nem-
endur væru að sýna og væru þannig
umhverfi sínu og samfélaginu til sóma
og mikil hvatning fyrir aðra nemendur.
Í þessum hópi væru jafnan sterkir for-
ystumenn til framtíðar jafnt á sviði lista,
íþrótta, vísinda og félagslegrar þátttöku.
Árni gat þess einnig að aðgerðir til að
mæla árangur í skólastarfi væru langt frá
því bundnar við mælingar á samræmdum
prófum í íslensku, stærðfræði eða ensku.
Margir nemendur hefðu t.d. sýnt frábæran
árangur á tónlistarsviðinu, og mikið af
ungu tónlistarfólki væri nú að láta að sér
kveða í þjóðlífinu eftir að grunnur var
lagður í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
„Við eigum tónlistarmenn í fjölmörgum
tónsveitum sem eru að gera garðinn
frægan um þessar mundir“, sagði Árni.
Þá nefndi hann að það væru hvorki
meira né minna en 240 Íslandsmeistarar
á þessu ári á íþróttasviðinu frá Reykja-
nesbæ. Ekki síst væru miklir afreksmenn
í grunnskólum Reykjanesbæjar sem m.a.
kæmi fram í frábærum árangri í Hreysti-
keppni grunnskóla, þar sem grunnskólar
úr Reykjanesbæ væru í fremstu röð. Þá
mætti minna á að margir nemendur væru
frábærir verkmenn og þannig mætti
áfram telja. Með samræmdu prófunum er
þó skýr mæling sem væri með sama hætti
um allt land og því hentugur mælikvarði.
n Grunnskólar Reykjanesbæjar og samræmdu prófin:
Aldrei betri árangur
Bæ j a r s t j ó r n Sv e i t a r f é l a g s i n s Garðs ákvað á dögunum að veita
viðurkenningu fyrir jólaljósaskreytingu
ársins. Bæjarráði var falið í samvinnu
við formann Lista- og menningarfélags
Garðs að velja húsið og upplýsa val sitt
á bæjarráðsfundi þann 20. desember sl.
Verkið var óvenju vandasamt þar sem
margar glæsilegar jólaskreytingar sáust
á mörgum fallegum húsum í Garðinum
og úr vöndu að ráða. En eftir ítarlega
skoðun tókst bæjarráði að komast að
samkomulagi.
Jólahús Garðs 2012
1. Lyngbraut 4, eigendur Árni Guðna-
son og Hólmfríður Magnúsdóttir.
2. Hraunholt 4, eigendur Ingimundur
Þ Guðnason og Drífa Björnsdóttir.
3. Skagabraut 16, eigendur Sverrir
Karlsson og Guðlaug Jónsdóttir.
Skreytingar í Garði verðlaunaðar
Lyngbraut 4
Eigendur Árni guðnason og Hólmfríður Magnúsdóttir.
HraunHoLt 4
Eigendur Ingimundur Þ guðnason og Drífa björnsdóttir.
Skagabraut 16
Eigendur Sverrir karlsson og guðlaug Jónsdóttir.
Í þessum hópi væru jafnan sterkir forystu-
menn til framtíðar jafnt á sviði lista,
íþrótta, vísinda og félagslegrar þátttöku.
ÁRAMÓTABLAÐIÐ
Skó
lar