Víkurfréttir - 27.12.2012, Qupperneq 23
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 27. desember 2012 23
Kristni Pálssyni, 15 ára gömlum leikmanni Njarðvíkinga í körfu-
bolta var á dögunum boðið til æfinga
hjá ítalska liðinu Stella Azzura en liðið
er sérstök körfubolta-akademía yngri
leikmanna í höfuðborginni Róm. Krist-
inn dvaldi hjá liðinu á Ítalíu við æfingar
í tvo daga en einnig ferðaðist hann með
liðinu til Barcelona þar sem liðið lék á
sterku móti. Kristinn lék vel með liðinu
á Spáni og meðal annars jafnaði hann
leikinn 8 sekúndum fyrir leikslok og
varði svo skot á lokasekúndunni til að
tryggja sínu liði framlengingu gegn
Barcelona. Hann endaði þann leik með
16 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar,
sem er ansi vel af sér vikið á svo sterku
móti. Í mótinu léku auk Stella Azurra,
heimalið Regal Barcelona, Vaerlose
frá Danmörku og BC Hospitalet frá
Spáni. Þarna voru lið skipuð 16 ára leik-
mönnum og yngri en Kristinn varð 15
ára á meðan hann dvaldi ytra.
Kristinn er einn af efnilegustu ungu leik-
mönnum Íslands og hefur þrátt fyrir
ungan aldur leikið þó nokkra leiki með
yngri landsliðum þjóðarinnar. Hann
stefnir hátt og leggur mikið á sig til þess að
fá drauma sína uppfyllta. „Draumurinn
minn hefur lengi verið að fara út í háskóla
til Bandaríkjanna og leika körfubolta.
Lengi vel var það Miami háskólinn sem
var draumur hjá mér því við fjölskyldan
förum til Miami reglulega í heimsókn
til systur hans pabba. Eitt skiptið hittum
við m.a. mann úr þjálfarateyminu þar og
hann sýndi okkur aðstöðuna sem körfu-
boltaliðið hjá þeim hefur til afnota. Það
ýtti vissulega undir áhugann því þetta
var mjög flott hjá þeim. Annars yrði það
bara ævintýri og lífsreynsla að verða svo
heppinn að komast að hvar sem er í há-
skólaboltanum.“
Menn ekki sleipir í enskunni
Körfuboltinn sem leikinn var á Ítalíu
og Spáni var gríðarlega sterkur eins og
Kristinn hafði búist við. Þjálfararnir voru
góðir að hans sögn og leikmenn flestir
mjög færir. Það sem kom Kristni mest á
óvart var hve fáir töluðu ensku. „Þjálfar-
arnir töluðu bara ítölsku og einn þjálfari
sem talaði skástu enskuna túlkaði fyrir
mig það sem aðalþjálfarinn var að segja
okkur,“ segir Kristinn. Ítalirnir hafa áhuga
á því að fá Kristin aftur út en hann vakti
athygli fyrir vasklega framgöngu sína.
„Þeir töluðu um að fá mig út í annað mót í
febrúar ef ég mögulega get. Einnig sögðust
þeir vera mjög ánægðir með hvernig gekk
hjá mér og að þeir væru tilbúnir að taka
mig inn í sitt kerfi á næsta tímabili sem
myndi þá þýða að ég færi út og yrði þar í
skóla. En það er bara eitthvað sem þarf að
skoða vel. Ég er ennþá mjög ungur og geri
mér grein fyrir því.“
Flestir þeir sem hafa náð að spila erlendis
sem atvinnumenn tala um að aukaæfingin
skili árangri. Kristinn er tíður gestur á
morgunæfingum hjá yngri flokkum Njarð-
víkur og auk þess er hann á sérstökum
styrktaræfingum hjá Sævari Garðarssyni.
„Þannig að það er óhætt að segja að ég
reyni að taka aukaæfingar vegna þess að
mig langar að ná lengra,“ segir Kristinn.
