Öldrun - 01.02.2001, Qupperneq 6

Öldrun - 01.02.2001, Qupperneq 6
6 ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001 þ.e.a.s. ApoE 2, ApoE 3 eða ApoE 4. Þeir sem erfa ApoE 4 samsætuna frá öðru eða báðum foreldrum er hættara við að þróa Alzheimerssjúkdóminn heldur en þeim sem ekki erfa ApoE 4 samsætuna (t.d. í American College of Medical Genetics, 1995). Þrátt fyrir að auka líkurnar á því að fá sjúkdóminn hefur ApoE 4 sam- sætan ein og sér ekki getað skýrt hættuna á að erfa sjúkdóminn (t.d. Kuusisto o.fl., 1994). Því virðist sem einhverjir aðrir þættir spili stærra hlutverk varðandi erfðir sjúkdómsins og líklegt að samspil margra þátta þurfi til að einstaklingur þrói sjúkdóminn (Munoz and Feldman, 2000; Swartz o.fl., 1999). Í dag eru gefin lyf við Alzheimerssjúkdómi sem auka verkun taugaboðefnisins asetýlkólín í heilanum. Lyfin hafa seinkað sjúkdómsferlinu hjá sumum og bætt andlega líðan. Því miður virðast þau ekki verka á alla, né hafa langvarandi áhrif eða stöðvi sjúkdóms- ferlið (t.d. Holmes and Wilkins, 2000; Pryse-Phillips, 1999). Mikilvægt virðist að byrja meðferð eins fljótt og kostur er svo árangur verði sem bestur (Small o.fl., 1997). Því er nauðsynlegt að geta greint sjúkdóminn sem fyrst og víða er verið að rannsaka hvernig greina megi sjúkdóminn fljótt og örugglega. Í dag virðist taugasálfræðileg prófun vera einna árangursríkasta aðferðin við greiningu sjúkdómsins á fyrstu stigum, eða áður en einstaklingurinn sjálfur, vinir eða fjöl- skylda verða fyrir óþægindum vegna sjúkdómsins (t.d. Elias o.fl., 2000; Fox o.fl., 1998; Tierney o.fl., 1996). Taugasálfræðileg prófun fer þannig fram að einstak- lingur er látinn leysa af hendi ýmiskonar verkefni sem varða vitrænt starf eins og t.d. minni og athygli. Rannsókn þessi hefur það að markmiði að auka þekkingu á sjúkdómnum og orsökum hans sem gæti skilað sér í árangursríkari meðferð. Sá hluti rannsókn- arinnar sem hér verður fjallað um snýr að taugasál- fræðilegri athugun á systkinum Alzheimerssjúklinga og þeirri tilraun að finna leið til að greina sjúkdóminn áður en einstaklingurinn verður fyrir verulegum óþæg- indum vegna hans. Taugasálfræðilegt mat á systkinum Alzheimerssjúklinga Þátttakendur í þessum hluta rannsóknarinnar voru 73 systkini Alzheimerssjúklinga sem höfðu ættarsögu um heilabilunarsjúkdóm eins og Alzheimerssjúkdóm og 43 einstaklingar í viðmiðunarhópi. Ættarsaga í rannsókninni er skilgreind þannig að einhverjir tveir lifandi einstaklingar með minnissjúkdóm tengjast innan sex meiósa (sjá mynd 1). Systkini þessara Alzheimerssjúklinga voru valin af handahófi í þennan hluta rannsóknarinnar. Í viðmiðunarhópi voru aðallega makar systkinanna, en þeir eru hentug viðmið til að reyna að hafa bakgrunn þessara tveggja hópa sem lík- astan. Einstaklingar í viðmiðunarhópi áttu hvorki systkini né foreldra með þekkta heilabilun. Enginn þátttakandi í þessum hluta rannsóknarinnar hafði greinst með minnissjúkdóm né aðra sjúkdóma sem gætu haft áhrif á minni. Einn þátttakandi í systkina- hópnum var útilokaður frá tölfræðiúrvinnslu þar sem hann skoraði meira en 1,5 staðalfrávik frá meðaltali á flestum taugasálfræðilegum prófum. Þátttakendur svöruðu spurningarlista um heilsufar og fóru í taugasálfræðilegt mat. Alls voru notuð 17 taugasálfræðileg próf og reyndu þau á eftirfarandi þætti hugræns starfs: Áttun á stað og stund; yrt og óyrt minni; mál; lestur og skilning; ein- beitingu, hugrænan hraða; og sjónræna skynjun og úrvinnslu. Niðurstöður og umræða Þegar systkini Alzheimerssjúklinga voru borin saman við viðmiðunarhópinn var enginn munur á þessum hópum varðandi aldur og menntun (tafla 1). Þó svo að hlutfallslega væru fleiri konur í viðmiðunar- hópnum heldur en í systkinahópnum var munurinn ekki marktækur. Meðalaldur í hópunum var sá sami, um 70 ár og aldursbilið var frá 56 til 79 ára. Samkvæmt svörum við heilsufarsspurningum var ekki munur á hópunum á þáttum er varða minni eins og höfuðhögg, áfengisneyslu, útsetningu fyrir eiturefnum eða eigið mat á minni og minnistruflunum. Megin niðurstöður rannsóknarinnar voru að systk- inahópnum gekk marktækt verr á þeim taugasálfræði- legu þáttum er athuga minni: Teikna eftir minni flókna mynd eftir 45 mínútna töf (mynd 2); endursegja sögu strax og eftir 45 mínútna töf (mynd 3); og muna seinna orðið í erfiðum orðapörum (mynd 4). Ástæðan fyrir því að systkini skora lakar á erfiðum orðapörum en ekki á auðveldum er sú að erfið orðapör reyna á minni en auð- Mynd 1. Dæmi um hvernig ætt gæti litið út samkvæmt skilgreiningu á ættartengslum í rannsókninni. Hér eru Alzheimerssjúklingarnir tengdir í sex meiósur. Kassi = karl, hringur = kona, yfirstrikaðir einstaklingar eru látnir.

x

Öldrun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.