Víkurfréttir - 27.12.2012, Page 22
fimmtudagurinn 27. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR22
Árangur nemenda í Grunnskóla Sandgerðis í samræmdum prófum nú í haust var með
miklum ágætum og sá besti sem
náðst hefur sl. átta ár. Þessi þróun
gefur góðar vísbendingar og sýnir
að árangur nemenda skólans
í íslensku og stærðfræði stefnir
örugglega upp á við.
Nemendur í 10. bekk bættu sig að
meðaltali um 30% í stærðfræði og
38% í íslensku frá samræmdum
prófum þeirra í 7. bekk árið 2009.
Niðurstöður samræmdra prófa nemenda í 4. bekk eru
þær bestu sem náðst hafa í fjórða bekk í Grunnskól-
anum í Sandgerði.
Hvað skýrir aukinn árangur?
Auk efnilegs hóps nemenda hefur Grunnskóli Sand-
gerðis á að skipa metnaðarfullu og dugmiklu starfsliði.
Í skólanum hefur ríkt stöðugleiki í starfsmannahaldi
og allir kennarar skólans eru með tilskilin próf til
kennslu á grunnskólastigi. Faglegir kennsluhættir og
metnaður eru einkennandi í skólastarfinu og markvisst
eru gerðar áætlanir um hvernig gera má gott betra.
Um nokkurra ára skeið hefur verið við lýði uppeldis-
stefnan „uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga“.
Stefnan byggir á aðferðum til að kenna nemendum
og leiðbeina þeim við að tileinka sér sjálfsaga og
sjálfsstjórn, og læra að þekkja eigin tilfinningar og
þarfir. Rannsóknir hafa farið fram vestan hafs á upp-
eldisstefnunni og þeim aðferðum sem hún byggir
á. Sýnt hefur verið fram á að í skólum sem styðjast
við stefnuna hafi árangur í námi aukist, agi aukist,
mæting batnað og almennt mælist meiri ánægja meðal
nemenda, foreldra, kennara og starfsfólks skólanna.
Við teljum líka að sjá megi árangur stefnunnar þó inn-
leiðing hennar hafi ekki verið rannsökuð vísindalega
og teljum að árangurinn endurspeglist í niðurstöðum
í samræmdum prófum, í skoðanakönnunum meðal
nemenda, kennara og foreldra, og einnig í niður-
stöðum rannsókna sem framkvæmdar hafa verið af
Rannsóknum og greiningu á högum og líðan grunn-
skólanemenda. Í könnunum Rannsókna og greiningu
kemur fram að almennt líður nemendur vel í skól-
anum, þeir eru sáttir við skólastarfið og allir 10. bekk-
ingar stefna á framhaldsnám að loknum grunnskóla og
all margir stefna að námi í háskóla.
Frá haustinu 2008 hefur skólinn fylgt ákveðinni lestrar-
stefnu sem hefur það að markmiði að efla lestrarfærni
nemenda, faglega þekkingu starfsmanna á kennsluað-
ferðum í lestri, samræma vinnubrögð í lestri og auka
samstarf við heimilin. Lestrarstefnan var endurskoðuð
skólaárið 2011-2012 og hefur fest sig í sessi. Sett hefur
verið á laggirnar lestrarteymi sem m.a. hefur það hlut-
verk að fylgja stefnunni eftir og hefur það sinnt hlut-
verki sínu af mikilli kostgæfni. Þegar litið er á framfarir
nemenda 10. bekkjar nú er eðlilegt að draga þá ályktun
að lestrarstefnan hafi skilað skýrum árangri og sanni
að lestur og lestrarkennsla sé undirstaða alls náms.
Almenn lestrargeta nemendanna er með því besta sem
gerist og framfarir hafa verið mjög miklar.
Kennsluhættir, markmiðasetning fyrir skólann og
markmiðssetning nemendanna sjálfra skipta sköpum
ef árangur á að nást. Ljóst er að sú vinna og áhersla sem
lögð hefur verið í endurskoðun kennsluhátta, fram-
kvæmd kennslunnar, setningu markmiða og undir-
búning nemenda undanfarin ár hefur skilað árangri og
ber vitni um framsækni og metnað.