Faðir Kristins er Páll Kristinsson sem
á langan og farsælan körfuboltaferil að
baki, bæði með Njarðvíkingum og Grind-
víkingum. Páll kom og hitti son sinn á
Spáni og fylgdi honum eftir. Ferðin var
nýtt í ystu æsar og m.a. var farið á leik-
vang knattspyrnuliðs Barcelona og á
meistaradeildarleik hjá Regal Barcelona
gegn CSKA Moskvu í körfuboltanum.
Þeir feðgar heilsuðu svo upp á atvinnu-
manninn Jón Arnór Stefánsson sem leikur
í Zaragoza og horfðu á leik hjá kappanum.
Þetta var því sannkölluð draumaferð fyrir
ungan körfuboltamann sem vert verður
að fylgjast með í framtíðinni.
ÁRAMÓTABLAÐIÐ
Það ríkti jólaandi í Ljóna-gryfjunni sl. föstudagskvöld
þegar Njarðvíkingar slógu upp
sannkallaðri körfuboltaveislu.
Þar áttust við Njarðvíkurlið
karla og sérstakt stjörnum
prýtt lið fyrrum leikmanna
Njarðvíkinga. Fyrst og fremst
var gleðin í fyrirrúmi en þó
fengu áhorfendur peninga sinnar
virði því úr varð hörkuleikur.
Svo fór að lokum að stjörnuliðið
sigraði 116-122 og munaði þar
mestu um stórleik Loga Gunnars-
sonar og Jóhanns Árna Ólafssonar
sem hreinlega fóru hamförum
fyrir utan þriggja stiga línuna.
Logi gerði 33 stig í leiknum og þar
af 9 þriggja stiga körfur. Jóhann
Árni skoraði öll sín stig fyrir utan
en hann setti niður 7 af 9 þriggja
stiga skotum sínum, hreint ótrúleg
hittni hjá stjörnunum sem voru
með 57% nýtingu í langskotum.
Teitur Örlygsson sparaði bomb-
urnar þangað til í hálfleik þegar
þriggja stiga keppni fór fram
en kappinn gerði sér lítið fyrir
og sigraði í keppninni. Sjálfur
segist hann aldrei hafa tapað
slíkri keppni og það gerði hann
ekki heldur að þessu sinni.
Allur aðgangseyrir og áheit
runnu óskipt til Líknarsjóðs
Njarðvíkurkirkna og söfnuðust
um 700 þúsund krónur í kringum
þennan skemmtilega viðburð sem
líklega er
kominn til
þess að vera
hjá Njarð-
víkingum.
Sérstaka
athygli vöktu
búningar
sem voru
gerðir sér-
staklega
fyrir leikinn
en þar voru
á ferðinni
goðsagnar-
kenndir
Hagkaups-
búningar
sem voru
notaðir árin
1987-88 hjá
UMFN. Appelsínugulu búning-
arnir voru sérstaklega glæsilegir.
Kristinn og
Jón Arnór
Stefánsson
en hann
leikur í Zara-
goza.
Glæsilegur hópur hér á ferð.
Fjölskyldutengsl.
Hér eigast við
feðgarnir Friðrik
Ragnarsson og
Elvar Már sonur
hans sem er til
varnar.
Búningarnir vöktu
sérstaka athygli.
Brenton Birming-
ham var þó að venju
glæsilegur á velli. Logi Gunnarsson kunni vel við sig á
gamla heimavell-
inum og fór ham-
förum í leiknum.
Kristinn vakti
athygli Ítalanna
Frábær skemmtun
í Ljónagryfjunni
Kristni Pálssyni, 15
ára gömlum leik-
manni Njarðvíkinga
í körfubolta var á
dögunum boðið til
æfinga hjá ítalska
liðinu Stella Azzura
en liðið er sérstök
körfubolta-akademía
yngri leikmanna í
höfuðborginni Róm.
Sp
ort
ið