Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 22

Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 22
22 ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001 Það var á dögum Hákonar hins ríka öndverðum, þá var Egill Skalla-Grímsson á níunda tigi og var hann þá hress maður fyrir annars sakir en sjónleysis. Það var um sumarið er menn bjuggust til þings þá beiddi Egill Grím að ríða til þings með honum. Grímur tók því seinlega. Og er þau Grímur og Þórdís töluðust við þá sagði Grímur henni hvers Egill hafði beitt, „vil eg að þú for- vitnist hvað undir mun búa bæn þessi.“ Þórdís gekk til máls við Egil frænda sinn. Var þá mest gaman Egils að ræða við hana. Og er hún hitti hann þá spurði hún: „Er það satt frændi er þú vilt til þings ríða? Vildi eg að þú segðir mér hvað væri í ráða- gerð þinni.“ „Eg skal segja þér,“ kvað hann, „hvað eg hefi hugsað. Eg ætla að hafa til þings með mér kistur þær tvær er Aðalsteinn konungur gaf mér er hvortveggi er full af ensku silfri. Ætla eg að láta bera kisturnar til Lögbergs þá er þar er fjölmennast. Síðan ætla eg að sá silfrinu og þykir mér undarlegt ef allir skipta vel sín í milli. Ætla eg að þar mundi vera þá hrundningar eða pústrar eða bærist að um síðir að allur þingheimurinn berðist.“ Þórdís segir: „Þetta þykir mér þjóðráð og mun uppi meðan landið er byggt.“ Síðan gekk Þórdís til tals við Grím og sagði honum ráðagerð Egils. „Það skal aldrei verða að hann komi þessu fram, svo miklum firnum.“ Og er Egill kom á ræður við Grím um þingferðina þá taldi Grímur það allt af og sat Egill heima um þingið. Eigi líkaði honum það vel. Var hann heldur ófrýnn. Að Mosfelli var höfð selför og var Þórdís í seli um þingið. Það var eitt kveld þá er menn bjuggust til rekkna að Mosfelli að Egill kallaði til sín þræla tvo er Grímur átti. Hann bað þá taka sér hest „vil eg fara til laugar.“ Og er Egill var búinn gekk hann út og hafði með sér silfurkistur sínar. Hann steig á hest, fór síðan ofan eftir túninu fyrir brekku þá er þar verður er menn sáu síðast. En um morguninn er menn risu upp þá sáu þeir að Egill hvarflaði á holtinu fyrir austan garð og leiddi eftir sér hestinn. Fara þeir þá til hans og fluttu hann heim. En hvorki komu aftur þrælarnir né kisturnar og eru þar margar gátur á hvar Egill hafi fólgið fé sitt. Fyrir austan garð að Mosfelli gengur gil ofan úr fjalli. En það hefir orðið þar til merkja að í bráðaþeyjum er þar vatnsfall mikið en eftir það er vötnin hafa fram fallið hafa fundist í gilinu enskir peningar. Geta sumir menn þess að Egill muni þar féið hafa fólgið. Fyrir neðan tún að Mosfelli eru fen stór og furðulega djúp. Hafa það margir fyrir satt að Egill muni þar hafa kastað í fé sínu. Fyrir sunnan ána eru laugar og þar skammt frá jarð- holur stórar og geta þess sumir að Egill mundi þar hafa fólgið fé sitt því að þangað er oftlega sénn haugaeldur. Egill sagði að hann hefði drepið þræla Gríms og svo það að hann hafði fé sitt fólgið, en það sagði hann engum manni hvar hann hefði fólgið. Egill tók sótt eftir um haustið þá er hann leiddi til bana. En er hann var andaður þá lét Grímur færa Egil í klæði góð. Síðan lét hann flytja hann ofan í Tjaldanes og gera þar haug og var Egill þar í lagður og vopn hans og klæði. 9:00-9:05 Setning 9:05-9:45 Mat á líkamlegri færni aldraðra Kynntar aðferðir sem sjúkraþjálfarar nota við mat á líkamlegri færni aldraðra. Þessar matsaðferðir prófa þætti eins og jafn- vægi, göngugetu og almenna hreyfi- og sjálfsbjargargetu. Áhersla verður lögð á próffræðilega eiginleika þessara mats- aðferða og notkunarmöguleika í þjónustu við aldraða.0 Sólveig Á. Árnadóttir, sjúkraþjálfari Akureyri 9:45-10:00 Kaffihlé 10:00-10:40 Taugasálfræðilegt mat á vitrænni hrörnun Kynnt verða helstu taugasálfræðileg próf sem notuð eru til að greina á milli ólíkra tegunda heilabilunar. Niðurstöður frá raun- verulegum sjúklingum verða sýndar og ræddar. María K. Jónsdóttir, taugasálfræðingur Landakoti. 10:40 -11:15 Aðferðir við mat á félagslegum aðstæðum Fjallað um aðferðir félagsráðgjafa við mat á félagslegum aðstæðum aldraðra í heimahúsum. Skoðuð verða tengsl stuðningskerfis og félagslegrar þátttöku við andlega líðan og líkamlega færni. Steinunn K. Jónsdóttir, yfirfélagsráðgjafi LSH Landakoti 11:15-11:50 Með iðju mannsins að leiðarljósi. Mælitæki og matsaðferðir iðjuþjálfa í þjónustu við aldraða. Ingibjörg Ásgeirsdóttir forstöðuiðjuþjálfi LSH Fossvogi 11:50-13:20 Umræður og matarhlé 13:20-14:00 Greining á þunglyndi aldraðra Fjallað verður um fyrirbrigðið (fenomenologiu) þunglyndi aldraðra og hvað greinir það frá þunglyndi yngra fólks, hvernig það tengist öðrum sjúkdómum aldraðra m.a. heilabilun og um greiningaraðferðir. Sæmundur Haraldsson geðlæknir, LSH Landakoti. 14:00-14:40 Klínísk notkun RAI mælitækisins -raunverulegur aðbúnaður íbúa Fjallað um notkun RAI mælitækisins við mat á heilsufari og hjúkrunarþörf aldraðra sem dvelja á öldrunarstofnunum. Kynnt notkun RAI matslykla (RAPs), sem byggja á kerfisbund- inni aðferð til að greina heilsufarslegt og félagslegt ástand og notkun RAI gæðavísa (QI) sem voru þróaðir til að tryggja ákveðin gæði umönnunar. Hlíf Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur, Landspítala 14:40-15:00 Kaffihlé 15:00-15:35 Um vistunarmat aldraðra Fjallað um vistunarmat aldraðra, forsendur þess og markmið. Rætt verður um eiginleika vistunarmatsins sem mælitækis. Þorgerður Valdimarsdóttir forstöðumaður Mathóps Reykja- víkur 15:35-16:00 Pallborðsumræður MÆLITÆKI Í ÞJÓNUSTU VIÐ ALDRAÐA NÁMSTEFNA ÖLDRUNARFRÆÐAFÉLAGS ÍSLANDS OG ENDURMENNTUNARSTOFNUNAR HÍ Haldin í húsi Endurmenntunar, Dunhaga 7 – miðvikudaginn 7. mars kl. 9-16

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.