Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 15
15ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001
Á síðustu árum hafa menn snúið vörn í
sókn til að takast á við vaxandi fólksfjölda
á nýrri öld. Mikil áhersla er einkum lögð á
heilsusamlega lifnaðarhætti, ábyrgð ein-
staklingsins á eigin heilsu og ábyrgð þjóðfé-
lagsins hvað varðar sýn á aldraða – í að
efla jákvæða sjálfsímynd, í að virkja aldr-
aða og skapa þeim svigrúm til þátttöku í
þjóðfélaginu. Er ekki laust við að auk-
innar bjartsýni gæti á að afleiðingar fólks-
fjölgunar og breyttrar aldurssamsetningar
verði jafnvel viðráðanlegar. Í greininni er
fjallað um breytingar á aldurssamsetningu
í heiminum og þá fjölgun sem á sér stað í
elstu aldurshópunum. Nefndir eru helstu
álitaþættir við mat á lífslíkum og fram-
reikning mannfjölda og ræddar helstu
leiðir sem menn sjá færar við að takast á
við vaxandi fólksfjölda.
Lýðfræðilegar breytingar
Þróun lýðfræðilegra breytinga á 20. öldinni hefur
verið hröð og verður enn sýnilegri næstu áratugina.
Breytingarnar eru helst raktar til aukinnar þekkingar
og framfara í heilbrigðismálum, s.s. aukins hreinlætis,
mæðra- og ungbarnaverndar, getnaðarvarna og með-
höndlunar sjúkdóma og slysa. Ásamt breytingum á
þjóðfélagsaðstæðum, félagslegri aðstoð og bættum
efnahag hefur þróunin skilað okkur betra heilsufari og
langlífi. Þetta á auðvitað f.o.f. við um iðnvædd ríki, þró-
unarlöndin eiga langt í land þó svo breytingar þar hafi
einnig átt sér stað. Áhrif á umönnun og aðhlynningu og
þann kostnað sem henni fylgir er helsta áhyggjuefnið
samfara fjölguninni í elstu aldurshópunum. 8
Mannfjöldaspár
Í samræmi við þróunina á öldinni er mikilla breyt-
inga að vænta, einkum í iðnríkjum. Á síðasta ári voru
605 milljónir manna 60 ára og eldri. Aldursspár gera
ráð fyrir að þeir verði 1.200 milljónir árið 2025. Þessi
hópur mun því tvöfaldast á næstu 25 árum ef þetta
gengur eftir. Af íbúafjölda heims 60 ára og eldri búa
60% í þróunarlöndunum (1998). Í Bandaríkjunum
einum er fjöldi 65 ára og eldri 34 milljónir (2000) og
gæti sá hópur tvöfaldast á næstu 30 árum, þar sem
búist er við hlutfallshækkun í 20% árið 2030 og að fjöldi
85 ára muni hafa tvöfaldast árið 2030, verði þá 2,4 % af
heildaríbúafjölda, í stað 1.6% í dag. 8, 14
Öldungum heldur áfram að fjölga og sem dæmi má
nefna Japan, þar sem tala íbúa 100 ára og eldri hefur
tvöfaldast sl. 6 ár og búist er við tvöföldun sama aldurs-
hóps í Ástralíu á næstu 6 árum. 9
Verulegar breytingar eru einnig að eiga sér stað í
þróunarlöndunum, þar sem lífslíkur hafa aukist úr 41
ári frá því um 1950, í 62 ár, árið 1990. Í hluta þróunar-
ríkja eru lífslíkur þegar komnar í 70 ár (í Argentínu,
Steinunn K. Jónsdóttir
yfirfélagsráðgafi
á LSH Landakoti
Lýðfræðilegar breytingar
– aldurssamsetning og
farsæl öldrun