Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 12

Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 12
12 ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001 iv. Hvort fyrirhuguð aðstoð frá aðstandendum hafi gengið eftir. v. Hvort úrræði eins og dagspítali, dagvistun, félags- starf aldraðra, sjúkraþjálfun, skammtímavistun og heimsendur matur hafi verið nýtt. Gerð könnunar Könnunin náði til þeirra sjúklinga sem dvöldust á öldrunarlækningadeild SHR í Fossvogi og úskrifuðust heim. Gagnasöfnun hófst í febrúar 1997 og lauk í nóv- ember 1998. Könnunin skiptist í fimm þætti: A: Upplýsingar fengnar við komu þ.e aldur, kyn, félagslegar aðstæður og ástæða innlagnar. B: Færni sjúklings við útskrift (skv.Barthel skala). C: Áætlun við útskrift (Útskriftarúrræði). D: Mat á útskriftarúrræðum fjórum vikum eftir útskrift. E: Endurmat á útskriftarúrræðum fimm mánuðum eftir útskrift. Spurningalistar og eyðublöð voru fyllt út af þeim sem framkvæmdu könnunina á sjúkrahúsinu og heima hjá þátttakendum eftir útskrift. Þátttakendur • 74 þátttakendur. Konur n=58 (78%) , Karlar n=16 (22%) • Aldur: 67–85 ára n=49(66%); 86-99 ára n=25(34%) • Ekkjur/ekklar n= 44(59%), í hjónabandi n=16 (22%), einhleypir n= 14(19%) • 47 (64%) búa einir, 14(19%) með maka, 13(17%) með öðrum • 58 (78%) búa í eigin húsnæði, 3(4%) í leiguhúsnæði og 13 (18%) í vernduðu leiguhúsnæði. • Helstu tómstundir þessa hóps fyrir innlögn var að hlusta á útvarp, horfa á sjónvarp, lestur dag- blaða/tímarita og lestur bóka. • Við mat á færni (Barthel 0 -100) fengu þátttakendur allt frá 35 upp í 100 stig. 8 (11%) fengu 21- 60 stig þ.e.: þó nokkuð til verulega háður einhverjum um sjálfsummönnun og hreyfingu; 36 (48%) þátttak- enda fékk 61 -90 stig þ.e.: lítillega til þó nokkuð háður einhverjum um sjálfsumönnun og hreyfingu; 25(34%) fékk 91-99 stig þ.e: lítillega háður ein- hverjum og 5 (7%) sjálfbjarga • Gert var mat á vitrænni getu (Mini-Mental State Examination) fyrir 37 þátttakendur (50%). 28 þátt- takendur fengu minna en 24 /30 í þessu prófi. • Við útskrift áttu 36 (49%) vistunarmat þar sem 20 voru metnir í mjög brýna þörf fyrir hjúkrunarrými og 16 í mjög brýna þörf fyrir þjónusturými. Niðurstöður A. Þátttakendur. Upphaflega tóku 74 þátt í könnuninni. Við 4 vikur voru þeir 65 og við 5 mánuði 56. 56 (76%) luku síðasta hluta könnunarinnar og náðu að vera 5 mánuði eða lengur heima. 2 hættu þátttöku 4 fóru á hjúkrunarheimili að heiman. 14 voru endurinnlagðir. Af þeim létust 5, 2 útskrif- uðust heim og 7 vistuðust á hjúkrunarheimili. B. Úrræði við útskrift (sjá mynd 1), endurmat við 4 vikur og við 5 mánuði (sjá myndir 2,3,4,5) 1. Eftirlit hjá lækni – ekki tekið með. 2. Heimahjúkrun. Fyrir innlögn fengu 34 heima- hjúkrun. Við útskrift var áætlað að 64(86%) fengju heimahjúkrun. Megin aðstoð heimahjúkrunar fólst í lyfjatiltekt og böðun. Sótt var um að meðaltali 6.1 inn- lit á viku allt frá 1 innliti á viku upp í 3 innlit á sólar- hring. Mynd 2 sýnir þá þjónustu sem sótt var um við útskrift, fengin við 4 vikur og 5 mánuðum frá útskrift. 3. Heimilishjálp: Fyrir innlögn fengu 51 einstak- lingar heimilishjálp. Við útskrift var áætluð heimilis- hjálp fyrir 68 (91%) þar af eru 8 í þjónustuhúsnæði. Megin aðstoð heimilishjálpar voru þrif, þvottur, sam- vera og innkaup. Áætlaðar voru að meðaltali 7 stundir á viku, allt frá 4 stundum á mánuði upp í 20 stundir á viku. Mynd 3 sýnir þá þjónustu sem sótt var um við útskrift, fengin við 4 vikur og 5 mánuðum frá útskrift. 4. Aðstandendur. Fyrir innlögn segjast 69 af 74 fá aðstoð frá aðstandendum.Við útskrift var áætlað að 72 (97%) fái aðstoð fra aðstandendum. Á tímabilinu var aðstoð frá ættingjum svipuð og reiknað hafði verið með. Þegar kannað er hverjir úr hópi aðstandenda eru aðalstuðningsaðilar 4 vikum eftir útskrift kemur í ljós að það eru börn og tengdabörn (64%), síðan makar, ættingjar og barnabörn. Algengasta aðstoð veitt af aðstandendum er: innkaup, samvera, þvottur, akstur og matargerð. 5. Heimsendur matur: Fyrir innlögn voru 19 ein- staklingar (25,6%) sem fengu heimsendan mat en 28 (37,8%) eftir útskrift. 6. Dagspítali: Á dagspítala er endurhæfing sem nýtist vel sem framhaldsmeðferð eftir dvöl á sjúkra- húsi. Um er að ræða dvöl hálfan daginn 2 – 3 x/viku í takmarkaðan tíma. Fólk er sótt og því ekið heim. Þegar bíllinn kemur þarf fólk að vera tilbúið og til þess að það takist þarf að samræma þjónustu sem fólk þarf bæði við að komast á fætur og jafnvel aðstoð við að komast niður stiga að útidyrum. Eftir lok tímabils á dagspítala er unnið að áframhaldandi úrlausnum fyrir viðkom- andi. Dagspítali kom inn sem nýtt úrræði eftir að könn- unin hófst en sótt var um fyrir 17 (23%) fyrir útskrift og yfir 5 mánaða tímabil höfðu allir nema 1 einstaklingur fengið þjónustu þaðan. 7. Dagvistun: Mælt er með dagvistun fyrir þá sem vilja og geta nýtt sér hana. Dagvistunarstofnanir hafa bifreiðaþjónustu. Eingöngu er um að ræða heilsdags- vistun á dagvistunarstofnunum. Fyrir innlögn voru ein- ungis 8 í dagvistun en pantað var fyrir 10 (14%) fyrir útskrift og voru 5 í dagvistun við 4 vikur og 5 við 5 mán-

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.