Nú er unnið að gerð skólastefnu fyrir Sandgerðisbæ.
Sú vinna fer m.a. fram í samvinnu við Skólaskrifstofu
Reykjanesbæjar og þá skóla sem njóta þjónustu skrif-
stofunnar. Öll skólastigin koma að þeirri vinnu, leik-
skólinn, grunnskólinn og tónlistarskólinn. Samkvæmt
samningi sem gerður var við skólaskrifstofuna á síðasta
ári hefur verið lögð aukin áhersla á samstarf skólanna
á svæðinu. Í því samstarfi er haft að leiðarjósi að stefna
markvisst að því að bæta námsárangur nemenda í
grunnskólunum. Lögð er sérstök áhersla á lestrar- og
stærðfræðikennslu frá skólabyrjun, þ.e. frá leikskóla
og í gegnum allan grunnskólann. Árangur starfsins
er metinn með stöðluðum prófum, lestrarprófum,
samræmdum prófum, og unnið út frá niðurstöðum
þeirra. Jafnframt miðar samvinnan að því að efla þátt
foreldra í námi barna sinna.
Það er einstaklega gleðilegt að fylgjast með góðu starfi
skólans, finna og sjá þann kraft og metnað sem þar
ríkir.
Sigrún Árnadóttir,
bæjarstjóri í Sandgerði
PÓSTKASSINN
n sigrún árnadóttir bæjarstjóri í sandgerði skrifar:
Markvissar áætlanir í skólastarfi skila árangri
vf@vf.is
- góður árangur í samræmdum prófum
Guðbjörg Ágústa Sigurðardóttir formaður Rauða krossins á Suður-nesjum og Stefanía Hákonardóttir framkvæmdastjóri, afhentu
Hjördísi Kristinsdóttur fulltrúa Velferðarsjóðsins kr. 600.000.- styrk í
Velferðarsjóð Suðurnesja í Keflavíkurkirkju á síðustu dögum fyrir jól.
VF-mynd: Eyþór Sæmundsson
600.000 kr. frá rauða
krossinuM á suðurnesjuM
kórar gáfu 355.000 kr.
í velferðarsjóð suðurnesja
Sigurður Rúnar Símonarson, Valgerður Valtýsdóttir,
Jóhann Sævar Símonarson, Herdís Ósk Herjólfsdóttir,
Þórdís Símonardóttir, Hlöðver Kristinsson,
Lovísa Símonardóttir, Ormar Jónsson,
Grétar Ingi Símonarson, Valgerður Tómasdóttir,
Magnea Sigrún Símonardóttir, Einar Guðnason,
Lilja Guðjónsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og vinur,
Símon Kristjánsson,
frá Neðri-Brunnastöðum,
lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð,
mánudaginn 17. desember. Jarðsungið verður frá
Kálfatjarnarkirkju, miðvikudaginn 2. janúar 2013 kl. 14:00.
Stórir tónleikar sem nokkrir kórar héldu á dögunum í
Stapa gáfu af sér 355 þúsund
krónur sem runnu í Velferðar-
sjóð Suðurnesja. Kórarnir sem
héldu tónleikana voru Kvennakór
Suðurnesja, Karlakór Keflavíkur,
Söngsveitin Víkingar, Eldey - kór
eldri borgara á Suðurnesjum og
Kór Keflavíkurkirkju.
áraMóTaBlaðið
Ekki amalegur bekkur hér á ferðinni.
Bræðurnir Ólafur
Helgi og Guðmundur
Jónssynir í baráttu.
Valur Ingimundarson
skorar fyrstu körfu
leiksins. Hann var einn
af þjálfurum liðsins en
gerði sér lítið fyrir og
stökk inn á völlinn og
skoraði góðan þrist.
Jóhann Árni Ólafs-
son var sjóðandi
heitur í leiknum.
Sennilega var það
búningurinn sem
gerði útslagið.
Marcus Van lét finna
fyrir sér í teignum.
Fyrrum bakvörður
UMFN, Jón Júlíus Árna-
son borgaði fúlgu til
þess að fá að vera með
í skotkeppninni.