Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.12.2012, Side 24

Víkurfréttir - 27.12.2012, Side 24
Fimmtudagurinn 27. desember 2012 • 51. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00 Tímapantanir í síma 426 8540 Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00 Frjáls mæting Puttar í púðri Blysin voru af öllum stærðum og gerðum. Rakettur í öllum regn- b ogans l i tum. Jókerinn fannst mér f lottastur. Við strákarnir vorum á kafi í þessu. Gleymdum okkur í nýju jóla- peysunum, sem komu upp ú r jólapökkunum dagana á undan. Ýmist í þeirri rauðu frá ömmu eða þeirri köflóttu frá Soffu frænku. Ullin alltaf hlý og góð. Áttum að passa okkur á því að fá ekki neista úr stjörnublysunum á okkur. Rokeldspýturnar gátu líka verið hættulegar. Hugfangnir gleymdum við okkur stundum. Eitt og eitt gat kom á peysurnar í öllum æsingnum. Reyndum að fela þau sem best við gátum. Björgunarsveitin Stakkur hélt úti sölu hér og þar um bæinn. Við flökkuðum á milli staða og keyptum eina og eina í einu. Drýgðum aurinn og teygðum á deginum. Söfnuð- umst saman í skrúðgarðinum eða á Félagsbíóplaninu og skutum upp með viðhöfn. Öllum fannst sín vera flottust. Eða háværust. Sumir áttu bara til fyrir ýlum. Þær voru þó yfirleitt margar í pakka, þannig að ýlukóngarnir voru lengur að skjóta heldur en þeir sem keyptu stóra rak- ettu eða jókerblys. Svo var líka hægt að halda á ýlunum og skjóta þeim úr höndunum. Stranglega bannað en við vorum með góða vettlinga. Stundum svolítið svartir af sóti í lok dags. Nudduðum og þvoðum þá upp úr blautum snjónum svo að mömmurnar yrðu ekki brjálaðar. Sprengjusérfræðingar götunnar komust á snoðir um nýja teg- und skotelda, sem hægt var að brjóta upp og eiga þannig fleiri sprengjur í vasanum yfir daginn. Litlir hólkar á stærð við þumal litu dagsins ljós í uppskurðinum. Púður á milli þeirra sem hægt var að safna saman í krukku og eiga til betri tíma. Langbest að kaupa svarta þéttilímrúllu og vefja henni utan um hólkinn til þess að magna kraftinn. Ofan á var afklippt rok- eldspýta notuð sem kveikiþráður. Vafinn þétt og kyrfilega að endingu. Vopnabúrið í nýjum víddum. Há- vaðinn svakalegur. Féll um sjálft sig þegar einn okkar var ekki nógu fljótur að kasta sprengjunni frá sér. Puttunum fækkaði í hópnum og heyrnin skánaði í kjölfarið. Urðum að finna upp nýja og öruggari leið. Áttum mikið af þéttilímrúllum. Við lögðumst yfir málið. Sprengjan mátti aldrei vera þannig útbúin að hætta væri á að hún springi í höndunum. Eld- spýtnastokkur, fullur af afklipptum eldspýtum og brennisteinsblaðinu utan af honum snúið inn á við, þéttilímið vafið utan um og nún- ingurinn við höggið sá um afgang- inn, þegar kastað var í vegg. For- vörn Tuma þumals svínvirkaði. VALUR KETILSSON SKRIFAR FIMMTUDAGSVALS Nýtt strætisvagnakerfi tekur gildi í Reykjanesbæ 4. janúar nk. Kerfið byggir á fjórum vagna- leiðum, 30 mínútna biðtíma við hverja stöð. Leið vagnanna hefur öll sömu miðju sem er við Kross- móa. Ekið verður lengur á dag- inn og um helgar. Áfram verður ókeypis í strætó í Reykjanesbæ. Nýju upplýsingakerfi um staðsetn- ingu vagnanna hefur verið komið upp sem tengt er við farsíma og tölvur, auk þess sem menn geta hringt í síma 420 6000. Með nýja upplýsingakerfinu geta notendur farið í símann sinn eða tölvu og séð hvar hver strætisvagn er á rauntíma. Þetta styttir biðtím- ann á stoppistöð, hægt að ljúka við verkefnin heima áður en rölt er út á stoppistöð og vagninn tekinn. Það skiptir ekki máli hvort síminn er af gerðinni iPhone eða með Android- stýrikerfi. Allir geta sótt sér Strætó-appið Meðal nýjunga í kerfinu er sérstök þjónusta við íbúa í Höfnum. Í stað hefðbundins strætós sem þó kemur alltaf á morgnana fyrir skólabörnin og síðdegis eftir skóla, er boðið að íbúar geti kallað eftir leigubíl sem kemur þá á sama tíma og aksturs- leiðakerfið segir til um og fer sömu leið. Íbúar þar þurfa að láta vita um ósk sína með klukkustundar fyrir- vara og þá kemur bíllinn í Hafnir. Samið hefur verið við leiðgubíla- stöðina Aðalstöðina í Reykjanesbæ um þessa þjónustu. Árni Sigfússon bæjarstjóri segir að undirbúningur að þessu kerfi hafi staðið yfir allt síðasta ár, Umhverfis- og skipu- lagssvið hefur haft veg og vanda að undirbúningi með Guðlaug Sigur- jónsson í forsvari. „Við teljum það mikilvægt að gera kerfið aðgengilegt öllum íbúum og gestum – og vagnaleiðirnar miða nú að því að fólk geti farið tiltölulega fljótt á milli hverfa og þjónustukjarna í bæjarfélaginu. Þetta mun að mínu mati stórbæta búsetuskilyrði í öllum hverfum bæjarins, og skapa betri þjónustu við þá fram á kvöld. Ég legg áherslu á að það verður áfram ókeypis í strætó, þannig að ég hvet alla til að nýta sér þennan góða ferða- kost,“ sagði Guðlaugur. Að sögn Guðlaugs hefur víða verið leitað fanga, góð aðstoð frá undirbún- ingshópi vegna útboðs Flugrútu og vagnaleiðar milli Reykjavíkur og Suðurnesja, þar sem Ásmundur Friðriksson hefur stjórnað undir- búningsvinnu. Þá hefur tekist ein- staklega gott samstarf við Stætó BS í Reykjavík. Þaðan kemur upp- lýsingakerfið og samstarf um það, sem veitir upplýsingar um raun- tíma og staðsetningu vagnanna og ýmis ráðgjafarvinna. Guðlaugur segir að áætlaður kostn- aður við kerfið sé um 70 milljónir kr. á ári. Það teljist einstaklega hag- stæðir samningar miðað við það umfangsmikla kerfi sem nú er tekið upp. n Tekur gildi 4. janúar n Ekið lengur á daginn og um helgar n Áfram ókeypis í strætó Nýtt öflugt strætó- kerfi í Reykjanesbæ Guðlaugur og Árni bæjarstjóri í strætóskýli í Njarðvíkunum. VF-mynd: Páll Ketilsson HVAÐ ER ÞINN FLUGELDASALI TILBÚINN AÐ LEGGJA Á SIG FYRIR ÞIG? Sölustaður okkar er í Björgunarsveitarhúsinu við Holtsgötu 51 Strætó

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.